Tímarit Máls og menningar - 01.03.1938, Page 30
ég tekið myndir af ýmsum frægustu og fegurstu stöðum lands-
ins; er þar úr miklu að velja og verkefnið nálega ótæmandi.
En garðyrkjukvikmynd yðar, sem sýnd var á garðyrkjusýn-
ingunni í Danmörku í sumar?
Jú, hún mun verða merkur þáttur i kvikmyndinni, sem sýnir
hve mikið má rækta við hverahita hér á landi. Garðyrkjumynd-
in hefir verið sýnd 30 sinnum víðsvegar í Danmörku og vakið
mikla athygli. Hverirnir og allt, sem er í samhandi við þá, er
mjög merkilegt atriði og sérkennilegt fyrir ísland.
Hvað gætuð þér hugsað yður að sýnt yrði fleira?
Æskilegt væri að atvinnu- og menningarlíf þjóðarinnar kæmi:
fram í sem flestum myndum. Einnig væri mikils vert að sýna
einkenni fólksins, sem landið byggir, meðal annars til að hnekkja
þeirri almennu skoðun úllendinga, að hér búi Eskimóar. Loks
liggur beint við að sýna legu landsins og áhrif strauina á lofts-
lag og gróður, einnig til að hnekkja þeirri skoðun, að liér sé
eilífur ís og kuldi.
Hvernig verður myndin skýrð?
Að sjálfsögðu verða talskýringar á ensku. Ennfremur er inik-
ilsvert atriði að velja íslenzka tónlist með myndinni. Hefi ég
þegar valið ýmsa parta úr þjóðlögum vorum, sem eru skyld hin-
um margbreytilegu og auðugu blæbrigðum í íslenzkri náttúru.
Verður myndatakan ekki kostnaðarsöm?
Að vísu mun hún kosta allmikið fé, en sú er bót i máli, að
mynd sem þessi bætir jafnframt úr mjög hrýnni almennri þörf,
og er þess að vænta, að allmikil eftirspurn verði eftir mynd-
inni erlendis, einkum mun hún verða eftirsótt sem fræðslumynd.
Einnig mun myndataka þessi geta komið að miklu gagni fyrir
innlenda skóla.
Margt fleira mætti taka frain um þetta, segir V. S. að lokum,
en á þessu stigi málsins er bezt að fullyrða ekki of mikið. Vig-
fús er nú að leggja af stað út á land til að taka vetrarmyndir.
Stjórnarkosning.
Á fundi Rithöfundafélagsins 4. marz voru endurkosnir i stjórn
Mál og menning: Eiríkur Magnússon, IJalIdór K. Laxness og
Halldór Stefánsson. Af hálfu Heimskringlu h/f eru í stjórninni
Kristinn E. Andrésson og Sigurður Thorlacius.
Útgefandi: Bókmenntafélagið Mál og menning.
24