Litli Bergþór - 01.06.2013, Síða 42
42 Litli-Bergþór
að túni. Við höfum fargað eins seint og mögulegt er,
hrútarnir fara rétt fyrir hrútafellingu í lok október og
gimbrarnar í byrjun nóvember. Meðalþunginn var í
haust tæp 24 kg og 41,3 kg eftir ána, en frjósemin er
um 1,9 lömb eftir á.
Ég hef notað um þrjá ha af káli fyrir hver 100 lömb
og í haust var ég með um 18 ha af káli fyrir lömbin.
Kýrnar fá miklu minna, eða um þrjá til fjóra ha.
Menn hafa spurt mig hvort þessi mikla kálbeit
borgi sig. Indriði á Skjaldfönn hringdi í mig í haust
þegar ljóst var að ég hefði slegið metið. Hann hélt nú
að það væri vel þess virði að borga örlítið með svona
góðum árangri! En mér hefur sýnst ég hafa kaup út úr
þessu þó það sé svosum enginn stórgróði. Kálræktin
er liður í endurræktun túna og það er góð réttlæting.
Þetta er þægileg aðferð til að nýta skít og undirburð
undan kindum og nautum, að setja hann í flög. Ég hef
líka fengið kalkúnaskít úr Helludal, sem er frábær
áburður á nýbrotið land en ekki eins heppilegt á tún
vegna fjaðranna. Mykja undan kúnum fer á túnin.
Landið hjá mér er grýtt og þegar ég endurrækta
túnin set ég skít í flögin og sái káli í ein þrjú ár í röð,
eða meðan torfið fúnar, til að þurfa ekki að leggja mikla
vinnu í að slétta eða tína grjót. Torfið gerir grjóttínsluna
erfiða. Síðan sái ég korni í ein þrjú ár og þá er unnið
að grjóthreinsuninni. Flögin eru plægð og grjótið sem
kemur upp er múgað á eftir með grjótrakstrarvél. Síðan
er farið yfir múgana með grjótmulningsvél, samskonar
og vegagerðin notar í vegkanta og reiðvegi. Þessi vél
ræður við steina sem eru ekki stærri en svo að maður
ræður við að lyfta þeim. Stærri steinar eru teknir með
ámoksturstækjum. Eftir um þrjú ár í káli og þrjú í
korni er síðan stefnt að því að sá túngrasi.
Er ekki hætta á hrútabragði þegar lambhrútarnir
verða svona stórir og er slátrað seint?
Nei, ég hef ekki trú á að væn hrútlömb séu frekar með
hrútabragð en önnur sem slátrað er á þessum tíma. Við
slátruðum vænsta hrútnum heima í haust þar sem við
þorðum ekki að setja hann í sláturhúsið. Fallið var
33,7 kg og við merktum ekki að það væri hrútabragð
af honum. Hrútabragðið er í fitunni, t.d. á hryggnum,
og kemur ef lömbin lenda í aflögn. Síðheimtir hrútar
eru þess vegna uppskrift að hrútabragði. En ef lömbin
eru í jöfnum vexti kemur síður bragð af þeim.
Hrútar bæta meiru á sig á kálinu en gimbrarnar og
þeir lenda ekki í fitufellingu eins og vill gerast með
þær, þar sem gimbrar hætta fyrr að vaxa eðli sínu
samkvæmt. Þess vegna verður meiri munur á gimbrum
og hrútum eftir því sem lömbin verða vænni.
Fitufelling verður síður ef lömbin eru í jafnri
framför, þá verður einungis vöðvasöfnun. En jafnvel
bara tímabundið bakslag veldur því að þau byrja að
safna fitu. Þetta er eðlilegt viðbragð líkamans við því
að grös sölna þegar haustar og þá byrja skepnurnar að
safna vetrarforða.
Skiptir ekki aðbúnaður að vorinu líka miklu máli
fyrir lambærnar?
Jú, góð hey og góð vorbeit er lambánum nauðsynleg.
Við erum svo heppin að vera með gömul en góð
Við mjaltir. Eiríkur, Skírnir Eiríksson og María Jónsdóttir
við störf í mjaltabásnum.
Séð yfir fjárhúsið og sældarlegt sauðfé.
Eiríkur og kollóttur skrautlambhrútur.