Ægir

Volume

Ægir - 01.05.2004, Page 16

Ægir - 01.05.2004, Page 16
16 B RY G G J U S P J A L L En núna er Þorgrímur Jóel í brúnni á Guðmundi í Nesi, sem Útgerðarfélagið Tjaldur keypti í vetur og gerir út á grálúðu. Í fyrsta túrnum var aflaverðmæti skipsins um 65 milljónir og í öðrum túrnum um 100 milljónir. „Þetta er afar öflugt skip og fer vel með mann,“ segir Þorgrímur, þegar hann er spurður um hvaða einkunn hann gefi þessu öfluga skipi. Tuttugu manns eru í áhöfn Guðmundar í Nesi. Fá skip hafa öflugri vélar í ís- lenska fiskiskipaflotanum en Guðmundur í Nesi. Togkraftur- inn er því verulegur og mögu- leikar skipsins því miklir. Lestar- rýmið er stórt, um tólfhundruð rúmmetrar, og má sem dæmi nefna að unnt er að koma á átt- unda hundrað tonnum af grálúðu um borð í skipið. Á sínum tíma var Guðmundur í Nesi smíðaður sem rækjufrysti- togari fyrir færeyska útgerð. Fljótlega fór þó að halla undan fæti í rækjuútgerðinni og kippt var grundvellinum undan rekstri togarans. Til þess að gera skipið út á grálúðuveiðar þurfti að fara í töluverðar breytingar á skipinu, m.a. skipta um grandaraspil. Svipuð grálúðuveiði og í fyrra „Það hefur verið svipuð grálúðu- veiði og í fyrra. Við náum ekki tíu tonnum á dag, sem er kannski ekki hægt að segja að sé mikil veiði. En það er stíft sótt í grálúð- una, mörg skip eru á þessum slóðum. Aðalveiðisvæðið er Hampiðjutorgið svokallaða, vest- ur af Bjargtöngum og suður um vestur af Snæfellsnesi. Mér virðist sem þekking á grálúðustofninum sé ekki mjög mikil. Menn telja að stofninn sem við erum að veiða úr hér á Íslandsmiðum sé sami stofn- inn og veitt er úr við Grænland. Ég skal viðurkenna að ég er þessu ekki nægilega vel kunnugur, en ég hef þó á tilfinningunni að það þyrfti að rannsaka þetta betur og komast að því hvort hér er um að ræða einn og sama stofninn. Út frá þeim upplýsingum gætu menn þá betur gert sér grein fyrir heildarsókninni í stofninn. Menn hafa ákveðnar áhyggjur af grá- lúðustofninum, en það eru hins vegar takmarkaðar upplýsingar um stöðu hans. Úr þessu þyrfti að bæta. Þeir sem hafa verið lengi á þessum veiðum segja að mun minna veiðist núna af grálúðu en hér á árum áður. Þó ber að hafa í huga að áður var sótt í lúðununa á ákveðnum tíma árs, en núna er verið að sækja í þennan stofn allt árið,“ segir Þorgrímur. Úr sjómennskujarðveginum „Ég fór á Kolbeinseyna 1984 og var á henni meira og minna í tólf ár. Það var ekkert sjálfgefið að ég færi á sjóinn á sínum tíma. Kannski má segja að ég hafi kom- ið úr þessum jarðvegi og þetta æxlaðist bara svona,“ segir Þor- grímur. Þorgrímur segist kunna þessari vinnu vel. Auðvitað geti langar útiverur, fjarri fjölskyldu, verið erfiðar, en löng frí á milli bæti útiverurnar upp. Hann rifjar upp að á sínum tíma hafi hann verið sjóveikur, eins og gengur og ger- ist „og þegar ég er búinn að vera lengi í landi finnur maður aðeins fyrir smá ónotum. En það er þó fljótt að jafna sig,“ segir Þorgrím- ur og hlær. Menn telja að stofninn sem við erum að veiða úr hér á Íslandsmiðum sé sami stofn- inn og veitt er úr við Græn- land. Ég skal viðurkenna að ég er þessu ekki nægilega vel kunnugur, en ég hef þó á tilfinningunni að það þyrfti að rannsaka þetta betur og komast að því hvort hér er um að ræða einn og sama stofninn. Þorgrímur Jóel Þórðarson, skipstjóri á Guðmundi í Nesi: Á sjónum í tuttugu ár Húsvíkingurinn Þorgrímur Jóel Þórðarson er skipstjóri á Guðmundi í Nesi RE, frystitiogara Brims hf., sem eins og kunnugt er varð til við sameiningu Útgerðarfélags Akureyringa og Út- gerðarfélagsins Tjalds. Þorgrímur hefur verið til sjós í tuttugu ár, lengi var hann á Kol- beinseynni, sem var gerð út frá Húsavík, en síðar fór hann á Elborgina, sem var m.a. á rækjuveiðum vestur á Flæmska hattinum.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.