Ægir

Volume

Ægir - 01.05.2004, Page 31

Ægir - 01.05.2004, Page 31
31 F I S K M A R K A Ð I R „Kerfið er til í enskri útgáfu hjá okkur, það er reyndar miðað við íslenskar krónur en býður upp á að geta valið gjaldmiðla,“ segir Ragnar. Hann segir að ávinning- urinn með því að útvíkka íslenska fiskmarkaðskerfið á þennan hátt sé fyrst og fremst sá að fá inn fleiri kaupendur og þannig séu líkur á hærra verði. „Þetta gæti mögulega skapað virðisauka á þann hátt að í stað þess að flytja fiskinn út óunninn í gámum vildu kaupendur mögulega láta vinna fiskinn að einhverju leyti hér á landi.“ Sem fyrr segir var uppboðskerfi Íslandsmarkaðar, Fisknet, kynnt fyrir erlendum fiskmarkaðsmönn- um í Brussel. „Við kynntum kerf- ið m.a. fyrir Hollendingum sem við höfum verið að vinna með og þeir hafa lýst áhuga á að vera milliliðir í því að tengja sína kaupendur inn í kerfið.“ Úrbóta þörf í vigtarmálum Samtök fiskmarkaða gengu í evr- ópsk samtök fiskmarkaða sl. haust og tóku í desember sl. þátt í fundi um sameiginleg hags- munamál evrópskra fiskmarkaða. Ragnar segir að aðild Samtaka fiskmarkaða að evrópskum fisk- mörkuðum hafi vakið nokkra at- hygli, ekki síst vegna þess að Ís- land sé ekki aðili að Evrópusam- bandinu. „Það er engin spurning að fiskmarkaðir í Evrópu geta lært af okkur og við getum lært af þeim.“ Ragnar segir að menn hafi uppi væntingar um að evrópskir fisk- markaðir komi inn í viðskipti við íslenska fiskmarkaði. „Við mun- um byrja rólega í þessu. Hins vegar er ákveðið vandamál þesssu tengt, sem felst í þeirri hefð hér að selja fiskinn óslægðan úti í sjó og áætla einhverja meðalvigt. Vigtarmálin hafa verið okkur erf- ið og við þurfum að fá skýrar lín- ur í þeim efnum. Ég vænti þess að gerðar verði ákveðnar leiðrétt- ingar í vigtarmálunum í kjölfar skýrslu sem unnin var í sjávarút- vegsráðuneytinu.“ Meira magn - lægra verð „Verð hafa verið að lækka það sem af er þessu ári, en hins vegar hefur magnið aukist. Hjá Fisk- markaði Suðurnesja höfum við selt 2.400 tonnum meira á fyrstu Fiskmarkaðarnir horfa út fyrir landsteinana „Við höfum verið að skoða það að tengja er- lenda kaupendur beint við okkar kerfi og raunar prófuðum við að keyra uppboð yfir netið á sjávarútvegssýningunni í Brussel og það gekk mjög vel. Við sýndum þannig fram á að þetta er tæknilega vel mögulegt og það vakti eftirtekt. Menn hafa nú þegar keypt fisk í gegnum þetta kerfi erlendis frá og það hefur gengið ágætlega,“ segir Ragnar Kristjánsson, formaður Samtaka uppboðsmarkaða. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins nam söluaukning í gegnum markaði innan Íslandsmark- aðar um sex þúsund tonnum. Hins vegar hafa verðin lækkað frá fyrra ári.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.