Ægir

Volume

Ægir - 01.07.2013, Page 22

Ægir - 01.07.2013, Page 22
22 Hámarkaðu afköstin á sjó með tækjum frá Friðrik A. Jónssyni ehf FAJ Friðrik A. Jónsson ehf Friðrik A. Jónsson ehf Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ S: +354 552 2111 - F: + 354 552 2115 www.faj.is Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað AP70 SAILOR Kallkerfi Peltor og SAILOR SAILOR Inmarsat-C og Mini-C SAILOR VHF 6222 PX Trollkerfill i Sjá www.faj.is skóla, leikskóla, skyndibita- staði og fleiri staði. Fyrirtæk- ið er með samning við Reykjavíkurborg þar sem eru 120 mötuneyti. Um 20 manns starfa hjá Grími kokk og er fyrirtækið því talsverður hlekkur í at- vinnulífinu í Eyjum. Það já- kvæða við starfsemina er ekki síst sú fullnýting á sjáv- arafurðum sem þar fer fram. „Það er gott að fullvinna líka fiskinn en ekki einungis að senda hann út óunninn í gámum, þótt það sé nauðsyn- legt með. En við eigum að gera mun meira af því að fullvinna fiskinn.“ Flutningskostnaðurinn rífur í „Sjávarfangið er uppistaðan í okkar framleiðslu og hráefnið er héðan úr Eyjum og alltaf brakandi ferskt. Enda stutt á miðin og stutt niður á fisk- markað. Hér er ferskasti fisk- ur í heimi, það er ekki flókn- ara en svo,“ segir Grímur. Fyrirtækið er nú farið velta um 240 milljónum króna á ári. Flutt var í nýja húsnæðið í desember síðastliðnum og um sama leyti byrjaði fyrir- tækið að kaupa fisk á mark- aði og flaka hann á neðri hæð hússins þar sem eru móttaka og vinnslusalur. Grímur segir að ekki sé hægt að hugsa sér betri stað- setningu á matvælafram- leiðslufyrirtæki en Vest- mannaeyjar þar sem hráefnið er hinum megin við þrösk- uldinn. „En á móti kemur að við þurfum að flytja nánast öll önnur aðföng hingað til Eyja, þ.e. umbúðir, krydd, lauk, hveiti og þess háttar. Síðan þurfum við líka að flytja full- unna vöruna aftur upp á land þar sem stærsti markaðurinn okkar er. Þannig að flutnings- kostnaðurinn er ansi stór lið- ur í rekstri fyrirtækisins,“ sagði Grímur. Hann hafði líka áhyggjur af því þegar viðtalið fór fram, hvort Herjólfur kæmist yfir- leitt til lands þennan daginn því það hafði blásið hressi- lega af suðaustri og þjóðveg- urinn um hafið til lands V E S T M A N N A E Y J A R Starfsmenn hjá Grími kokki eru um 20 talsins. Þarna er unnið að því að pakka inn nætursaltaðri ýsu í neytendapakkningar.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.