Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Page 13
þó ekki orðið neinn fastur félagsskapur, heldur lauslegir hópar,
og væri sennilega mesl þörf fyrir þá i sveitum og smákauptún-
um, þar sem litið er um annan félagsskap. Það væri jafnvel
liugsanlegt siðar meir í sambandi við svona hópa, að þeir fengju
höfunda hókanna, er Mál og menning gefur ut, til að heimsækja
sig og ræða um bækurnar. .Það mætti hugsa sér myndun þess-
ara hópa þánnig, að einhver félagsmaður í sveit eða kauptúni
fái upp hjá okkur eða umboðsmanni nöfn þeirra félágsmanna,
sem eru í grennd við hann, fari síðan á fund einhverra þeirra
eða skrifist á við þá.
Ég hefi viljað reyfa allt þetta mál fyrir féíagsmönnum. Væri
mjög æskilegt, að heyra undirtektir þeirra, hæði um útgáfuna
og eins myndun þessara leshópa. Við eigum enga ósk heitari
en þá, að Mál og menning geti orðið meira en í orði menningar-
félag. Við göngum að þessu starfi með brennandi áhuga og trú
á ménningargildi þess. Hindr miklu undirtektir þjóðarinnar hafa
vakið hjá okkur örugga hjartsýni, og við treystum félagsmönn-
um til að vinna að því allir sem einn, að Mál og menning haldi
áfram að vaxa og eflast.
Kristinn E. Andrésson.
Koma Reumertshjónanna.
Leiklistin hefir frá öndverðu átt erfiðara uppdráttar hér á
landi en flestar aðrar listgreinir, og valda þvi auðvitað að veru-
legu ieyti ytri örðugléikar, svo sem fólksfæð, húsnæðisleysi, lítill
stuðningur hins opinbera, o. fl. Eitt veigamesta atriðið í þessu
sambandi er þó e. t. v. einangrunin, erfiðleikarnir á þvi að
bera hinar innlendu tilraunir saman við þroskaða list annarra
landa. Af því skapast óákveðinn og reikull smekkur og lágar
kröfur bæði hjá leikendum og áhorfendum. Hinn eini saman-
burður, sem kostur er á að jafnaði, eru kvikmyndirnar, en þær
hafa yfirleitt haft spillandi áhrif á leiklistina bæði hér og ann-
arstaðar.
Koma Reumerts-hjónanna á síðastliðnu vori var því menn-
ingarlegur viðburður, um leið og hún gaf leikhúsgestum höfuð-
staðarins tækifæri til að njóta góðrar listar. Leikur Reumerts-
hjónanna gaf okkur ákjósanlegt tækifæri tif að bera saman leik-
listina hér og erlendis, það sem náðst hefir og það, sem þarf að
nást, og þau hafa vafalaust opnað augu fjölda margra fyrir
hinum miklu og margvíslegu verðmætum, sem góð leiklist fel-
ur i sér.
11