Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Page 29
.arkaflar, sem liafa sígilt bókmenntalegt verðmæti, t. d. kaflarnir um skáldin Dsjambúl og Púskin. Lýsingin á hinum ægilega Stalin mun þykja eftirtektarverð. Viða eru sprettir harðrar ádeilu og hvassasta háð. Þar er penni hins djarfa bardagamanns, sem tel- ur það ekki nóg að vera skáld og skynja öðrum dýpra ófull- komleika mannsins og sárar þjáningar, heldur berst af skerpu og hugrekki fyrir fegurra lífi mannsins undir nýjum þjóðfélags- háttum. Þetta varnar samt ekki höfundinum að geta séð hlut- ina frá humoristísku sjónarmiði, kýmt og hlegið, þegar svo á við. T. d. dettur það í hann á einum stað i bókinni, að fara að yrkja á mjög islenzka vísu um bóndann í Kreml. Síðasta ■erindið er þannig: En nú er annar uppi, öld nýtur snilldarmanns. Það er líbblegur litur i túni og laukur i garði hans. í sluttu máli: Gerska æfintýrið er enn eitt snilldarverkið frá hendi þessa frábæra skálds. Eg trúi engum til að fremja það andlegt pislarvætti við sjálfan sig að neita sér um að lesa hana, og enginn þarf að óttast hana að því leyti, að hún komi inönn- um til að taka upp rússneskar siðvenjur, ekki gumar höfundur- inn svo af þeim. Kr. E. A. Næstu bækur Heimskringlu. Útgáfustarfsemi Heimskringlu verður meiri á þessu ári en verið hefir undanfarið. í vor koniu út hjá forlaginu hækur eft- tvo snjöllustu rithöfunda þjóðarinnar: íslenzkur aðall eftir Þór- berg Þórðarson og Höll sumarlandsins eftir Halldór Kiljan Lax- ness, báðar mikil ritverk. Þó aðeins sé litið á málsnilld og stíl þessara höfunda, eru bækur þeirra ómetanleg verðmæti til að læra af þeim íslenzkt mál og njóta þess í fullri auðlegð. And- vökur, 6. bindi, eftir Stephan G. Stephansson eru nærri full- prentaðar. Þær eru ómissandi eign fyrir alla þá, sem eiga fyrri bindin. Sum af beztu kvæðum Stephans' eru í þessu bindi. Eftir miðjan septeinber kemur bók eftir Sigurð Einarsson, docent. Hún heitir Líðandi stund. Eru valdar i þessa bók heztu ritgerðir Sig- urðar frá síðustu árum, en mikill liluti af efni hennar hefir ald- rei birzt áður. Af hinu nýjasta er útvarpserindi það, sem Sig- urður hélt i Kaupmannahöfn í sumar og vakti athygli stórblað- anna þar. Ennfremur er að koma ný bók, Gerska æfintýrið eftir Halldór Kiljan Laxness. Hún er um Sovétríkin, dvöl höfundar- 27

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.