Ægir - 01.05.2003, Síða 20
20
N Ý T Æ K N I
Fyrsta kerfið í heiminum
Árni Marinósson, framkvæmda-
stjóri Elcon, segir hugmyndina að
þessu línukerfi, sem hann segir
vera það fyrsta í heiminum og sé
því tvímælalaust byltingarkennd
þróun í tæknibúnaði við línuveið-
ar, komna frá skipstjórum á línu-
veiðiskipum Vísis í Grindavík.
Árni segir hugmyndir þeirra hafa
verið mjög áhugaverðar og málið
hafi þróast þannig að hann hafi
sett sig í samband við aðila í
Hollandi sem skrifaði þær tölvu-
lausnir sem búi að baki kerfinu.
Öruggur og einfaldur búnaður
Árni segir þennan búnað mjög
öruggan og einfaldan í allri notk-
un og hann bjóði upp á mikla
möguleika í úrvinnslu gagna og
geymslu þeirra. Þannig sé vistun
gagnanna alsjálfvirk og ekki þurfi
að hafa áhyggjur af því að þau
glatist eins og hafi í mörgum til-
fellum gerst til þessa. Hann segir
að búnaðurinn auðveldi skip-
stjórnarmönnum mjög vinnuna
við línuveiðarnar og sýni viðkom-
andi fljótt og örugglega hvar í
línulögninni fiskurinn hafi gefið
sig. Búnaðurinn heldur utan um
línulögnina og ferlar hana inn á
skjáinn með myndrænni fram-
setningu, með upphafsflaggi,
millibólsmerkjum og endaflaggi
ásamt því að ferla upp línulögn-
ina. „Það tæknilegasta við þennan
búnað er,“ segir Árni, „hvernig
framsetningin á línugögnunum er
meðan á línudrættinum stendur.
TRAX-línukerfið birtir á skjá
fjölda öngla, fjölda fiska með sér-
stökum litakóta, bjóða- eða
rekkaskil og línuslit og færir síð-
an jafnhliða inn í skrá, ásamt öðr-
um nýtilegum gögnum eins og
staðsetningu, dýpi, sjávarhita,
veðurfar, sjávarföll o.fl. Öll þessi
gögn sem tilheyra línulögn eða
línudrætti eru geymd á aðgengi-
legum stað í kerfinu og er auðvelt
að sækja þau til notkunar eða
skoðunar hvenær sem er,“ segir
Árni. Og hann bætir við: „Til-
gangurinn með TRAX-línukerf-
inu er einfaldlega sá að auðvelda
skipstjórnarmönnum vinnu við
línuveiðarnar og allt aðgengi að
þeim ómetanlegu gögnum sem
safnast hafa en ekki verið að-
gengileg fram til þessa. Á langri
lögn geta menn nú séð á auga-
bragði á skjá hvaða „bjóð“ eða
„rekki“ var að gefa best. Ég tel
því að kerfið geti sparað mikinn
tíma og aukið veiðilíkur á þann
hátt að hægt er að leggja línuna á
það svæði þar sem fiskurinn gaf
sig á línuna.“
Prufukeyrt á þremur
línuveiðiskipum Vísis
Eins og áður segir eiga skip-
stjórnarmenn á línuveiðiskipum
Vísis í Grindavík hugmyndina að
umræddu línukerfi. Kerfið hefur
verið reynslukeyrt um borð í
þremur skipum Vísis; Sighvati
Elcon ehf. í Reykjavík setur á markaðinn byltingarkennda lausn í línuveiðum:
Fyrsti línuveiðiplotterinn
í heiminum
Undanfarin fjögur ár hefur sölu- og þjónustu-
fyrirtækið Elcon ehf. í Reykjavík unnið að því
að þróa svokallað tölvuplotter, sem er aðhæfð-
ur línuveiðum. Þessi lausn, sem markar tíma-
mót í línuveiðum í heiminum, er fyrir báta og
skip sem stunda línuveiðar með bjóð eða
rekka og getur kerfið tengst LineTec kerfinu
frá Vaka-DNG og er þá alsjálfvirkt og stjórnast
af öllum þeim aðgerðum sem framkvæmdar
eru á LineTec búnaðinn. Einnig hefur Elcon
þróað búnaðinn fyrir smábáta.
Árni Marinósson,
framkvæmdastjóri
Elcon.
Mynd: Sverrir Jónsson.