Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.05.2004, Qupperneq 22

Ægir - 01.05.2004, Qupperneq 22
22 M Y N DA S Í Ð A N Sjómannadagurinn á Siglufirði 1966 Ekki þarf að fara um það mörgum orðum að sjómannadagurinn er jafnan mikill hátíðisdagur í sjávarplássum um allt land. Sumum finnst að sjómannadagurinn sé núna ekki orðinn nema skuggi af sjómannadeginum hér áður fyrr, en það er auðvitað allur gangur á því hversu mikið menn leggja í þennan dag. Í mörgum sjávarplássum er og hefur sjómannadagurinn alltaf verið mikill hátíðisdagur. Svo er um Siglufjörð, en meðfylgjandi myndir voru teknar þar árið 1966. Myndasmiðurinn er Steingrímur Kristinsson, sem hefur í gegnum tíðina tekið margar ómetanlegar myndir á Siglufirði. Steingrímur heldur úti vefnum www.sksiglo.is þar sem m.a. eru upp- færðar daglegar fréttir frá Siglufirði og gífurlegur fjöldi ljósmynda. Á myndinni má m.a. þekkja Gunnar Friðriksson, Hauk Freysteinsson, Júlíus Þorkelsson, Svanhildi Freysteinsdóttur, Freystein Sigurjónsson, Daníel Bald- ursson, Gísla Anotnsson og Núma Jóhannsson. Á þessari mynd eru m.a. Magnús Guðjónsson (með hattinn), Guðjón Magn- ússon, Guðbjörg Jóhannsdóttir, Sigurður Ásgrímsson og Aðalbjörn Rögn- valdsson. Á myndinni má m.a. þekkja Kristin Georgsson, Sigurð og Sigfús Steingrímssyni, Þórð Þórðarson, Guðmund Skarphéðinsson o.fl. Keppni í beitningu. Á myndinni má þekkja Albert Sigurðsson og Birnu Baldursdóttur. Sjómenn í tuðrukappróðri. Skipverjar af Stálvík, Sigluvík og Dagnýju. Róðrarlið starfsmanna í Strákagöngum. Jón Jónasson, Karl Samúelsson, Færeyingurinn Oluf Nicalsen, Há- kon Antonsson, Bjarni Þorsteinsson, Símon Gestsson og Stefán Árnason.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.