Ægir

Volume

Ægir - 01.02.2001, Page 46

Ægir - 01.02.2001, Page 46
46 S K I P A S T Ó L L I N N manna klefum var bætt við á bátaþilfari. Lestarrými skipsins u.þ.b. tvö- faldaðist. Komið var fyrir sex nýj- um kælitönkum, þar af þremur tönkum sem einnig eru frystilest- ar. Allar lestar eru nú full ein- angraðar og málaðar með mat- vælavænni málningu. Allar lestar voru sandblásnar að undanskild- um hluta í lest 1. Einnig voru síð- ur sandblásnar upp að efra þilfari. Einangrun og klæðning var að stærstum hluta endurnýjuð í frystilestum. Botn og loft í síðu- tönkum voru einangruð í eldri lestum, svo og voru nýjar lestar full einangraðar og klæddar. Fjórir nýir olíu-botngeymar bættust við og einnig var komið fyrir nýjum andveltigeymi frammi á bakka skipsins. Spilbúnaður Aðal spilkerfi Þorsteins EA er lág- þrýst vökvakerfi. Komið var fyrir þriðju togvindunni, nýjum 18 tonna gils og nýju 18 tonna poka- spili. Einnig var sett 45 tonna flottrollstromla á skipið. Gamla pokaspilið var fært og notast sem úthalaravinda. Gömlu flottroml- unni var breytt og hún færð fram á togþilfar og notast sem poka- endavinda. Gilsaspil voru færð af bátaþilfari upp á brúardekk. Allar lágþrýstivindur eru nú fjarstýranlegar, ef frá er talin poka-endavinda. Nýtt autotrawl kerfi fyrir 3 togvindur var sett í skipið og togáttaksstýringar end- urnýjaðar fyrir gömlu togvind- urnar. Togvindumótorar voru teknir upp. Þremur nýjum vökva- dælum var bætt við og kerfi breytt vegna tveggja trolla veiða. Vindubúnaðurinn kemur allur frá Rolls Royce Marine sem Héðinn hf. í Garðabæ hefur umboð fyrir. Starfsmenn Héðins hf. önnuðust þessa verkþætti í breytingunum. Háþrýstivökvakerfi fyrir nóta- veiðar var fært úr afturskipi í nýtt frysti- og dælurými stjórnborðs- megin á togþilfari. Kraftblökk, millifærslublökk, hringjanál og nótakrani voru færð til samræmis við nýtt fyrirkomulag. Allar há- þrýstilagnir utan dyra og á vinnsluþilfari eru úr ryðfríu efni. Sogdælukerfi og krapaískerfi Settar voru í skipið ryðfríar lagnir Þorsteinn EA er útbúinn sem öflugt togskip.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.