Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Síða 28
Flugmálin.
Mjög mikiö fjör er nú komið i flugmál þessa lands og má
heita að flugmálin séu nú að komast á þann grundvöíl, sem
byggja má á í framtiðinni.
Nú þegar eru stofnuð félög, er taka yfir allflestar liliðar flug-
málanna. Félög þessi eru vel lifandi og vex stöðugt fylgi. Tak-
mark félaganna er að koma á alhliða flugþroska með þjóðinni.
Á landinu eru þessi félög starfandi: Flugmálafélag íslands,
sem á s.l. sumri var veitt upptaka í Féderation Aeronautique In-
ternalionale, sem er alþjóðasamband flugmálafélaga. Tilgangur
félagsins er:
1. Að sameina menn með skilningi og áhuga fyrir flugmálum
í eina sterka heild, og efla áhuga fyrir flugsamgöngum hér
á landi og til annarra landa.
2. Að halda uppi útbreiðslustarfsemi um almenn flugmál með því
a) að stofna til málfunda og fyrirlestra um almenn flugmál
og flugvísindi,
b) að gefa upplýsingar og veita fræðslu um allt, er að flugi
og flugtækni lýtur. Einnig að gefa félagsmönnum tækifæri
til að kynna sér flugmál með lestri erlendra flugmála-
timarita, og, þegar ásfæður leyfa, gefa út innlent flug-
tímarit, þótt ekki komi út oftar en einu sinni á ári.
3. Að annast móttöku erlendra flugmanna og flugvísindamanna.
4. Að starfa að flugmálum vorum sem fulltrúi íslands i „Féder-
ation Aeronautique Internationale".
Félagar eru um tvö liundruð óg fimmtíu.
Svifflugfélag íslands hefir starfað af sérlega miklum krafti frá
því fyrsta. Meðlimir félagsins eru um 50 og hafa þegar tíu þeirra
lokið fyrsta flugprófinu, hinu svokallaða „A“-prófi. 1200 flug hafa
verið flogin á fyrsta flugtæki félagsins, og hafa flestir félags-
manna hlotið töluverða leikni í að stjórna flugtækinu.
Á Akureyri er einnig starfandi svifflugfélag, sem innan skamms
mun hefja smiðar á fyrsta flugtæki sínu. Félagar eru 15 og hafa
í vetur undirbúið sig undir flugið með bóklegu námi. Flugfélag
Akureyrar var stofnað s.l. sumar á Akureyri með 50.000 króna
hlutafé. Félagið hefir fest kaup á einni farþegaflugvél og mun
hefja starfsemi innan skamms. Óvist er enn hvernig starfsemi
félagsins verður hagað, en búast má við, að það komi upp föst-
um flugferðum, ef sýnt verður að landsmenn kunna að meta
starfsemi félagsins á reynsluári því, er nú fer í hönd.
22