Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 19

Neytendablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 19
Hágæða ljósmynd í A4 stærð notar mikið blek og ljósmyndapappír er ekki gefins. Ef ætlunin er að nota prentarann endrum og eins má vera að ódýr prentari sem er dýr í rekstri geti verið ásættanlegur. Ef notkunin er mikil er sennilega ódýrara að kaupa dýrari prentara með lægri rekstrarkostnað. Bleksprautuprentari í samanburði við leysiprentara Ef markmiðið er að prenta í svart/hvítu er góður leysiprentari ekki svo dýr. Þeir eru hraðvirkari, rekstrarkostnaður þeirra er minni og þeir skila skýrari texta en bleksprautuprentarar. Litaleysiprentarar eru umtalsvert dýrari en svart/hvítir og þeir skila ekki mjög góðum ljósmyndum en gæðin fara þó batnandi. Þeir skila hins vegar ágætlega frá sér einföldum gröfum eins og súlu- og línuritum og skjölum í lit. Þeir eru hraðvirkari en bleksprautuprentararnir en á móti kemur að þeir eru yfirleitt stærri og valda meiri hávaða. Þó að slíkur prentari sé talsvert dýrari í innkaupum en litableksprautuprentari þá er rekstrarkostnaðurinn umtalsvert lægri. Litableksprautuprentarar bestu alhliða prentararnir Ef velja á prentara sem getur nánast allt, þ.e. prentað ljósmyndir, skjöl og texta í lit jafnt sem svart/hvítu þá er bleksprautuprentarinn sennilega besti kosturinn. Bleksprautuprentararnir eru fjölhæfir og margir þeirra leyfa meira að segja prentun beint af minniskorti án þess að tölva sé tengd við prentarann. Svart/hvítur leysiprentari hentar best til að prenta hágæða svart/hvít textaskjöl sem kosta lítið og eru örfáar sekúndur að prentast. Rétt er að hafa í huga að litaleysiprentarar hafa fallið umtalsvert Gæðakönnun á tölvuprenturum HP D6950 Canon IP5300 Epson D88plus Canon IP1700 Epson C79 Dell 725 19 NEYTENDABLA‹I‹ 1. TBL. 2007 Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om Cl ick to b uy N OW !PD F- XCh ange Viewer w w w.docu-track .c om

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.