Fréttablaðið - 27.06.2015, Qupperneq 40
FÓLK|HELGIN
Þetta verður róleg og notaleg stund. Það eru allir að sækjast eftir því að slaka á og það vantar
vettvang til þess í vestrænu samfélagi.
Það eru hreinustu töfrar að vera ofan í
heitu vatninu. Hönnunin á flothettunni
er líka svo frábær, líkaminn nær að gefa
algerlega eftir,“ segir Guðrún Kristjáns-
dóttir, sem í samvinnu við Jóhönnu
systur sína og Unni Valdísi Kristjáns-
dóttur vöruhönnuð stendur fyrir sam-
floti í Gömlu lauginni á Flúðum í kvöld.
Þátttakendur klæðast flothettu og
fótaflotum, hönnun eftir Unni Valdísi,
og segir Guðrún þyngdarleysið endur-
nærandi.
„Það er svo mikið álag á hryggnum
alla daga en í þessari stellingu, á floti,
hvílum við hrygginn og blóðflæðið get-
ur farið annað. Það hefur því heilnæm
áhrif á önnur líffæri að vera í þyngdar-
leysi. Ungir krakkar hafa prófað flotið
hjá okkur í Seltjarnarneslaug, til þess
að „prófa að vera eins og geimfari“.
Þetta kemst kannski næst því. Það er
einnig þekkt að slökun í vatni skapar
gott flæði milli hægra og vinstra heila-
hvels, þetta á að vera frábært fyrir
sköpunargáfuna. Vísindalegar rann-
sóknir styðja það.“
Áður hefur Systrasamlagið staðið
fyrir samfloti í Seltjarnarneslaug en
þetta er í fyrsta sinn sem viðburður-
inn fer fram uppi í sveit. Guðrún segir
Gömlu laugina á Flúðum henta ein-
staklega vel til samflots en á döfinni er
að standa fyrir sveitasamfloti víðar um
landið.
„Það eru margar fallegar laugar um
allt land. Gamla laugin á Flúðum er al-
gjör gimsteinn úti í náttúrunni og því
ákváðum við að byrja þar. Þar er líka
lítill hver sem gýs reglulega og það er
hreinlega eins og að hlusta á hjartslátt
jarðar. Þarna næst sterk tenging við
náttúruna og fólk endurnærist alger-
lega. Fyrir þá sem kunna hugleiðslu-
tækni er þetta besta umgjörð sem hægt
er að hugsa sér,“ segir Guðrún.
„Við verðum með smá jógaupphitun
á undan og svo veitingar á eftir,“ bætir
hún við en þær systur eru báðar „á kafi
í jóga“, að sögn Guðrúnar.
„Við erum á lífrænu línunni en
Systrasamlagið er heilsuhof. Við
breyttum gamalli hamborgarasjoppu
í heilsubúð. Í jóganu og samflotinu
tökum við andann með í efnið. Það er
gaman að gefa eitthvað til samfélagsins
með þessu.“
SLÖKUN
„Þarna næst
sterk tenging
við náttúruna og
fólk endurnærist
algerlega.“
ÞYNGDARLEYSI Guðrún segir jafnvel hægt að lýsa upplifuninni af því að fljóta eins og þyngdarleysi sem geimfarar upplifa. Flot-
hettan og fótaflotin sem þátttakendur nota í samflotinu í kvöld hannaði Unnur Valdís Kristjánsdóttir. MYND/GUNNAR SVANBERG
SYSTRASAMLAGIÐ Systurnar Jóhanna og Guðrún Kristjánsdætur standa
fyrir samfloti ásamt Unni Valdísi Kristjánsdóttur vöruhönnuði á Flúðum í kvöld.
MYND/STEFÁN
EINS OG GEIMFARI
SVEITASAMFLOT Á FLÚÐUM Systrasamlagið stendur að samfloti í Gömlu
lauginni á Flúðum í kvöld í samvinnu við Float. Þær segja þyngdarleysið í
vatninu ýta undir algera slökun og fólk komi endurnært upp úr.
Alkóhól
Vín, bjór eða
eftir lætis
kokteillinn
þinn geta
valdið
brjóst sviða,
sérstaklega
þegar neytt
er með stórri
máltíð. Alkóhól
slakar á
hringvöðva
vél indans og því
ná maga sýrurnar að
flæða upp í vélindað.
Kaffi
Kaffi, gos, te, íste, annar vökvi
eða matur sem inniheldur
koffein ætti að varast því
það getur valdið brjóstsviða.
Hér skiptir máli að passa
skammtastærðirnar og huga að
koffeinmagninu sem innbyrt er.
Hnetur, ostur, lárpera
og djúsí steik
Eiga það sameiginlegt að
vera feitur matur. Fita hægir
á tæmingu magans sem getur
aukið þrýsting á hringvöðva
vélindans og valdið brjóstsviða.
Súkkulaði
Auðvitað, það getur verið hlaðið
koffeini og fitu, en súkkulaði
getur líka valdið brjóstsviða.
Súkkulaði slakar nefnilega á
hringvöðva vélindans þannig
að það eykur líkur á brjóstsviða.
Spurning um að pakka bara
saman öllu súkkulaðinu sem þú
átt og gefa það.
Frutin® getur í
alvörunni hjálpað þér
að neyta þess arar
dásamlegu fæðu án
þess að eiga á hættu
að fá óþægindi eftir
máltíðina.
Sítrusávextir
Appelsínur, greipaldin og ávaxta-
safar eru mjög súrir, sérstaklega
þegar neytt er á tóman maga.
Fæða sem getur valdið brjóstsviða
sýru stig í maganum án þess að
nota lyfseðils skyld lyf.
Takið 1-2 töflur eftir þörfum.
Barnshafandi konur geta notað
Frutin. Börn undir 12 ára mega
ekki nota Frutin.
Inniheldur eingöngu náttúruleg
efni ss. Dolomita kalk og
piparmyntu.
Frutin fæst í næsta apóteki,
heilsuverslunum og einnig í
heilsuhillum stórmarkaðanna.
Frutin eru náttúrulegar
tyggitöflur sem eru framleiddar
af einkavarinni að ferð við
að nýta trefjar sem gera það
að verkum að þegar þær eru
tyggðar myndast róandi, froðu-
kennt lag í efri hluta magans. si
leið er því bæði náttúruleg og
snjöll til að berjast við hækkandi
Leiðarvísir Frutin®
365.is Sími 1817
Færðu fjarskiptin yfir til 365
og fáðu vandað sjónvarpsefni
á fáránlega góðu verði
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-A
4
4
C
1
6
2
B
-A
3
1
0
1
6
2
B
-A
1
D
4
1
6
2
B
-A
0
9
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
1
0
4
s
_
2
6
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K