Ægir - 01.02.2005, Síða 5
Verulega góðir möguleikar í þorskeldi
„Þó ekki sé horft á annað en aðstæður í sjónum, þá tel ég að möguleikar
okkar í þorskeldi séu verulegar góðir. Ég vil orða það svo að við séum í
meginmenginu fyrir þorskeldi, en í jaðarmengi fyrir laxinn. Bleikja er sömuleiðis kuldakær-
ari tegund en laxinn og þess vegna hentar hún mjög vel sem eldistegund á Íslandi.,“ segir
dr. Jón Árnason, fóðurfræðingur hjá Fóðurverksmiðjunni Laxá á Akureyri, m.a. í ítarlegu
viðtali við Ægi um vísindin að baki fóðurgerð, stöðuna í hérlendu fiskeldi o.fl.
Aukin tæknivæðing í bleikjunni
Það er engum blöðum um það að fletta að aðstæður til bleikjueldis eru þær
bestu í heiminum. Engu að síður hefur bleikjueldi hér á landi verið á fremur
smáum skala. Jónatan Þórðarson, framkvæmdastjóri eldisstöðvarinnar Silungs
hf., telur allar líkur á töluvert aukinni framleiðslu á allra næstu árum. Þar kem-
ur margt til, en Silungur hf. hefur farið út í að tæknivæða vinnsluna verulega
sem gerir fyrirtækinu kleift að slátra mun meira magni en áður. Ægir kynnir sér
stöðuna í hérlendu bleikjueldi.
Glímt við kynþroska þorsksins
„Það hefur sýnt sig að 60-70 prósent af eldisþorski verður kynþroska
strax eftir eitt ár í sjó og allur þorskur er orðinn kynþroska eftir þrjú ár.
Þessu þurfum við að breyta. Með ljósastýringu viljum við reyna að koma í
veg fyrir að fiskurinn hreinlega verði kynþroska. Í það minnsta á að vera
hægt að hægja verulega á kynþroskanum, jafnvel stöðva hann,“ segir dr.
Þorleifur Ágústsson, verkefnisstjóri hjá RF á Ísafirði, en fyrir liggur að
bæði RF og Hafró á Ísafirði fara í athyglisverð rannsóknaverkefni á
grundvelli samnings sem ráðuneyti sjávarútvegs- og iðnaðarmála hafa gert um eflingu
rannsóknar- og þróunarstarfsemi á sviði sjávarútvegs.
Einstakar strýturannsóknir framundan
Framundan eru einstakar rannsóknir á hverastrýtunum í Eyjafirði -
einstakar í heiminum - enda er það svo að umræddar hverastrýtur
í bæði austan- og vestanverðum firðinum eru einstakar á heims-
vísu. „Í alþjóðlegu samhengi er til dæmis mjög áhugavert að bera
saman strýturnar hérna í Eyjafirði, sem eru grunnsjávarstrýtur, og
svo djúpsjávarstrýtur. Það er vitað að ýmsar þjóðir hafa horft
mjög til lífvirkra efna í sjónum með það í huga að þróa lyf,“ segir
Hjörleifur Einarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, m.a. í
viðtali við Ægi um hverastrýturannsóknirnar sem ýmsar stofnanir
koma að.
Sveitarfélögin geri ákveðnari kröfur á útgerðarfyrirtækin
Guðjón Hjörleifsson var um árabil bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en nú er
hann þingmaður og sem slíkur formaður sjávarútvegsnefndar þingsins.
Guðjón er í viðtali við Ægi og segir þar m.a. um byggðakvótann: „Þar
hefði ég þó gjarnan viljað sjá vissar breytingar, svo sem að sveitarfélögin
gerðu ákveðnari kröfur til útgerðarfyrirtækjanna sem fá þennan kvóta um
að leggja fram afla á móti. Mér þætti til dæmis mjög raunhæft að á móti
hverju einu tonn í byggðakvóta yrðu útgerðarmennirnir sjálfir að koma
með tvö til viðbótar. Slíkt væri ekki ósanngjarnt að mínu mati.“
Í B L A Ð I N U
Útgefandi: Athygli ehf.
ISSN 0001-9038
Ritstjórn: Athygli ehf.
Hafnarstræti 82, Akureyri
Sími 461-5151
Bréfasími 461-5159
Ritstjóri: Óskar Þór Halldórsson (ábm.)
Sími: 461-5135
GSM: 898-4294
Netfang: oskar@athygli.is
Auglýsingar: Athygli ehf.
Síðumúli 1, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Netfang: augl@athygli.is
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir
Sími 515-5206
GSM 898-8022
Netfang: inga@athygli.is
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf.
Síðumúli 1, Reykjavík,
Sími 515-5200,
Bréfasími 515-5201
Prentun: Gutenberg ehf.
Áskrift: Ársáskrift Ægis árið 2005
kostar 6800 kr.
Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5205
Á forsíðumyndinni, sem Óskar Þór Halldórsson tók,
er Halldór Pétur Ásgeirsson að fóðra þorsk í kvíum
Brims fiskeldis á Eyjafirði.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári. Eftirprentun og
ívitnun er heimil, sé heimildar getið.
25
12
18
16
34
Gæði - Öryggi - Þjónusta
Ný DHB-dælulína frá Iron Pump
Sérhannaðar til notkunar til sjós
Leitið nánari upplýsinga
Danfoss hf
Skútuvogi 6 104 Reykjavík
Sími 510 4100 • www.danfoss.is
IR
O
N
A
4
5
aegirfeb2005-Breytt-2tbl 1.3.2005 14:12 Page 5