Fréttablaðið - 16.06.2015, Qupperneq 12
16. júní 2015 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
RENAULT CLIO DYNAMIC
Nýskr. 06/14, ekinn 12 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr. 191823.
TOYOTA YARIS HYBRID
Nýskr. 07/12, ekinn 52 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.490 þús.
Rnr. 282357.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
facebook.com/bilaland.is
NISSAN JUKE ACENTA
Nýskr. 11/13, ekinn 25 þús. km.
dísil, beinskiptur.
Rnr. 120697.
RENAULT MEGANE
Nýskr. 06/13, ekinn 62 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.890 þús.
Rnr. 102409.
SUBARU OUTBACK LUX
Nýskr. 11/13, ekinn 49 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.770 þús.
Rnr. 142834.
HYUNDAI i30 CLASSIC
Nýskr. 03/12, ekinn 39 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.450 þús.
Rnr. 120687.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/13, ekinn 36 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.990 þús.
Rnr. 282179.
Frábært verð!
3.150 þús.
GOTT ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
Skoðaðu úrvalið á
bilaland.is
ALLT AÐ 90%
FJÁRMÖGNUN
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
NEYTENDAMÁL „Þetta er að mínu
mati bæði taktlaust, getur stórskað-
að og verðbólgan farið á flug,“ segir
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna. Borið hefur
á því að birgjar hafi hækkað verð
á vörum sínum til að bregðast við
nýjum kjarasamningum.
Sem dæmi má nefna að kjöt-
vinnslan Norðlenska hefur hækkað
verð á kjöti um tvö til þrjú prósent.
Þá hefur heildsalan Tradex hækk-
að fiskvörur um 5,8 prósent. Hvort
tveggja skýrist af launahækkunum
starfsfólks.
Jóhannes segir skilaboð Neyt-
endasamtakanna til birgja og versl-
ana vera að leita eigi allra leiða til
að hagræða. „Dembið þessu ekki
beint út í verð-
lagið með því að
láta neytendur
borga.“
Jóhannes telur
að afkoma versl-
unarinnar hafi
verið það góð að
svigrúm ætti að
vera til að bregð-
ast við launa-
hækkunum með öðrum hætti en
verðhækkunum. - snæ
Birgjar og verslanir virðast vera byrjuð að bregðast við kjarasamningum:
Launahækkanir hækka verðið
KJÖT Norðlenska hefur hækkað verð á
kjöti vegna nýrra launahækkana. Aðrir
birgjar hafa meðal annars hækkað verð
á kjötbollum og annarri kælivöru.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JÓHANNES
GUNNARSSON
HAFNARFJÖRÐUR Rekstur Hafnar-
fjarðarkaupstaðar stendur ekki
undir sér ef marka má skýrslu
Íslandsbanka um fjármál sveit-
arfélaga. Sveitarfélagið sé yfir-
skuldsett og daglegur rekstur
þess standi ekki undir skulda-
álaginu að öllu jöfnu. Er Hafnar-
fjörður í sömu stöðu og Breiðdals-
hreppur og Reykjanesbær hvað
þetta varðar.
Athygli vekur að Íslandsbanki
gerði sams konar úttekt á stöðu
sveitarfélaganna í apríl í fyrra.
Þá lágu til grundvallar ársreikn-
ingar fyrir árið 2013 og var þá
Hafnarfjarðarkaupstaður talinn
geta staðið vel undir öllum sínum
skuldbindingum. Nú, þegar árs-
reikningar ársins 2014 eru teknir
til skoðunar, kemur í ljós að stað-
an hefur versnað og samkvæmt
sérfræðingum bankans lendir
sveitarfélagið í erfiðleikum verði
ekki tekið í taumana.
Rósa Guðbjartsdóttir, formaður
bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir
þessa niðurstöðu Íslandsbanka
staðfesta það sem sjálfstæðis-
menn hafi sagt á síðasta kjörtíma-
bili um fjárhagsástand bæjarins.
„Þetta kemur okkur ekki á óvart
og staðfestir það sem við höfum
verið að segja um fjárhagsstöðu
bæjarins. Hér erum við að eiga
við þann fortíðarvanda sem blas-
ir við okkur og hefði ég svo sann-
arlega viljað taka við betra búi frá
fyrrverandi meirihluta. En við
munum leggja allt kapp á að haga
málum þannig næstu misserin og
árin að fjárhagsstaðan styrkist,“
segir Rósa.
Gunnar Axel Axelsson, oddviti
Samfylkingar í minnihluta bæjar-
stjórnar, telur óvarlegt að draga
of miklar ályktanir af þessari
greiningu einni og sér og segir
ástandið betra en skýrslan gefi
til kynna.
„Þetta er mæling á stöðunni
eins og hún var í árslok 2014 sem
er ekki endilega lýsandi fyrir
getu sveitarfélagsins til að standa
undir skuldum og skuldbinding-
um til lengri tíma litið. Í því sam-
hengi er rétt að benda á að skulda-
viðmiðið var 176 prósent í lok árs
2014 samanborðið við 221 prósent
2012 og afkoman árið 2013 var
mjög góð,“ segir Gunnar Axel.
„Það sem þarna ræður mestu
eru áhrif dóms Hæstaréttar í
mars sl. sem þýddi að 333 milljón-
ir króna voru gjaldfærðar á árinu
2014 og um 500 milljóna króna
viðbótarhækkun á lífeyrisskuld-
bindingu sveitarfélagsins. Undir-
liggjandi rekstur Hafnarfjarðar
er eftir sem áður mjög sterkur
og málaflokkar innan áætlana,“
segir Gunnar Axel.
sveinn@frettabladid.is
Stendur ekki undir
rekstri að öllu jöfnu
Skýrsla Íslandsbanka um fjármál sveitarfélaga sýnir að Hafnarfjörður, Breiðdals-
hreppur og Reykjanesbær eru verst settu sveitarfélög landsins. Oddvitar meiri- og
minnihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru ósammála um túlkun skýrslunnar.
ÓSAMMÁLA Oddvitar meirihluta- og minnihlutaflokkanna eru ósammála um fjárhagsstöðu bæjarins. Núverandi meirihluti
telur þetta ákveðinn fortíðarvanda en fyrrverandi meirihluti telur óvarlegt að leggja út frá þessum tölum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þetta er
mæling á
stöðunni eins
og hún var í
árslok 2014
sem er ekki
endilega
lýsandi fyrir getu sveitar-
félagsins til að standa
undir skuldum.
Gunnar Axel Axelsson,
oddviti Samfylkingar í Hafnarfirði
Hér erum
við að eiga við
þann fortíðar-
vanda sem
blasir við
okkur og
hefði ég svo
sannarlega viljað taka við
betra búi frá fyrrverandi
meirihluta.
Rósa Guðbjartsdóttir,
oddviti Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði
1
5
-0
9
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
2
B
-D
A
9
C
1
6
2
B
-D
9
6
0
1
6
2
B
-D
8
2
4
1
6
2
B
-D
6
E
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K