Ægir - 01.09.2010, Page 18
18
F R É T T I RÚ T F L U T N I N g U R & m A R K A Ð S m á L
mun sami aðili skoða um 150
afurðir í hverri ferð og þar af
rata einungis um 40 afurðir í
innkaupakerruna. Baráttan
um hillupláss í stórmörkuð-
um í dag er gríðarlega hörð.
Spurningin er því; hvernig
ætlar þú að koma þinni vöru
í kerruna, hvernig greinir þú
þig frá öðrum afurðum og
hvernig getur þú gert það á
þessu sekúndubroti sem
neytandinn hefur til að
ákveða sig.“
Vöruúrvalið aukið markvisst
„Árangur í markaðsstarfi og
vöruþróun hefur verið góður
á yfirstandandi ári,“ segir
Finnbogi og nefnir að Ice-
landic Group hafi átt einstak-
lega farsælt samstarf við
stærstu matvörukeðjur í Evr-
ópu sem allar kalli eftir nýj-
um afurðum.
„Innan fyrirtækjasamstæð-
unnar er stunduð öflug vöru-
þróun þar sem markvisst er
unnið að því að breikka
vöruvalið í takti við vænting-
ar neytenda. Til þess þarf
víðtækar markaðsrannsóknir
um neytendahegðun, skilning
á því hverjar séu helstu breyt-
urnar að baki ákvarðanatöku
viðskiptavina og síðast en
ekki síst að sjá fyrir framþró-
un í neyslumynstri á sjávar-
fangi eftir mörkuðum.
Gott dæmi um þetta er ný
sjálfstæð vörulína tilbúinna
fiskrétta Icelandic Group í
Bretlandi sem kallast The
Saucy Fish Co. Við þróun
vörunnar var unnið með yfir-
gripsmiklum markaðsrann-
sóknum um kauphegðun
neytenda. Þar kom fram að
viðskiptavinir eru að leita sér
að „máltíð“ en ekki bara fisk-
inum eins og hann kemur úr
sjónum. Margir neytendur
mikla matargerð úr sjávar-
fangi fyrir sér, finnst lyktin
ekkert sérstök, áferðin skrýtin
og þeir sjá ofsjónum yfir því
hvernig matreiða skal máltíð-
ina. Lykilatriðin eru því þæg-
indi og einfaldleiki. Ennfrem-
ur kom fram að þeir neytend-
ur sem kaupa sósur með mat
eyða þriðjungi meira í fisk-
meti en aðrir sem aðeins
kaupa fisk. Í framhaldi af
þessum niðurstöðum, var
sjálfstæð vörulína tilbúinna
fiskrétta undir nafni The
Saucy Fish Co. þróuð. Varan
er í sérhönnuðum umbúðum,
fiskurinn kemur meðal ann-
ars í sérstökum bökunarpoka
svo ekkert þarf að koma við
hann og síðast en ekki síst
fylgir tilheyrandi sósa með
hverjum rétti. Mikið var einn-
ig lagt í hönnun umbúðanna
og hvernig mætti ná fram að-
greiningu frá þeim ótrúlega
vörufjölda sem í boði er.
Saucy Fish Co. er frábært
dæmi um hvernig hægt er að
ná árangri við sölu og mark-
aðssetningu á sjávarfangi en
varan hefur notið mikilla vin-
sælda hjá verslunum Tesco í
Bretlandi. The Saucy Fish Co.
hefur ennfremur hlotið fjölda
verðlauna, m.a. hin eftirsóttu
Seafood Prix d’Elite verðlaun
sem veitt eru á alþjóðlegu
sjávarútvegssýningunni í
Brussel. Verðlaun The Saucy
Fish Co. voru sérstök verð-
laun fyrir vörulínu og ein
fimm sérstakra verðlauna sem
veitt eru á sýningunni. The
Saucy Fish Co. vann einnig
hönnunarverðlaun Marketing
Magazine nú á dögunum og
skákaði þar ekki minni vöru-
merkjum en Guinness og
Brylcreem.“
- Og er von á fleiri mark-
aðsnýjungum frá IG?
„Eins og ég sagði áður og
segi aftur; Icelandic Group er
sérfræðingur í sjávarfangi.
Starfsfólk okkar er hafsjór af
reynslu og sérfræðiþekkingu
á öllu því sem viðkemur
þessari virðiskeðju við að
koma fiskinum úr sjónum og
yfir á disk neytandans. Með
framþróun í veiðum og
vinnslutækni, með hagkvæm-
ari flutningsleiðum, með stór-
auknum markaðsrannsókn-
um, með markvissri vöruþró-
un og skilvirkri markaðs-
færslu mun okkur því takast
að bregðast við síbreytilegum
markaði, síbreytilegri eftir-
spurn og gera íslenskt sjávar-
fang áfram að órjúfanlegum
hluta af daglegri neyslu
hundruða milljóna manna um
allan heim.
Okkar sóknarfæri felst í
því að gera þessa virðiskeðju
að upplifun neytandans!“
Saucy Fish línan í Bretlandi er ein nýjasta vörulína fyrirtækisins og byggir á yfirgripsmiklum markaðsrannsóknum um kaup-
hegðun neytenda.
„Í þróuðum neytendasamfélögum er gríðarlegt magn af upplýsingum um kauphegðun neytenda. Þær eru svo nákvæmar að
auðvelt er að skilgreina þrönga markhópa fyrir sérstakar þarfir eða breiða markhópa fyrir dagleg innkaup og þróa afurðir sem
uppfylla þarfir þessarar eftirspurnar,“ segir Finnbogi Baldvinsson.