Ægir - 01.02.2001, Blaðsíða 23
23
K Æ L I - O G F R Y S T I I Ð N A Ð U R
„Við erum í endurskipulagn-
ingarvinnu með fyrirtækið og för-
um í þeirri vinnu ofan í öll innri
og ytri mál þess. Fyrirtækið hefur
að baki sér sterkan eiganda, þ.e.
Hömlur - eignarhaldsfélag Lands-
banka Íslands, og hefur þannig
með góðri stjórn mikinn styrk til
að vinna að endurskipulagningu
og koma í kjölfarið sterkari út á
markaðinn. Það erum við einmitt
að gera,“ segir Jónas G. Jónasson,
framkvæmdastjóri Ískerfa en það
fyrirtæki er nýkomið til sögunnar
í kæliiðnaðinum á Íslandi. Fyrir-
tækið tók við öllum framleiðslu-
rétti og einkaleyfum á búnaði sem
Brunnar hf. framleiddu áður.
„Við höfum nú þegar markað
okkur þá stefnu að einbeita kröft-
um okkar að framleiðslu á kæli-
lausnum fyrir meðferð á ferskvör-
ur, hvort heldur er í skipunum úti
á sjó, í landvinnslufyrirtækjun-
um. Við teljum okkur hafa þá
reynslu af framleiðslu ísþykknis í
okkar vélum að framundan séu
mikil sóknarfæri. Það mat byggj-
um við á rannsóknum sem við
höfum gert hjá notendum búnað-
ar frá okkur - og sér í lagi á
reynslu þeirra sem eru að taka við
fersku hráefni frá skipum sem
nota ísþykknið. Þeirra reynsla
segir allt sem segja þarf,“ segir
Jónas og vitnar til athugunar sem
fyrirtækið hafi gert hjá forsvars-
mönnum fiskmarkaða í Bretlandi
og Þýskalandi sem selja ferskt
hráfni af íslenskum skipum sem
nota ísþykkni. Hráefnið er að
koma á markaðinn 7-14 sólar-
hringa gamalt og segir Jónas að
mat starfsmanna markaðanna sé
að mikil breyting hafi orðið til
batnaðar með notkun ísþykknis-
ins.
„Þeirra orð sannfæra okkur um
gæði þeirra lausna sem við búum
yfir og á þeim grunni byggjum
við upp,“ segir Jónas.
Ísþykknisvélarnar hjá Ískerfum
eru misjafnar að stærð, allt eftir
umfangi þeirrar ísþykknisfram-
leiðslu sem hver og einn þarf.
Jónas segir líka skipta máli hversu
mikið rými sé í skipunum og
vinnslunum fyrir búnaðinn og
þess vegna sé í þróun vélanna lagt
upp úr að hafa þær sem fyrirferð-
arminnstar og noti eins litla orku
og mögulegt er.
Nýjasta vélin frá Ískerfum er
svokölluð B-105 sem getur fram-
leitt frá 250-750 lítra á klukku-
stund af þykkni með 0-40% ís-
hlutfalli. Eins og í öðrum vélum
er notaður sjór til að framleiða ís-
þykknið en Jónas segir miklu
skipta fyrir hráefnið hvað gerist
eftir að kæliferlið er hafið í fiski-
körunum.
„Númer eitt er að kæla fiskinn
hratt niður eftir að hann hefur
verið blóðgaður og það gerir ís-
þykknið. Síðan kemur að því að
með tímanum síjast sjórinn frá í
körunum og við ráðleggjum not-
endum eindregið að taka tappana
úr körunum og greiða fyrir af-
rennslinu þannig að fiskurinn
liggi ekki í vökvanum. Þannig
hefur varminn í raun flust úr hrá-
efninu yfir í ísþykknið, kælt niður
fiskinn og þegar sjórinn rennur
frá sitja ískristallarnir eftir og við-
halda kælingu. Þetta er mikil-
vægt atriði og eitt af því sem
skapar kerfum okkar sérstöðu og
tryggir aukin gæði hráefnis,“ seg-
ir Jónas G. Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Ískerfa.
Ískerfi tekur við þar sem Brunnar hurfu frá:
„Notum þetta ár til að
styrkja okkar stöðu“
˚Celsíus
KÆLIVÉLAVERKSTÆÐI
GÍSLA F. ÞORSTEINSSONAR
Smiðjuvegi 62 (rauð gata), Kópavogi
Sími: 577 6666 - GSM: 892 2890
Símboði: 845 4583
celsius@islandia.is
Kælikerfi - Frystikerfi
Uppsetningar - Hönnun
Eftirlit - Viðhaldssamningar
Þjónusta til sjós og lands
Liquid-ice 105,
er nýjasta ís-
þykknisvélin
frá Ískerfum.
Samanburður á
fiski sem kældur
er með ísþykkni
og fiski sem
kældur er með
hefðbundinni
aðferð.