Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Side 23

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Side 23
anna hefur sannarlega verið fjölþœtt og margvísleg, stundum hefur hlásið óhyrlega að visu, en oftast hefur verið haldið i áttina að settu marki og erfiðleikarnir yfirunnir með bjartsýni og þrautseigju. Athyglisverður er og siðasti kafli minningarritsins, „Ung- mennafélögin og þjóðfélagsþróunin“. Hann er fyrst og fremst merkileg heimild um atvinnu og þjóðfélagsþróunina á íslandi það sem af er þessari öld. Ennfremur sýnir höf. fram á það með ljósurn dæmum, hvernig þessi félagsskapur æskunnar strax i upphafi og til þessa dags, hefir staðið i fylkingarbrjósti hinna þjóðlegu, og jafnframt róttæku og framsæknu, afla í landinu. En það er líka ljóst af lestri þessa kafla, að málstaður efna- minni stéttanna í þjóðfélaginu hefur oftast átt drjúgan banda- mann i ungmennafélögunum, og að rit þeirra „Skinfaxi" túlk- aði lengi og vel hugsjónir og réttindamál alþýðunnar og bar hönd fyrir höfuð hennar, meðan hún enn átti þess lítinn kost að koma við málsvörn á opinberum vettvangi. Nú, þegar U.M.F.f. liefur ráðizt í þessa merkilegu útgáfu, er þess fyllilega að vænta, að henni verði vel tekið. Ritið er 450 bls. í stóru broti og prentað á vandaðan pappír. Það er prýtt fjölda mynda af forvigismönnum félaganna og frá starfsemi þeirra og mótum. I stuttu máli: Útgáfan og allur frágangur er U.M.F.Í. til sóma. Og þó eru verkin sjálf mikilsverðust, Grettistökin, sem fé- lögin hafa lyft til hagsbóta og menningarauka fyrir æsku lands- ins. Allir vinir ungmennafélaganna óska áreiðanlega, að þau verði þó enn fleiri og stórbrotnari næsta aldarþriðjunginn. Megi þetta rit verða öflug hvatning til hinnar framsæknu æsku í landinu til að standa saman á verði um það, sem unnið er og lil að sækja fram til nýrra og stærri sigra. Guðm. Vigfússon. Jóhannes úr Kötlum: Hrímhvíta móðir. Söguljóð. 1. Ég sat og rabbaði við gamlan og greindan hagyrðing eitt kvöld- ið fyrir skennnstu og naut þess, hve gaman hann hafði af þvi að tala um rímur og annan kveðskap og hve vel og skemmti- lega hann fór með visur þær, sem hann lét mig heyra. Margt af þeim var prýðilega ort og ekki sízt það, sem var eftir hann sjálfan, en sumt þótti mér ærið skotið með kenningum og óvenju- legum orðuiu, sem nú sjást eða heyrast sjaldan. En dýpst snart mig þó sú innilega játning hans, er hann sagði, rétt áður en 21

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.