Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 16

Neytendablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 16
Rafmagnsnotkun heimilanna eykst stöð­ugt og hefur aukist um fimmtung undanfarinn áratug. Heimili landsins nota að­ með­alatali 4,5 megavattstundir á ári til að­ knýja hin ýmsu raftæki og ljós. Mikilvægar merkingar fyrir neytendur Raftæki hafa mismunandi orkunýtingu og orkunotkun sambærilegra tækja getur verið talsvert mismunandi eftir framleiðendum. Til að þrýsta á um framfarir setti Evrópu­ sambandið á sínum tíma reglur um merkingar sem aðstoða eiga neytendur við að bera saman orkunotkun tækja af sömu gerð. Merkingarnar setja raftæki í flokka frá A­G þar sem A hefur besta nýtingu en G slakasta. Seljendur eru skyldugir til að merkja ísskápa, frysta, þvottavélar, uppþvottavélar, eldavélar og þurrkara með þessum merkingum. Framleið­endur bregð­ast við­ Merkingarnar hafa skilað miklum árangri og hreyft verulega við framleiðendum. Raftæki finnast varla lengur í flokkum D­G í ofangreindu flokkunarkerfi og nauðsynlegt hefur verið að bæta við tveimur flokkum, A+ og A++, fyrir allra bestu tækin. Fyrrnefndar reglugerðir hafa verið teknar upp hér á landi og samkvæmt lögum um merkingar og upplýsingaskyldu eiga seljendur að veita neytendum upplýsingar um orkunotkun viðkomandi tækja. Auk þess sem rekstrarkostnaður minnkar þá minnka umhverfisáhrifin einnig með orkunýtnari tækjum. Þó svo að öll raforkuframleiðsla á Íslandi komi frá endurnýjanlegum orku­ gjöfum þá eru raftækin framleidd erlendis. Það er því skylda okkar að stuðla að betri orkunýtingu raftækja með góðum merkingum sem upplýsa neytendur og hvetja framleiðendur til umhverfisvænni framleiðslu. Merki Orkuseturs Orkusetur hefur hleypt af stað verkefni sem tengist merkingum raftækja og er tilgangur þess þríþætttur. Í fyrsta lagi er því ætlað að hvetja söluaðila til að standa rétt að merkingum og viðurkenna þá aðila sem standa sig vel í þeim efnum. Í öðru lagi er stefnt að því að kynna þessar merkingar fyrir neytendum þannig að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um val á raftækjum og séu meðvitaðir um mismunandi rekstrarkostnað sambærilegra tækja. Í þriðja lagi er ætlunin að benda neytendum á að ný raftæki hafa mun betri orkunýtingu en eldri gerðir og nota oft aðeins helming þeirrar orku sem 10­20 ára tæki af sömu stærð nota. Til að aðstoða neytendur við að finna tækin með bestu orkunýtinguna mun Orkusetur merkja þau sérstaklega með þar til gerðum seglum sem festir verða á tækin. Frekari upplýsingar um merkingar og reiknivél sem ber saman orkunotkun og rekstrarkostnað eldri og yngri tækja má svo finna á vef orkuseturs (www.orkusetur.is). Elko fær við­urkenningu Orkusetur veitti fyrirtækinu Elko viður­ kenningu fyrir átak í merkingum raftækja í verslunum sínum. Víða er pottur brotinn í merkingarmálum raftækjaverslana hér á landi og því ákvað Orkusetur að viðurkenna framtakssemina. Réttar merkingar eru undir­ staða aukinnar vitundar neytenda um rekstrarkostnað sambærilegra tækja. Orkusparnað­ur skilar sér! Taflan hér fyrir neðan sýnir hvernig nálgast má sömu þjónustu með mismunandi hætti. Enginn munur er á virkni þessara ólíku leiða. Sama ljósmagn, sama kæling, sama hreinsun o.s.frv. fæst með báðum leiðum. Orkusparnaður á heimilum Mismunurinn á Leið A og Leið B er 2.099 kWh á ári hvað orkunotkun varðar og 16.790 kr. hvað kostnað varðar (8 kr/ kWh). Í landinu eru um 110 þúsund heimili og ef öll færu leið B í stað A væri mismunurinn 2.099 kWh* 110.000 = 230.890.000 kWh = 231 GWh á ári. Þessi munur jafngildir raforkuframleiðslu 40 MW vatnsaflsvirkjunar. Með því að velja skynsamlegar leiðir er hægt að virkja inn á við án þess að fara út í stórframkvæmdir. Leið A. Slæm orkunýting Leið B. Góð orkunýting Fjöldi Hlutur Notkun á viku Fjöldi Hlutur Notkun á viku 10 Glópera 60W 30 klst 10 Sparpera 15W 30 klst 10 Glópera 60W 30 klst 10 Sparpera 11W 30 klst 1 Sjónvarp 32” (Plasma) 35 klst 1 Sjónvarp 32” (LCD) 35 klst 1 Borðtölva 15 klst 1 Fartölva 15 klst 1 Kæliskápur >10 ára Alltaf í gangi 1 Kæliskápur nýr A++ Alltaf í gangi 1 Frystiskápur >10 ára Alltaf í gangi 1 Frystiskápur nýr A++ Alltaf í gangi 1 Uppþvottavél > 10 ára 7 skipti 1 Uppþvottavél ný A 7 skipti 1 Þvottavél > 10 ára 4 skipti 1 Þvottavél ný A 4 skipti Samtals á ári: 3.658 kWh = 29.266 kr. Samtals á ári: 1.559 kWh = 12.476 kr. 16 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2007 Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.