Ægir - 01.05.2003, Qupperneq 40
40
E R L E N T
Hinn 1. ágúst nk. taka gildi í
Noregi reglur, sem Evrópusam-
bandið setur um vinnu- og hvíld-
artíma sjómanna um borð í
norskum fiskiskipum. Þó eru
gerðar undantekningar þannig að
breytingar verða í heildina ekki
ýkja miklar frá því sem nú
tíðkast, segir í Fiskaren.
Þegar ESB krafðist þess á síð-
asta ári að reglurnar yrðu teknar
upp urðu norskir sjómenn bæði
undrandi og gramir. Þeir eru ekki
vanir því að vinnu- eða hvíldar-
tími sé aðalatriði þegar vertíð
stendur sem hæst.
Evrópusambandið hefur sam-
þykkt að veittar verði rúmar und-
anþágur í sérstökum tilvikum
sem þessum. Þá er gert ráð fyrir
að vinnutími verði ekki lengri en
48 tímar á viku á hverju 12 mán-
aða tímabili og aldrei lengri en
77 tímar á viku. Hvíldartími,
sem má vera tvískiptur, skal vera
tíu tímar á sólarhring.
„Þetta er ásættanlegt. Í samn-
ingum eru nú þegar ákvæði um
að vinnu- og hvíldartíma skuli
hagað þannig að öryggi sé sem
best tryggt og ég álít að sjómenn
muni sáttir við það,“ segir Hege
Strand hjá Sjóferðaeftirlitinu, en
hún hefur aðallega sinnt þeim
málum sem snerta fiskiskip. Hún
telur að einna erfiðast verði fyrir
sjómenn á minnstu bátunum að
fara eftir nýju reglunum.
„Á úthafsveiðiflotanum eru
þegar í gildi samningar sem eru í
samræmi við reglur ESB en ég
held að erfitt geti orðið fyrir sjó-
menn á dagróðrabátum að fara
eftir þeim.
Þótt nýju reglurnar séu sveigj-
anlegar ætlast bæði ESB og norsk
stjórnvöld til þess að þær séu
teknar alvarlega.
„Ef grunur leikur á að reglurn-
ar séu brotnar munum við krefj-
ast aukins eftirlits. Það verður
aldrei viðurkennt að auknir
tekjumöguleikar útgerða og sjó-
manna réttlæti brot á þeim, segir
Hege Strand.
Nýju reglurnar hafa þegar tekið
gildi á dönskum fiskiskipum og
Svíar eru að undirbúa reglur svip-
aðar þeim norsku. Það eru at-
vinnu- og viðskiptamálaráðuneyt-
ið sem standa að fyrstu reglunum
um vinnu- og hvíldartíma sjó-
manna á fiskiskipum. Eins og
áður segir er miðað við að þær
taki gildi 1. ágúst nk.
„Fiskpilla“
handa konum
Fyrirtækið Pronova Biocare hefur
sett í eina töflu Omega-3 fitusýr-
ur og kalk. Þar með er komið
nýtt fæðubótarefni, sem er sér-
staklega ætlað konum. Þeim er
hættara við beinþynningu en
körlum. Daglegur skammtur af
kalki getur minnkað líkur á bein-
brotum, segir dr. scient Ranghild
Rønneberg í fréttatilkynningu frá
fyrirtækinum í Bærum. Það hefur
sýnt sig að Omega-3 fitusýrur
milda dæmigerða kvennakvilla,
svo sem verki við blæðingar,
þunglyndi og mígren. Þessi bæti-
efni er nú hægt að fá í einni og
sömu töflunni, sem hefur fengið
nafnið „Triomega Women“, segir
í Fiskaren.
ESB-reglur um
vinnutíma sjómanna