Ægir - 01.02.2001, Page 10
10
F R É T T I R
Kúfiskveiðiskip
komið heim
Kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH er komið til
heimahafnar á Þórshöfn eftir siglingu
frá Kína. Skipið er sérsmíðað til kúfisk-
veiða og hefur Hraðfrystistöð Þórshafn-
ar, útgerðaraðili og eigandi skipsins,
áætlanir um að endurvekja öfluga
kúfiskvinnslu á staðnum í framhaldi af
komu skipsins.
Afkomutölur hjá þeim sjávarútvegsfyrir-
tækjum sem fyrst hafa orðið til að birta
niðurstöður rekstrarársins 2000 sýna svo
ekki verður um villst hversu erfitt árið í
fyrra var rekstrarlega. Líkt og milliupp-
gjör höfðu mælt voru áhrif hins háa olíu-
verðs og óhagstæðrar gengisþróunar mik-
il og má segja að þessir tveir rekstrar-
þættir hafi algerlega ráðið úrslitum.
Einn af ljósustu punktunum í fram
komnum uppgjörum er afkoma af rekstri
Hraðfrystihússins-Gunnvarar sem var já-
kvæð á liðnu rekstrarári. Um 23 milljóna
króna hagnaður varð af rekstri félagsins.
Fjármagnsliðir vega þungt í uppgjöri fyr-
irtækisins og voru þeir neikvæðir um 286
milljónir króna. Veltufé frá rekstri var
536 milljónir króna, samanborið við 191
milljón króna árið áður. Uppgjörið er á
heildina litið gott, rekstur félagsins hefur
farið batnandi á síðustu misserum og
horfur eru ágætar fyrir yfirstandandi ár.
Um 63 milljóna tap var af rekstri Guð-
mundar Runólfssonar á síðasta ári, borið
saman við 141 milljóna króna hagnað
árið áður. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði jókst um ríflega 100
milljónir króna milli ára og nam 256
milljónum króna en afskriftir jukust
töluvert milli ára vegna fjárfestinga.
Tap af rekstri ÚA á liðnu ári nam 779
milljónum króna í fyrra, samkvæmt ný-
birtum afkomutölum. Rekstrarniðurstað-
an er í samræmi við væntingar enda þótt
áhrif af gengisþróun hafi verið neikvæðari
en gert hafði verið ráð fyrir. Framlegð
landvinnslu batnar milli ára en hún er
nokkru lakari í útgerð, eða sem nemur
tæpum 18% milli ára.
Sjávarútvegsfyrirtækin að birta fyrstu uppgjör:
Mælikvarði á erfiðleika
ársins2000
Það áraði illa á síðasta ári fyrir
flest sjávarútvegsfyrirtækin.