Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.2013, Síða 18

Ægir - 01.07.2013, Síða 18
18 fengu þau síðan 30% skerð- ingu á kvóta og þar með hurfu þessi 30 tonn út úr bókhaldinu en eftir stóð skuldin við bankann. Viðar segir þó að starfs- skilyrðin innan sjávarútvegs- ins hafi ekki verið upp á marga fiska undanfarin ár. „Afkoman hefur verið þokkaleg en þessi pólitíska óvissa um framtíð sjávarút- vegs á Íslandi hefur verið al- gjörlega óviðunandi. Það er leiðinlegt til þess að vita að stór hópur fólks í landinu hefur á engan hátt kynnt sér þær leikreglur sem eru í gangi innan sjávarútvegs og þetta á jafnt við um stóran hluta þjóðkjörinna fulltrúa á Alþingi.“ Sjávarútvegurinn er vel rekin atvinnugrein Hann bendir á að þrátt fyrir allt sé íslenskur sjávarútvegur vel rekinn á sama tíma og hann njóti ríkisstyrkja alls staðar í kringum okkur og sé á framfærslu skattborgaranna í þeim löndum. „Við hljótum að vilja arð- bæran sjávarútveg sem fram- leiðir eftirsótta vöru og sem skilar arði til samfélagsins og fyrirtækjanna sem vilja byggja sig upp. Það kostar allt að fimm milljörðum króna að láta smíða uppsjáv- arskip. Við erum með úreltan flota í dag. Greinin þarf því að fá svigrúm til að geta end- urnýjað skipaflotann og fjár- fest í húsnæði, tækjum og tækni til að vera á meðal þeirra bestu. Viðar segir að vaxtasprot- inn í sjávarútvegi felist ekki síst í aukinni menntun starfs- manna, sjálfbærni fiskistofn- anna og aukinni nýtingu á hráefninu. „Við vonumst til þess að kvótarnir eigi eftir að aukast. Við sjáum þorskstofninn dafna og vonandi verður framhald á því. Það er góður gangur í uppsjávarveiðum, makrílnum og norsk-íslensku síldinni, þó ákveðnar blikur séu á lofti með bæði síld og loðnu. Það þarf nefnilega ekki mikið að breytast í haf- inu. Við erum að eltast við villtan fisk sem virðir enga lögsögu og við erum að upp- lifa breytt hitastig í sjónum sem getur breytt göngu- mynstri fisks. Margir óvissu- þættir eru því til staðar en við vonum að umhverfið verði okkur hliðhollt,“ segir Viðar. Unnið að flökun, snyrtingu og pökkun. Húsnæði Narfa er 750 fermetrar og byggði fjölskyldan það árið 1999. F I S K V I N N S L A

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.