Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Síða 19

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Síða 19
kveðnar tillögur eru ekki fyrir hendi. Er líklegt, að i þessuin flokki séu fleiri héruð en vitað er um hér syðra. Fullvíst er því um 70—80 fræðsluhéruð, þar sem meiri eða minni undirbúningur er hafinn að byggingu skólahúsa, en það er um helmingur allra farskólahverfa í landinu. Auk þess má telja líklegt, að flest hin farskólahéruðin færu einnig á stúfana, jafnskjótt og vonir væru glæddar um opinbera styrki til bygg- inganna. Vilji fólksins i dreifbýlinu er þvi ótviræður í Jjessu máli, svo sem vænta má, og áhuginn fyrir þvi fer vaxandi með hverju ári. Enda er hér um að ræða eitt hið mesta menningar- og rétt- lætismál, sem nú er á dagskrá með þjóðinni. Og lausn þessa mikilsverða máls sýnist vera nærtæk og sjálf- sögð. Tekjurnar af happdrættinu næsta áratug eftir að tímabil háskólans er útrunnið (1944) ættu að renna til byggingar skóla- húsa í dreifbýli landsins. Áreiðanlega munu koma kröfur úr ýmsum áttum um tilkall til happdrættisins, en liver á meiri rétt en æskan i landinu, einmitt sá hluti hennar, sem nú er afskiptur meira en sanngjarnt er og við unandi. Engin kreppusjónarmið mega komast að í þessu máli. Krepp- ur nútímans eiga miklu fremur rætur sinar að rekja til sál- rænna og félagslegra orsaka en fjárhagslegra, 1). e. Jijóðirnar skortir fremur vitsmuni og félagslegan Jiroska en lífsnauðsynjar, Þess vegna er óvitaháttur að spara um of til þeirra mála, sem líklegust eru til að leggja grundvöll að bjartri framtíð þjóð- arinnar. Fólkið i sveitum landsins ætti að sameinast um tillög- una um happdrættið til skólabygginga. Undirbúið málið hver i ykkar héraði og sendið áskoranir til fræðslumálastjórnar lands- ins. — Nýja háskólabyggingin. \ iðtal við próf. Alexander Jóhannesson. Vér áttum tal við prófessor Alexander Jóhannesson og spurð- umst fyrir hjá honum, hve langt væri nú komið byggingu há- skólans, en próf. Alexander er eins og kunnugt er sá maðurinn, sem af mestum áhuga og dugnaði fylgir eftir þessu máli og sér um framkvæmd þess. Lét hann oss í té eftirfarandi upplýsingar. Byggingin er orðin foklield, með gluggum og þaki. Eftir er að húða hana að utan, og verður það gert næsta sumar. Verður byggingin mjög ljós á litinn. í byggingunni að innan verða 13

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.