Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Side 5
út af fyrir sig gerir Rauða penna mjög verðmœta í ár, fyrir
utan allt annað efni, sém í þeim verður.
Fimm bækur strax í ár.
Vegna hinna miklu og góðu undirtekta, sem Mál og menning
hefir þegar hlotið, höfum við ákveðið að gefa út sem fimmtu
bók í ár teikningar og myndir eftir Jóhannes S. Kjarval, með
inngangi eftir Halldór Kiljan Laxness. Við hugsum okkur þetta
sem fyrsta ritið í heilum flokki hóka, er Mál og menning gefur
út framvegis með myndum af listaverkum eftir islenzka og er-
lcnda listamenn. Við höfum hugsað okkur næst bók með mynd-
um eftir Ásgrím Jónsson. Þessar bækur eiga að verða i sama
broti og Vatnajökull, en varla stærri en 32 blaðsíður eða 4 arkir.
Myndirnar eftir Kjarval koma félagsmönnum i hendur samtímis
Tveim sögum.
4000 félagsmenn er þegar úrelt takmark.
Mál og menning setur sér félagatöluna 5000 fyrir X. jan. næstk.
í sambandi við það, að Mál og menning fjölgar útgáfubókum
sinum strax á þessu ári fram yfir það, sem iofað var, á hinn
hraði vöxtur félagsins að geta haldið enn óslitið áfram. Fjöldi
bókhneigðra manna stendur enn utan við félagið, og þó að Mál
og menning á þessu eina ári, sem það hefir starfað, sé orðið
mjög kunnugt i landinu, þá eru fjölmargir, sem ekki liafa átt-
að sig enn á þeim kostakjörum, sem félagið býður, eða hafa
rangar hugmyndir um stefnu þess og verið þessvegna tortryggnir
að ganga i það. En þegar öllum verður ljóst, að fyrir félaginu
vakir eingöngu víðtæk menningarstarfsemi, þá skipa menn sér
þar enn i stórum hópum. Kjörorðið á nú að verða: ekkert
heimili á landinu utan víð Mál og menning. Við eigum með
hægu móti að geta náð því nýja takmarki, er við setjum okkur
til loka þessa árs, að koma tölu félagsmanna upp í 5000.
Umboðsmenn félagsins og aðrir áhugamenn þess.
Mál og menning liefir verið einstaklega heppið með umboðs-
menn sína. Hafa þeir nærri undantekningarlaust unnið af mikl-
um dugnaði fyrir félagið, og hafa líka að eigin sögn notið stuðn-
ings fjölmargra félagsmanna. Eins og ég benti á síðast, á Mál
og menning hundruð manna starfandi út um allt iand, sem vinna
af menningarlegum áliuga fyrir félagið. Það verður aldrei of
oft tekið fram, að á þessu mikla starfi félagsmanna sjálfra bygg-
ist vöxtur og viðgangur Máls og menningar. Er við enn í vet-
3