Ægir - 01.09.2010, Side 17
17
F R É T T I R
skyrið. Allt eru þetta úrvals
vörur sem njóta ímyndar
landsins og styrkja hana um
leið. Við sjáum að sóknarfær-
in eru mýmörg. Sá árangur
sem hefur t.d. náðst í Whole
Foods verslununum í Banda-
ríkjunum er undraverður.
Þetta eru hágæðaverslanir
miðaðar að efnameiri einstak-
lingum sem eru meðvitaðir
um heilsusamlegt líferni og
vandaðar matvörur og verðin
eftir því. Þær eru því einn
besti hugsanlegi vettvangur-
inn fyrir sölu á íslenskum
sjávarafurðum erlendis. Um
leið er hægt að nota afurðirn-
ar í landkynningarskyni. Millj-
ónir Bandaríkjamanna sjá ís-
lenskar afurðir í verslunum
Whole Foods og með góðri
kynningu er hægt að vekja
forvitni þeirra á Íslandi. Þetta
eru ferðamenn sem við vilj-
um gjarnan fá til landsins.
Þeir eru yfirleitt vel efnaðir
og hafa mikinn áhuga á
hreinni og óspilltri náttúru,
sjálfbærum afurðum og end-
urnýjanlegum orkulindum. Ís-
land uppfyllir öll þessi skil-
yrði og í því liggja tækifæri
okkar,“ segir Ingvar.
Að tryggja sjávarafurðum sess
í lífi neytandans
Finnbogi Baldvinsson, for-
stjóri, segir stærstu sóknarfæri
Icelandic Group í dag liggja í
því hvernig fyrirtækið tryggi
afurðum sínum sess í daglegu
lífi neytandans. Það feli í sér
heildstæðan skilning á því
hver er neytandi vörunnar,
hverju hann er að leita eftir
og hvernig hægt sé að mæta
væntingum hans. Og vonandi
gera betur! Til þess þurfi nýj-
an hugsunarhátt sem sameini
alla þætti virðiskeðjunnar, allt
frá veiðum og vinnslu til virð-
isaukandi framleiðslu á vöru
sem uppfyllir væntingar neyt-
andans um gómsæta máltíð.
„Í þróuðum neytendasam-
félögum er gríðarlegt magn af
upplýsingum um kauphegð-
un neytenda. Þær eru svo ná-
kvæmar að auðvelt er að skil-
greina þrönga markhópa fyrir
sérstakar þarfir eða breiða
markhópa fyrir dagleg inn-
kaup og þróa afurðir sem
uppfylla þarfir þessarar eftir-
spurnar.
Tökum sem dæmi inn-
kaupaferð í stórmarkað.
Venjulegur neytandi horfir á
vöruúrval af um 50.000 afurð-
um í hverri ferð. Að jafnaði
Ú T F L U T N I N g U R & m A R K A Ð S m á L
Finnbogi Baldvinsson, forstjóri Icelandic Group.
Nokkrar staðreyndir um Icelandic Group
• Stofnað árið 1942
• Icelandic Group er eitt 10 stærstu
sjávarútvegsfyrirtækja í heimi og eitt 5 stærstu
sjávarútvegsfyrirtækja í Evrópu
• Veltir um 180 milljörðum króna á ári eða sem
jafngildir um milljarði máltíða.
• Dótturfélög Icelandic eru nú 30 talsins í 14 löndum.
• Starfsmenn eru um 3.700.
Ingvar Eyfjörð, aðstoðarforstjóri Icelandic Group.
Ísfell ehf • Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Akureyri - Fiskitangi
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
www.isfell.is
Allar gerðir bindivéla
Stál- og plastbönd
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n