Ægir - 01.02.2001, Síða 20
20
K Æ L I - O G F R Y S T I I Ð N A Ð U R
Um rösklega eins árs skeið
hefur fyrirtækið STG Ísvél-
ar unnið að kynningu og
sölu á vélbúnaði til fram-
leiðslu á fljótandi ísgeli
„FLO Ís-GEL“, fyrir skip og
vinnsluhús til kælingar á
öllu hráefni. Snæbjörn Tr.
Guðnason, framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, segir
að yfir 30 slík ískerfi séu
nú í notkun í veiðiskipum
og vinnslu, m.a. hér á
landi og hafi sannað gildi
sitt svo um munar.
„Mestu reynsluna höfum við af
búnaði um borð í rækjufrystitog-
aranum Arnarborgu sem verið
hefur við rækjuveiðar á Flæmska
hattinum. Við settum FLO Ís-
GEL ískerfi um borð í skipið fyrir
um einu ári og kerfið hefur verið í
stöðugri notkun síðan. Eftir árs
notkun þurfti ekkert að gera ann-
að en líta eftir olíunni á vélinni og
það var allt og sumt. Reynslan
sýnir að vegna þess hversu vel er
hægt að kæla rækjuna þegar hún
kemur í móttöku skipsins þá lifi
hún allt að hálfum öðrum tíma
lengur og það gerir það að verk-
um að hægt er að sjóða og fram-
leiða hærra hlutfall í dýrari
pakkningar. Það þýðir einfaldlega
að aflinn verður verðmætari en
ella og þar með erum við að tala
um að þessi góða kæling skili
meiru í vasa útgerðarinnar og sjó-
manna. Sennilega er sú hraða og
aukna kæling sem þessi ískerfi
bjóða uppá við kælingu og ísun á
nánast öllu hráefni úti á sjó, ein
besta tekjulindin og kjarabótin
sem sjómenn eiga kost á í dag!“
segir Snæbjörn.
Ískerfin frá STG Ísvélum
byggjast upp sem fjölframleiðslu-
kerfi á fjótandi gelís. Þetta þýðir
að með sama vélbúnaði er hægt að
framleiða bæði þunnan og þykkan
ís samtímis, þ.e. þunnan ís sem
hentar sem forkæling í móttöku-
og þvottakör skipa og síðan þykk-
an ís til ísunar í opin kör í lest.
„Þetta köllum við MULTI-ICE
kerfi og er það ein megin sérstaða
okkar búnaðar og hefur vakið
verðskuldaða athygli kaupenda.
Skilningur manna á gildi aukinn-
ar og hraðari kælingar hefur verið
að aukast mikið á síðustu árum og
ég er ekki í vafa um að vandaðri
vinnubrögð við kælingu á vörum
á öllum framleiðslustigum skilar
betra hráefni og auknu verð-
mæti,“ segir Snæbjörn.
Selt til Færeyja
Fyrir skömmu var skrifað undir
sölusamninga við útgerð stórs
færeysks togara sem gerður er út
frá Fuglafirði í Færeyjum. Um
borð mun fara stórt ísframleiðslu-
kerfi frá STG Ísvélum og verður
það sett niður um miðjan mars-
mánuð. Snæbjörn segir færeysku
útgerðaraðilana hafa farið mjög
vandlega yfir ýmsa af helstu val-
kostum á markaðnum og því sé
mjög ánægjulegt að ískerfið frá
STG Ísvélum hafi orðið fyrir val-
inu. „Ég tel möguleika mikla í
Færeyjum og veit að margir
munu fylgjast mjög náið með
reynslunni í Fuglafirði,“ segir
Snæbjörn.
Fullkomið ískerfi
á hjólum!
Á næstu dögum verður lokið við
smíði á viðamiklum og fullkomn-
um sýningarvagni sem STG Ísvél-
ar í samvinnu við Brimstál ehf. í
Grindavík hafa smíðað. Brimstál
ehf. annast þjónustu, uppsetningu
og smíði á búnaði í samvinnu við
STG Ísvélar, en auk Bimstáls ehf.
sjá Frystikerfi ehf. um viðhald og
kæliþjónustu á búnaði STG Ís-
véla. Sýningarvagn STG Ísvéla
inniheldur fullkomið ísfram-
leiðslukerfi og verður notaður til
kynningar á búnaði STG Ísvéla
hjá fyrirtækjum víðsvegar um
landið. Sú hringferð segir Snæ-
björn að hefjist á allra næstu dög-
um og þá geta útgerðaraðilar og
fiskverkendur átt kost á því að fá
fullkomið ískerfi á hjólum heim í
hlað og skoðað búnaðinn á staðn-
um!
„Auk FLO Ís-GEL ískerfa bjóð-
um við einnig sjálfvirk og mjög
afkastamikil þvottakerfi fyrir
fiskikör og tunnur. Eru nokkur
slík kerfi komin í notkun hér-
lendis, t.d. vökvaknúið kara-
þvottakerfi hjá Ísfélaginu í Vest-
mannaeyjum sem gengur á matar-
olíu, en þar hefur búnaðurinn
reynst mjög vel. Þá er einnig góð
reynsla af tunnuþvottakerfunum
frá okkur og eru þau m.a. í notk-
un hjá Skinney/Þinganesi á Höfn í
Hornafirði og hjá Bakkavör hf. í
Reykjanesbæ. Í samstarfi við
Brimstál ehf. höfum við svo tekið
að okkur ýmis störf og verkefni
hér heima og í Færeyjum fyrir að-
ila í sjávarútvegi og öðrum at-
vælaiðnaði. Þar má t.d. nefna
uppsetningu og lagningu glussa-
og kælikerfa, uppsetningu á bún-
aði ýmiskonar og nýsmíðaverk-
efna úr ryðfríu stáli og áli. Til
dæmis smíðar Brimstál ehf. sjósí-
ur sem notaðar eru til hreinsunar
á sjó fyrir ískerfin og flestan þann
búnað sem ískerfunum fylgir.
Það eru ótal skemmtileg tækifæri
framundan og við getum ekki
verið annað en vera bjartsýnir á
framtíðina,“ segir Snæbjörn að
lokum.
STG Ísvélar:
Samið um stórt ískerfi
til Færeyja
- „bætt kæling á fiski úti á sjó er besta kjarabótin,“ segir Snæbjörn St. Guðnason, framkvæmdastjóri
Snæbjörn St. Guðnason,
framkvæmdastjóri STG
Ísvéla.
Vagn með uppsettu
kælikerfi sem farið verður
með í hringferð um landið
og þar kynntir kostir
kælilausna STG Ísvéla.
Myndir: Sverris Jónasson