Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Qupperneq 31

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1938, Qupperneq 31
en nokkru sinni fyrr, nærri 80 af þeim, er prófið stóðust, verða frá að hverfa, og kappið við að komast inn í skólann, fá nógu háa einkunn, er vægast sagt óheilbrigt. í stað þess að hinir útvöldu 25 nemendur komust í fyrra af með 7 stig í meðal- einkunn, þurfti nú 8 stig. Það er orðin margra mánaða þrekraun lærðustu kennara að kenna börnum undir 1. hekk Menntaskólans. Frá því í vor liafa orðið allmiklar umræður um þelta mál i dagblöðunum, og forstöðumenn heggja menntaskólanna liafa lát- ið í ljósi álit sitt á málinu. Sigurður Guðmundsson skólameist- ari lieldur því fram, sem er og vitanlegt þeim, er þekkja til húsakynna Menntaskólans i Reykjavík, að húsnæðisleysið eilt saman er ekki frambærileg ástæða fyrir takmörkuninni. Má t. d. benda á það, að nota mætti til kennslu húsrúm bókasafns- ins íþöku og að undirbúningskennsla fyrir um 70 börn, er und- ir inntökupróf ætla að ganga, fer fram i húsakynnum skólans síðara hluta vetrar. Annað mál er það, að sú offylling skól- ans, er leiða myndi af því, að húsakynni hans væru notuð til hins ýlrasta, er mjög slæm, bæði frá menningarlegu og heilsu- fræðilcgu sjónarmiði, eins og Pálmi Hannesson rektor bendir á. Það fæst engin varanleg lausn á þessu máli, nema með því að reisa nýjan menntaskóla. Bygging nýs menntaskóla er krafa, sem alls ekki má hvika frá. Aðrar ráðstafanir, eins og t. d. sú, að leggja niður gagnfræðadeild Menntaskólans og koma upp öðr- um skóla fyrir hana, eru algerlega gagnslausar og verða til þess eins að tefja fyrir því, að nokkuð sé gert í málinu. Við það að gagnfræðadeildin væri lögð niður, losnuðu aðeins tvær kennslustofur, auk þess sem reynast myndi óheppilegt að slíta hana úr tengslum við Menntaskólann. Ný menntaskólabygging væri eftir sem áður knýjandi nauðsyn, og það er verkefnið, sem verður að fara að berjast fyrir af einhverri alvöru, að leyst sé. En nýr menntaskóli verður ekki reistur á einu eða tveim- ur árum. Það kostar eflaust all-langan tíma að koma þessu máli í framkvæmd, enda þótt strax væri sýnd einhver viðleitni til að hafast eitthvað að. Og meðan beðið er eftir nýrri mennta- skólabyggingu, verður alls ekki hægt að una þeirri takmörk- un, sem nú er. Það verður til bráðabirgða og það strax í baust, að bæta við einni kennslustofu handa 1. bekkjar nemendum. Þar með gætu 25 nýir nemendur af þeim, sem prófið stóðust í vor, fengið aðgang að Menntaskólanum, og bætir það dalitið úr því óréttlæti, sem nú á sér stað. Það eru engin haldbær rök fyrir því, að þelta sé ekki hægt. En jafnframt verður að halda á loft kröfunni um nýja menntaskólabyggingu. Eins 29

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.