Ægir

Årgang

Ægir - 01.05.2004, Side 28

Ægir - 01.05.2004, Side 28
28 Æ G I S V I Ð TA L I Ð Íslandi og einnig kemur gríðarlegt magn inn á markaðinn frá Kanada.“ Nýir mögulegir markaðir? „Og til þess að skekkja þessa mynd enn frekar er sú staðreynd að það er mjög mikið framleitt af heitsjáv- arrækju í heiminum, sem er viðbót á markaðinn við kaldsjávarrækjuna héðan úr Norður-Atlantshafinu. En samhliða verðlækkun hefur markaðurinn verið að stækka. Spurningin er hins vegar hversu mikið markaðurinn getur stækkað. Auðvitað eru menn alltaf að horfa í kringum sig með mögulega nýja markaði, en svo virðist sem ekki sé auðvelt að finna nýja betur borgandi markaði fyrir kaldsjávarrækju en Bretland. Ef til vill þarf að leggja enn frekari áherslu á hreinleikann, en það hefur svo sem ýmislegt verið reynt í markaðssetningunni á undanförnum árum. Í Danmörku hefur verið reynt með ágætis árangri að selja rækjuna með ýmsum kryddtegundum. En það er ekki þar með sagt að slík vara seljist í Bretlandi. Hefðirnar eru sterkar í neyslu á rækjunni og það er oft erfitt að koma fram með nýjungar. Það er í það minnsta ekki á vísan að róa í þeim efnum.“ Tæknilega fullkomin verksmiðja Sem fyrr segir á hérlendur rækjuiðnaður við mörg vandamál að etja um þessar mundir. Markaðsverð fyrir afurðirnar er lágt, í annan stað hafa veiðarnar gengið nokkuð treglega á síðustu vikum hér á heimamiðum og í þriðja lagi hjálpar hið háa olíuverð ekki í rækjuútgerðinni nú um stundir. „Ég hygg að menn séu hins vegar nokkuð almennt á þeirri skoðun að vinnslan hér á Íslandi sé mjög full- komin og vel samkeppnishæf. Það hefur tekist að auka nýtinguna verulega og ná þannig fram umtals- verðri hagræðingu í rekstrinum, en það má væntan- lega alltaf gera betur í þeim efnum. Undanfarin ár hefur verksmiðjan hér á Húsavík verið keyrð á fullum afköstum, a.m.k. hluta úr ári. Núna er unnið á þremur sex tíma vöktum. Fyrsta vaktin er frá klukkan sex á morgnana til tólf á há- degi. Önnur vaktin er frá klukkan eitt til sjö og sú þriðja er frá klukkan átta til tvö á nóttunni. Með þessu fyrirkomulagi detta út tveir tímar, í hádeginu og kl. 19-20. Við teljum okkur geta náð fram hag- ræðingu með því að breyta þessu fyrirkomulagi og fara í tvær átta tíma vaktir, þá yrði unnið frá sex á morgnana til ellefu á kvöldin með eins tíma hléi á vaktaskiptum. Við höfum verið að setja inn vélar í verksmiðjuna sem við fengum frá Eskju og ætlum að setja inn til viðbótar til að efla hreinsunina. Það gæti hugsanlega þýtt einhvern sparnað í mannahaldi. Við erum því stöðugt að leita leiða til þess að hagræða og skera niður kostnað. En í það heila er verksmiðjan ágæt- lega tækjum búin, enda ekki nema tæplega tíu ára gömul, með gott starfsfólk sem hefur langa og mikla reynslu í rækjuvinnslu og því sjáum við ekki fram á mikla fjárfestingu í nýjum tækjabúnaði á næstunni,“ segir Bergsteinn. Bergsteinn Gunnarsson: Það er markmið stjórnar fyrirtækisins að efla starfsemina frekar en hitt. Það vill að sjálfsögðu enginn tapa í rekstri, en hins vegar sýnist mér það alveg ljóst miðað við stöðuna í dag að það er ekki hægt að reikna með hagnaði. Rækjuverksmiðja Íshafs er við höfnina á Húsavík.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.