Ægir - 01.05.2004, Page 41
41
F J Á R M Á L
Atli Rafn Björnsson,
sérfræðingur hjá
Greiningu Íslands-
banka, segir að nú-
verandi rekstrarað-
stæður í sjávarútvegi
kalli á frekari hag-
ræðingu. Gengi krón-
unnar er hátt, olíu-
verð er hátt og verð á
nokkrum tegundum
sjávarafurða hefur
lækkað. Við þessar
aðstæður segir hann
að geti verið fýsilegur
kostur, fyrir þau fyrir-
tæki sem hafa næga
fjárhagslega burði, að
leita nýrra tækifæra,
ekki síst erlendis.
Um horfur almennt í rekstri
sjávarútvegsfyrirtækja telur Atli
Rafn Björnsson að ekki séu líkur
á verulegum breytingum á þessu
ári. Krónan verði ugglaust áfram
sterk og litlar líkur til þess að af-
urðaverð taki miklum breyting-
um á næstunni. ,,Útlit er fyrir að
afkoma sjávarútvegsfyrirtækja á
þessu ári verði svipuð og í fyrra að
gengishagnaði af hlutabréfum frá-
dregnum,“ segir Atli Rafn. Í
þessari stöðu telur hann einsýnt
að fyrirtækin verði að bregðast
við með hagræðingu og lækka
kostnað á sem flestum sviðum
rekstrarins eins og kostur er.
Hátt verð á kvótanum
Verð á kvóta hefur haldist tiltölu-
lega hátt á sama tíma og rekstrar-
aðstæður í greininni hafa versnað.
Væntingar um ráðleggingar
Hafró í júní um hámarksafla á
næsta ári kann að skýra þetta að
hluta.
Atli Rafn segir að mælingar
Hafró bendi til aukningar í
þorski. Það muni sérstaklega
koma sér vel fyrir þau fyrirtæki
sem hafa yfir að ráða afkastamikl-
um skipum og búnaði og geti
auðveldlega aukið afköstin án
þess að leggja í nýfjárfestingu.
Aukning í ferskum fiski
Atli Rafn segir greinilegt að
mörg sjávarútvegsfyrirtæki leggi
aukna áherslu á vinnslu á ferskum
fiski. ,,Það verður fróðlegt að sjá
hvernig markaðurinn bregst við
auknu framboði frá Íslandi. Þessi
markaður í Evrópu er talinn vera
stækkandi, en á sama tíma heyr-
ast af því fréttir að bæði Færey-
ingar og Norðmenn séu einnig að
færa sig æ meira yfir í framleiðslu
á ferskum fiski. Það er því hætta
á að verðið gefi eftir.“
Vöxturinn er ekki í
sjávarútveginum
Verð sjávarútvegsfyrirtækja í
Kauphöll Íslands hefur setið eftir
á sama tíma og mikil hækkun
hefur verið á Úrvalsvísitölunni.
Sú þróun á sér einkum þær skýr-
ingar að rekstraraðstæður eru erf-
iðar og óverulegur vöxtur hefur
verið í greininni. Ætla má að
sóknarfærin séu að hluta til er-
lendis því eins og Atli Rafn sýndi
fram á í erindi sem hann flutti á
sjávarútvegssýningunni í Brussel
í byrjun maí hefur lítil samþjöpp-
un átt sér stað í greininni á
heimsvísu. Í erindinu bar Atli
Rafn meðal annars saman saman-
lagðan vöxt valinna sjávarútvegs-
fyrirtækja hér á landi (Samherji,
HB Grandi, SIF og SH) og sjö
sjávarútvegsfyrirtækja erlendis
við vöxt fyrirtækja í matvörugeir-
anum. Þessi samanburður var
sjávarútveginum óhagstæður.
,,Athugunin leiddi í ljós að
samanlagður vöxtur þeirra frá ár-
inu 2000 til 2003 var einungis
6% en á sama tíma jókst velta
þriggja stærstu matvörukeðja í
Evrópu um 40% en í þeim geira
hefur mikil samþjöppun átt sér
stað. Þessi þróun gerir samnings-
aðstöðu sjávarútvegsfyrirtækja
erfiðari,“ segir Atli Rafn.
Síldarvinnslan út úr
Kauphöllinni
Það þóttu mörgum merkileg tíð-
indin þegar stjórnendur Síldar-
vinnslunnar hf. ákváðu um mán-
aðamótin apríl-maí að taka fyrir-
tækið af skrá í Kauphöll Íslands.
Þessi ákvörðun var kunngjörð í
tengslum við yfirtökutilboð fimm
stærstu hluthafa í Síldarvinnsl-
unni - Samherja, Samvinnufélags
útgerðarmanna, Snæfugls, Gjög-
urs og Kaldbaks. Í viðtölum við
stjórnendur félagsins kom fram
að meginástæðan fyrir þessari
Hagræðing
- er svar sjávarútvegsfyrirtækja við verri rekstraraðstæðum
Atli Rafn Björnsson: Útlit er fyrir að afkoma sjávarútvegsfyrirtækja á þessu ári verði
svipuð og í fyrra að gengishagnaði af hlutabréfum frádregnum.