Ægir - 01.02.2001, Side 39
39
F I S K A R
að greina til tegundar vegna skemmda, annar var 11
cm en hinn 25 cm, í maí á Reykjaneshrygg. Allir
þessir angar veiddust í flotvörpu Snorra Sturlusonar
RE.
Suðræni silfurfiskur, Argyropelecus
hemigymnus
Um miðjan nóvember veiddust þrír fiskar þessarar
tegundar 2-3 cm langir í loðnuflotvörpu rs. Bjarna
Sæmundssonar á 597-601 m dýpi í Grænlandssundi
út af Barðagrunni.
Norræni silfurfiskur, Argyropelecus
olfersi
Tveir silfurfiskar veiddust í kolmunnavörpu í mars
og apríl báðir á Rockallsvæðinu utan við 200 sjó-
mílna mörkin djúpt suður af landinu. Annan veiddi
Hákon ÞH á 512-567 m dýpi en hinn veiddi Börkur
NK á 567 m dýpi. Hvor fiskur var um 10 cm langur
en lengri hefur þessi fisktegund ekki mælst.
Orðufiskur, Polyipnus polli
Einn 6 cm langur orðufiskur veiddist í marsbyrjun í
flotvörpu rs. Árna Friðrikssonar á 340-350 m dýpi
(botndýpi: 371-381 m) norðan Víkuráls (66°00´N,
26°43´V).
Þetta mun vera þriðji fiskur þessarar tegundar sem
veiðist á Íslandsmiðum. Hinir tveir veiddust í Græn-
landshafi 1994 og rétt austan Vestmannaeyja 1995.
Bleiklax, Oncorhynchus gorbuscha
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu 20. sept. 2000,
veiddust nokkrir bleiklaxar (hnúðlaxar) í ám á Aust-
urlandi sumarið 2000, m.a. í Selá, Breiðdalsá og
Hofsá.
Stóri földungur, Alepisaurus ferox
Togarinn Snorri Sturluson RE veiddi einn 147 cm
langan að sporði á Reykjaneshrygg í apríl og annan í
maí á 1025 m dýpi einnig á Reykjaneshrygg
(61°26´N, 27°39´V). Báðir veiddust í flotvörpu.
Rauðskinni, Barbourisia rufa
Í lok október veiddi togarinn Örfirisey RE rauð-
skinna, 34 cm langan, í botnvörpu á 824 m dýpi á
grálúðuslóð vestan Víkuráls (65°50´N, 28°00´V)
Þetta mun vera fjórði rauðskinninn sem veiðist
innan 200 sjómílna markanna við Ísland. Sá fyrsti
veiddist djúpt suðvestur af Reykjanesi árið 1995.
Annar fékkst á grálúðuslóð vestan Víkuráls 1996 og
sá þriðji á Reykjaneshrygg 1999. Auk þess veiddist
einn rétt utan 200 sjómílna markanna suðvestur af
Reykjanesi árið 1997.
Hornfiskur, Belone belone
Í maí kom 75 cm hornfiskur upp úr maga þorsks sem
veiddist í net á 79 m dýpi um tvær sjómílur vestur af
Stafnesi. Veiðiskip var Þorkell Árnason GK.
Ekki fer mörgum sögum af hornfiski hér við land.
Fyrst mun hann hafa fundist hér árið 1701, næst
1764 og tveir fengust 1821.
Guðlax, Lampris guttatus
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu (Úr Verinu) þ. 21.
júní veiddi togarinn Klakkur SH einn 60 kg þungan
í flotvörpu á Reykjaneshrygg.
Þá veiddust nokkrir guðlaxar á djúpmiðum hér við
land, m.a. á Þórsbanka undan Suðausturlandi í ágúst,
skv. upplýsingum sem Hafrannsóknastofnun bárust.
Vogmær, Trachipterus arcticus
Í maí veiddi Haukur GK 146 cm og 4,8 kg vogmeyj-
arhrygnu á Reykjaneshrygg.
Ennisfiskur, Platyberyx opalescens
Í apríl veiddi Snorri Sturluson RE ennisfisk í flot-
vörpu á 1098 m dýpi vestan við Reykjaneshrygg
(61°34´N, 28°24´V). Fiskurinn mældist 22 cm.
Makríll, Scomber scombrus
Í byrjun apríl veiddi Hringur SH tvo makríla , 36 og
37 cm langa á Eldeyjarbanka
Steinbítur, Anarhichas lupus
Steinbítur er ekki sjaldséður fiskur en mjög stórir
steinbítar vekja þó alltaf athygli. Í ágúst veiddist
123-125 cm langur steinbítur eftir því hvernig hann
var togaður og teygður, 16 kg, hængur, 24-25 ára
gamall, á línu Bryndísar SU við Lárunga út af Breið-
dal. Þessi steinbítur er sá lengsti eða næstlengsti sem
veiðst hefur á Íslandsmiðum.
Trölli, Lamprogrammus shcherbachevi veiddist í desember á
Boðagrunni suðvestan Reykjaness. Ný tegund á Íslandsmið-
um.
Trölli, Lamprogrammus shcherbachevi
Trölli veiddist í desember á Boðagrunni (sem næst
63°25´N, 23°50´V) á 55-73 m dýpi. Lengd rúmlega
183 cm en það vantaði smávegis aftan á fiskinn.
Veiðiskip var Ottó N. Þorláksson RE.
Þetta er ný tegund á Íslandsmiðum og mjög fágæt
því ennþá hafa aðeins örfáir fiskar veiðst. Íslenski
fiskurinn er sennilega sá næstlengsti sem veiðst hefur
í heiminum. Þessi tegund er af ætt svartskolta og
ættbálki kúsk-ála en af þeim ættbálki hafa veiðst á Ís-
landsmiðum sníkir, svartskoltur, blámævill, flathaus
og drumbur, allir sjaldséðir við Ísland.
Drumbur, Thalassobathia pelagica
Einn drumbur veiddist í maí á 1025 m dýpi á vest-
anverðum Reykjaneshrygg í flotvörpu Snorra Sturlu-
sonar.Fiskurinn mældist 27 cm.