Ægir - 01.05.2003, Page 39
39
E R L E N T
Ferð til Suðurskauts-
landsins er drauma-
ferð þeirra sem eru
orðnir leiðir á íburð-
armiklum ferða-
mannastöðum þar
sem alltaf er sólskin,
endalaus sandur, bik-
ini og leiðigjarnir
pálmar sem bærast í
golunni. Norska
skemmtiferðaskipið
MS Nordnorge fór í
nóvember 2002 í
fyrstu ferð sína á Suð-
urpólinn. Í slíkri ferð
ber margt nýstárlegt
fyrir augu.
Á meðal mörgæsa
Farþegar í fyrstu ferðinni voru
150. Á fyrsta ferðatímabilinu eru
áætlaðar 8 ferðir og í hverri ferð
getur skipið tekið 250 farþega.
Reyndar getur skipið tekið fleiri
farþega en vegna þess að einungis
100 manns mega fara í land í
einu er 250 talinn hæfilegur
fjöldi.
Stórkostlegt land
„Það sem mér fannst áhrifamest
var mikilleiki fjallanna og borg-
arísjakanna. Auk þess var sérstakt
að sjá svona margar mörgæsir í
hóp, jafnvel yfir þúsund,“ segir
Michelle Opshaug, sem fór í
fyrstu ferðina. „Umhverfið er svo
yfirþyrmandi og manni finnst
maður verði að samsamast náttúr-
unni. Hér er ekki allt búið í hag-
inn fyrir ferðamanninn,“ segir
Opshaug.
Komið til Suður-Ameríku
Farið er til suðurhluta Chile og
Argentínu. Í annarri hverri ferð
siglir Nordnorge frá Puerto
Montt í Chile og Ushuaia í
Argentínu. Leiðin liggur til Pata-
góníu og Eldlandsins og gegnum
Magellansundið. Sjálf siglingin
tekur 14 daga, þar af eru 6 á Suð-
urskautssvæðinu. Ef veður leyfir
er farið nokkrum sinnum í land
og stundum skoðaðar rannsókna-
stöðvar. Innifaldar eru gistingar í
Santiago de Chile og Buenos
Aires og þar er hægt að fram-
lengja dvöl að eigin ósk.
Strangar reglur
Um ferðamennsku á Suðurskauts-
svæðinu gilda alþjóðlegar sam-
þykktir, sem meðal annars kveða
á um hverjir mega skipuleggja
ferðir þangað og einnig leyfilegan
fjölda ferðamanna. Þeir sem
skipuleggja ferðir þurfa að vera
félagar í alþjóðlegum samtökum
skipuleggjenda ferða á Suður-
skautssvæðið, IAATO
(International Association of Ant-
arctica Tour Operators), sem setja
bæði ferðamönnunum og þeim
sem að ferðunum standa reglur.
Til dæmis má ekki koma nær
mörgæs en 5 metra.
„En það er hægt að komast nær
þeim. Þær virðast skynja mann-
inn sem svolítið framandi hlut í
umhverfinu og eru hvorki hrædd-
ar né mjög forvitnar. Ef maður er
heppinn þá koma þær á móti
manni og vaga í kringum mann,“
segir Opshaug.
Víðförlir ferðamenn
Þátttakendur í þessum ferðum
eru gjarna þeir sem hafa ferðast
mikið og séð flest það sem er
skoðunar vert og eru orðnir leiðir
á sól, sandi og sjóböðum.
Margir Þjóðverjar hafa pantað
ferðir en líka nokkrir Norðmenn
og Danir, Englendingar, Amerík-
anar og meira að segja Ástralir,
sem reyndar eru í leiðinni þegar
skipið siglir suður.
Verðið ekki fyrir hvern sem er
Verðið er kannski ekki alveg fyrir
hvern sem er. Ferðin kostar um
það bil 430 þúsund ísl. króna fyr-
ir manninn í tveggja manna
klefa. Innifalinn er flugmiði, dvöl
í Buenos Aires og Santiago de
Chile og allar máltíðir um borð.
Vilji menn meiri þægindi, til
dæmis svítu, kostar ferðin um
rúmlega 700 þúsund ísl. króna.
Nýstárleg ferð í fríinu
Það má í það minnsta fullyrða að ferð á Suðurskautslandið er öðruvísi ferð.