Ægir - 01.02.2001, Blaðsíða 41
41
F I S K A R
Gleypir, Chiasmodon niger
Einn veiddist á 1215-1190 m dýpi í Grænlands-
sundi rétt austan Dohrnbanka (65°29´N, 29°00´V).
Hann mældist 18 cm langur.
Bleikmjóri, Lycodes luetkeni. Tveir veiddust í október árið
2000 en áður höfðu þrír fengist á Íslandsmiðum 1995 og
1996.
Bleikmjóri, Lycodes luetkeni
Tveir, 35 og 47,5 cm langir, veiddust á 613-634 m
dýpi norður af Hornbanka (67°35´N, 21°49´V).
Þetta munu vera fjórði og fimmti fiskur þessarar
tegundar sem veiðist á Íslandsmiðum en fyrst veidd-
ist bleikmjóri á Íslandsmiðum í júlí 1995 en þá
veiddust tveir, sá fyrri á Rauðatorginu undan Aust-
fjörðum en sá síðari út af Þistilfjarðargrunni. Sá
þriðji bættist við í október 1996 en hann veiddist
djúpt suðaustur af Gerpi.
Djúpmjóri, Lycodes terraenovae. Tveir veiddust í október árið
2000, annar út af Látragrunni en hinn út af Stokksnesgrunni.
Ný tegund á Íslandsmiðum.
Djúpmjóri, Lycodes terraenovae
Tveir veiddust í þessum leiðangri. Sá fyrri á 1053-
1073 m dýpi í Grænlandssundi út af Látaragrunni
(65°21´N, 28°22´V). Hann var 30 cm að sporði. Sá
síðari sem mældist 50 cm að sporði veiddist á 1178-
1187 m dýpi út af Stokksnesgrunni (63°34´N,
14°10´V).
Þetta er ný tegund á Íslandsmiðum. Hún hefur
áður veiðst næst Íslandi suðvestan Færeyja og vestan
Írlands. Auk þess hefur fiskurinn veiðst í land-
grunnshalla undan Flórída, Nýfundnalandi og í Dav-
issundi vestan Grænlands. Einnig undan Vestur Afr-
íku og vestan Suður Afríku.
Dökki sogfiskur, Liparis fabricii
A.m.k. 31 dökkir sogfiskar veiddust á 362-1136 m
dýpi á svæðinu frá norðanverðum djúpmiðum Vest-
fjarða (66°47´N, 24°57´V) til Norðausturmiða
(67°23´N, 15°55´V). Fiskar þessir voru 9-24 cm.
Slétthyrna, Chaenophryne longiceps
Ein 18 cm löng veiddist á 910-931 m dýpi í Græn-
landssundi vestan Látragrunns (65°11´N, 28°01´V).
Rósafiskur, Rhodichthys regina. Tveir veiddust í október árið
2000. Annar austur af Langanesi en hinn aðeins sunnar.
Þessi tegund veiddist hér fyrst í Ingólgsleiðangrinum 1895-
96 og hefur lítið sést síðan.
Rósafiskur, Rhodichthys regina
Tveir rósafiskar veiddust. Annar veiddist á 986-921
m dýpi austur af Langanesi (66°44´N, 12°47´V) og
var hann 22,5 cm langur en hinn sem mældist 23,5
cm, veiddist á 1153-1138 m dýpi aðeins sunnar
(66°33´N, 12°22´V).
Rósafiskur fannst hér fyrst í Ingólfsleiðangrinum
1895-96 og hefur farið lítið fyrir honum síðan.
Sædjöfull, Ceratias holboelli
Tveir veiddust , annar var 71 cm og fékkst á 1132-
1235 m dýpi djúpt vestur af Öndverðarnesi
(64°57´N, 28°27´V) en hinn sem mældist 83 cm
veiddist á 1246-1251 m dýpi á svipuðum slóðum
(64°52´N, 28°32´V).
Auk þess veiddust í þessum leiðangri trjónufiskur,
Rhinochimaera atlantica, maríuskata, Bathyraja spin-
icauda, berhaus, Alepocephalus agassizi, uggi,
Scopelosaurus lepidus og litli langhali, Nezumia
aequalis sem ekki eru eins sjaldséðir og áðurnefndir
fiskar.
Af öðrum fiskum ekki alveg eins sjaldséðum má
nefna gíslaháf, jensensháf, rauðháf, svartháf, smáa há-
karla, 46 og 63 cm langa auk 69 og 90 cm, gjölni,
slóans gelgju, kolskegg, kolbíld, gljálaxsíld, geirsíli,
álsnípu, trjónuál, djúpál, broddabak, litlu brosmu,
fjólumóra, bjúgtanna og stinglax.
Þá veiddist óvenju stór litli karfi eða 36,5 cm lang-
ur og annar, ekki svo stór, veiddist á Þistilfirði sem er
ekki algengt.
Af hryggleysingjum er helst að geta s.k. blað-
smokks, Mastigoteuthis magna sem Snorri Sturluson
RE veiddi á 832-915 m dýpi á Reykjaneshrygg
(62°00´N, 28°05´V) í maílok. Þetta mun vera ný
tegund á Íslandsmiðum.
Í leiðangri B9-99 á rs Bjarna Sæmundssyni suð-
vestur af landinu í júní og júlí 1999 veiddust all-
margir sjaldséðir fiskar þ.á.m. tegund sem ekki hefur
áður veiðst innan 200 sjómílna fiskveiðilögsögunnar
við Ísland. Þessir fiskar veiddust allir í flotvörpu og
ýmist innan eða utan 200 sjómílna markanna.