Ægir - 01.09.2010, Blaðsíða 28
28
Vaxandi þáttur í sjávarútvegi
að undanförnu hefur verið
vinnsla og útflutningur á
ferskum fiskafurðum. Um-
búðarnar skipta miklu um
gæði afurðanna þegar á leið-
arenda er komið og því er
mikilvægt að vanda val þeirra.
Umbúðalausnafyrirtækið Sam-
hentir býður fiskframleiðend-
um allar lausnir í pökkun og
umbúðum og þar á meðal eru
endurvinnanlegar umbúðir,
sem nú eru að ryðja sér rúms.
„Í ferska fiskinum bjóðum
við fiskikassa sem eru úr
endurvinnanlegum efnum.
Þetta eru kassar úr sveigjan-
legu efni, brotna ekki í
geymslu og flutningi, henta
bæði í ferskt og frosið, henta
vel í flug eða gáma og eru fá-
anlegir í stöðluðum stærðum
frá 3 upp í 25 kíló. Þessa
gerð umbúða hafa margir val-
ið umfram frauðplastið, bæði
hér á landi og erlendis,“ segir
Gísli Sveinsson, segir Gísli G.
Sveinsson, sölustjóri hjá Sam-
hentum. Fyrirtækið er eitt
það umsvifamesta hér á landi
í markaðssetningu og sölu á
vörum til framleiðslu og
pökkunar í matvælaiðnaði og
er sjávarútvegurinn stærsta
einstaka atvinnugreinin í við-
skiptavinahópi Samhentra.
Umbúðir skipta máli á mark-
aðnum
Nú í sumar var stórum hluta
af útfluttum humri hér á landi
pakkað í endurvinnanlegu
umbúðakassana og þeir hafa
verið að vinna sér sess víðar í
sjávarútveginum. Gísli segir
gerð og útlit umbúða skipta
máli. „Við höfum mörg dæmi
þess að þegar slagur er í ein-
stökum afurðum á markaði
þá getur á endanum skipt
máli hvernig umbúðirnar eru,
bæði að gerð og útliti,“ segir
Gísli og reiknar með að vöxt-
ur verði í umbúðasölu vegna
ferskfiskútflutnings á kom-
andi misserum.
Gísli segir mikilsverðan
Ein af nýjustu pökkunarlínunum frá Samhentum. Hún var sett upp hjá Ísfélaginu á Þórshöfn nú í sumar.
U m B Ú Ð A m á L
Umbúðalausnafyrirtækið Samhentir:
Endurvinnanlegar umbúðir
fyrir ferkfiskútflutninginn
Gísli G. Sveinsson, sölustjóri Samhentra.