Ægir - 01.06.2013, Síða 26
26
F I S K M A R K A Ð I R
„Það bara fínn gangur í þessu
og talsvert mikil viðskipti að
fara fram,“ segir Steingrímur
Óli Hákonarson, framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðs Siglufjarð-
ar. Talsvert er um landanir á
rækju og línubátar, færabát-
ar, trollbátar og togarar eru
að landa hjá markaðnum.
„Við erum að fá fisk frá
Samherja, þ.e.a.s. frá Björg-
úlfi, Björgvin og Kaldbaki,
aðallega ufsa, kola, hlýra og
annan aukfisk. Framboðið er
ágætt og við erum búnir að
selja á fjórða þúsund tonn frá
áramótum,“ segir Steingrímur
léttur í bragði enda salan það
sem af er ári orðin meiri en
fyrir sama tímabil í fyrra sem
var mettímabil.
Offramboð framkallaði
verðlækkun
„En verðið er bara lélegt. Það
á við um allan fisk. Staðan er
ekki beysin úti og fiskverð
lækkaði líka þegar strand-
veiðiflotinn hóf veiðar. Við
það varð bara offramboð á
mörkuðum og fiskverð lækk-
ar, það er alveg augljóst. Við
erum á svæði B í strandveið-
um og um næstu mánaðamót
má róa á öllum svæðum.
Yfirleitt hefur verð hækkað
þegar svæði A hefur verið
lokað. En almennt má segja
að sjávarafurðir hafi lækkað
allt í kringum okkur með
minni kaupgetu á erlendum
mörkuðum. Kreppan er dálít-
ið að narta í okkur,“ segir
Steingrímur.
Verð á ýsu hækkar
Hann segir mikið um landan-
ir á Siglufirði og þar sé rækj-
an fyrirferðamikil. Einir sjö
rækjubátar eru að landa
þessa dagana en talsverð
rækjuveiði hefur verið úti fyr-
ir Norðurlandi. Að meðaltali
hefur hver bátur verið að
landa á bilinu 20-25 tonnum
og allt fer þetta í vinnslu á
Siglufirði. Tveir bátanna
landa á Hvammstanga og er
aflanum ekið til Siglufjarðar
til vinnslu.
„Þegar mikið framboð er
dag eftir dag hlýtur það að
gerast að verðið gefi eftir.
Hins vegar hefur verið mjög
hátt verð á ýsu, en vandinn
er að það er lítill ýsukvóti til
staðar. Það er ýsa út um allan
sjó og það mætti alveg auka
ýsukvótann. Ýsuverðið lækk-
ar ekkert á mörkuðum,
hækkar bara ef eitthvað er,“
segir Steingrímur.
Stefnir í að metið frá
í fyrra verði bætt
Afli streymir í gegnum húsið á leið til vinnslustöðva.
Steingrímur Óli Hákonarson, framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs Siglufjarðar.