Ægir - 01.02.2001, Page 21
Eitt reyndasta fyrirtækið
hér á landi í sölu, uppsetn-
ingu og þjónustu á kæli-
og frystibúnaði er MMC
Fisktækni í Reykjavík. Fyr-
irtækið á að baki sér langa
sögu í greininni en það er
sprottið upp úr umboði
norsku samsteypunnar
Kværner í Noregi. Á tíma-
bili hét fyrirtækið Kværn-
er Fisktækni eftir að það
varð sjálfstætt útibú
Kværner á Íslandi en fyrir
þremur árum seldi Kværn-
er þann hluta sinnar starf-
semi sem sneri að þjón-
ustu við sjávarútveg og
með kaupum MMC
Fodema í Noregi varð til
MMC Fisktækni á Íslandi.
„Í starfseminni hér á landi höf-
um við byggt upp mikla sérfræði-
þekkingu á kælingu og frystingu
á fiski, bæði til sjós og lands, en
með tengingu við móðurfélagið
MMC Fodema höfum við bakland
í mjög sterku fyrirtæki í vinnslu-
búnaði fyrir sjávarafurðir. Saman
myndum við síðan heild, ásamt
fleiri fyrirtækjum í samsteypunni,
sem er mjög sterk á alþjóðamark-
aði og spannar mjög breiðar
lausnir fyrir skip og fiskvinnslur,“
segir Guðmundur Jón Matthías-
son, framkvæmdastjóri MMC
Fisktækni.
Guðmundur telur mikilvægt að
geta boðið kaupendum „pakka-
lausnir“, þ.e. búnað á sem breið-
ustu sviði. Með því fáist samhengi
og samræming frá einu sviði til
annars. Dæmi um þetta segir
hann kæli- og frystibúnað skipa,
dælingarbúnað til löndunar inn
að vinnslustöðvum í landi og
búnað til vinnslu afurðanna.
„Svona samræming skilar kaup-
endum án efa sparnaði þegar til
lengri tíma er litið og t.d. horfa
útgerðarmenn í vaxandi mæli til
þess að fara þá leið að taka búnað
frá sama aðila. Dæmi um þetta er
uppsjávarskipið Hákon sem nú er
í smíðum í Chile. Í því skipi önn-
umst við allan búnað frá móttöku
til löndunar, jafnt kæli- og frysti-
búnað og vinnslubúnað. Frysti-
búnaðurinn og sjókælikerfið
koma frá okkur hér hjá MMC
Fisktækni og síðan mun vinnslu-
búnaðurinn verða settur niður hjá
MMC Fodema í Noregi. Ég hygg
að þegar það skip kemur hingað
heim muni margir sjá fljótt
hversu vel það verður úr garði gert.
Hákon verður í alla staði glæsilegt
skip,“ segir Guðmundur.
Sjókælingin hefur
forskot
Undanfarin ár hefur mikið
gerst í frystivæðingunni í landi,
sér í lagi vegna uppbyggingar
landvinnsluhúsanna sem leggja
áherslu á uppsjávarfiskinn. Á ár-
inu 1999 varð vakning hjá út-
gerðarmönnum að endurnýja
gömul og lúin nótaveiðiskip en
Guðmundur Jón segir viss von-
brigði að bakslag hafi komið í
þann áhuga strax á síðasta ári.
„Skýringin er auðvitað ósköp ein-
föld. Sjávarútvegurinn hefur ekki
farið varhluta af gengisþróuninni
og fengið olíuverðshækkanirnar
henni til viðbótar. Ég vona þó að
úr rætist og áfram verði unnið að
endurnýjun þessara skipa, líkt og
í nágrannalöndunum. Öll eru þau
skip útbúin með sjókælikerfum
og mikið lagt upp úr meðhöndlun
hráefnis. Af því má sjá þá áherslu
sem útgerðir leggja á að auka sinn
hlut í framleiðslu afurða til
manneldis úr uppsjávarfiski í stað
þess að fara með allt í bræðslu.“
Í sjókælikerfum, svokölluðum
RSW kerfum, liggur einmitt einn
þekktasti þáttur í starfsemi MMC
Fisktækni. Guðmundur Jón segir
enga tilviljun hversu mikið út-
gerðir erlendis leggi upp úr sjó-
kerfunum og að hans mati geta ís-
kerfislausnir aldrei komið í stað
sjókælingarinnar varðandi kæl-
ingu afla. „Því hefur verið haldið
að mönnum að ísinn geti gert
sama gagn og snöggkælt aflann,
umfram sjókælikerfin. Þann sam-
anburð vildi ég gjarnan sjá og þá
líka samanburð á orkunotkun
kerfanna. Mér segir svo hugur að
þar muni ískerfin ekki hafa betur.
Hitt er annað mál að sjókælikerf-
in og ískerfin geta vel farið saman
í skipum og sem dæmi munum
við fara þá leið í Hákoni. Ísinn er
góður til að snöggkæla en sjó-
kælilkerfin hafa yfirburði í því að
halda aflanum á réttu hitastigi
allt að vinnslu,“ segir Guðmund-
ur Jón.
Verkefni erlendis
Á meðan rólegra er yfir markaðn-
um hér heima segir Guðmundur
Jón mikla gerjun erlendis og fyr-
irtækið sæki í vaxandi mæli út
fyrir landsteinana. „Raunar er það
þannig að móðurfélagið er að
sækja meira til okkar en við til
þeirra. Hér er margra ára þekking
í kælingu og frystingu og hana
má nýta í verkefnum erlendis.
Með þekkinguna í farteskinu og
tengsl við alþjóðlegt fyrirtæki
getum við komist í erlend verk-
efni og það munum við áfram
gera,“ segir Guðmundur Jón
Matthíasson, framkvæmdastjóri
MMC Fisktækni.
21
K Æ L I - O G F R Y S T I I Ð N A Ð U R
MMC Fisktækni byggir á áralangri reynslu í kælikerfum:
Ekkert kemst framar
sjókælikerfunum í gæðum
- segir Guðmundur Jón Matthíasson, framkvæmdastjóri
Guðmundur Jón Matthíasson,
framkvæmdastjóri MMC
Fisktækni.
Plötufrystir frá
MMC Fisktækni.
Í samstarfi við
móðurfélag sitt
hefur fyrirtækið
allan breiða línu af
fiskvinnslubúnaði,
sem og frysti- og
kælitækjum.