Ægir - 01.07.2013, Side 10
10
F I S K E L D I
Vöxtur fiskeldis á Íslandi hefur
verið hægari en ætla mætti,
þ.e. vilji Íslendingar gegna
sama hlutverki við matvæla-
framleiðslu úr fiskmeti og þeir
hafa gert hingað til. Arnljótur
Bjarki Bergsson sviðsstjóri
Vinnslu, virðisaukningar og
eldis hjá Matís telur að frekari
rannsóknir og þróunarvinnu
þurfi til að efla fiskeldi hér-
lendis. Samkvæmt spám síð-
ustu ára mun eftirspurn eftir
fiskmeti og sjávarfangi aukast
umtalsvert en ljóst þykir að
veiðar á villtum fiski muni
ekki anna þeirri eftirspurn ef
fram fer sem horfir. Því eru
vonir bundnar við fiskeldi og
að eldisfiskur muni mæta auk-
inni eftirspurn.
2% af heimsaflanum en
0,01% í eldisfiski
„Fiskeldi hefur vaxið hratt á
heimsvísu, en sami gangur
hefur ekki verið í íslensku
fiskeldi,“ segir Arnljótur
Bjarki. Hann segir Íslendinga
hafa aflað upp undir 2% af
heimsafla fisks, en Íslending-
ar ali eingöngu um 0,01% af
heildar fiskeldisframleiðslu
heimsins.
„Vilji Íslendingar gegna
sama hlutverki við matvæla-
framleiðslu úr fiskmeti hér
eftir sem hingað til er ljóst að
mikið verk er fyrir höndum,“
segir Arnljótur og bætir við
að Íslendingar hafi gert sér
vonir um mun öflugra fisk-
eldi hér á landi en reyndin
hefur orðið.
„Hvort sem sjónum er
beint að fæðuöryggi á norð-
urslóðum eða öryggi þeirra
matvæla sem framleidd eru
hér og seld víða um heim er
augljóst að íslenskt fiskeldi
verður að vaxa. Því verður að
vanda til verka við rannsókn-
ir í þágu fiskeldis og við þró-
un þess hér á landi. Bleikja
sem hefur fram að þessu bor-
ið uppi fiskeldi á Íslandi er
smátegund í hnattrænu sam-
hengi,“ segir Arnljótur.
Lengi býr að fyrstu gerð
Arnljótur segir að við upp-
byggingu á eldi sé að mörgu
að hyggja og mikilvægt að
beita vönduðum faglegum
vinnubrögðum á öllum stig-
um eldisferla. „Margir þættir,
þar á meðal hreysti fiska, er
háð arfgerð þeirra. Vísbend-
ingar eru um að þróun á
fyrstu stigum eldis geti skilað
ávinningi á síðari stigum og
því þarf að huga vel að fyrstu
gerð í eldinu þar sem gjörvi-
leiki fiska getur komið í ljós
snemma á lífsleiðinni. Til að
hámarka arðsemi fiskeldis
þarf að vanda atlæti fiskanna
og huga að hagkvæmni,
einkum við fóðurgerð og
fóðrun.“
Veldisvöxtur ekki sjálfgefinn
„Sú var tíðin að spár um fisk-
eldi í framtíðinni virtust
byggja á veldisvexti en nú
eru spár Landsambands fisk-
eldisstöðva grundvallaðar á
varfærnara mati þ.e. spá,
háspá og lágspá. Þó Íslend-
ingar ætli sér ekki að tvö-
hundruðfalda fiskeldisfram-
leiðslu fram til 2030 er ljóst
að tækifæri eru til aukins eld-
is á Íslandi. Eldi á framandi
tegundum kann að reynast
tekjumyndandi fyrir samfé-
lagið, einkum þar sem aldar
tegundir gefa af sér afurðir
sem seljast við hátt verð s.s.
sæeyra eða Senegalflúra. Eins
getur gæðalax skapað gjald-
eyri. Þó okkar sigur vinnist
varla á magni geta gæði skil-
að verðmætum. Innkoma
nýrra aðila í íslenskt fiskeldi,
á borð við Fjarðarlax, Arnar-
lax og Stolt Sea Farm, gefur
fyrirheit um að Íslendingar
geti haslað sér völl í eldi fiska
sem seljast á vel borgandi
mörkuðum.“
Að mati Arnljóts verða nýir
og stórir sigrar vart unnir í
fiskeldi nema með öflugu
rannsóknar- og þróunarstarfi.
Hið sama gildi hvorttveggja
um eldi og veiðar að meiru
Eldi á þorski hefur verið reynt hér á landi síðustu ár og gæti átt eftir að verða umfangsmeira í framtíðinni.
Ölum við fiska á diska
framtíðarinnar?