Fréttablaðið - 12.08.2015, Síða 18
| 2 12. ágúst 2015 | miðvikudagur
FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST
Þjóðskrá – Ávöxtun af leigu á
íbúðamarkaði
Lánamál ríkisins - Útboð ríkisvíxla
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST
Hagstofan – Fiskafli í júlí 2015
Þjóðskrá – Fjöldi útgefinna
vegabréfa
MÁNUDAGUR 17. ÁGÚST
Hagstofan – Samræmd vísitala
neysluverðs í júlí
ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST
Hagstofan – Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins dagatal viðskiptalífsins
GJALDEYRISINNFLÆÐI Í MILLJÖRÐUM KRÓNA
11
. m
ar
.
18
. m
ar
.
25
. m
ar
.
1.
a
pr
.
8.
a
pr
.
15
. a
pr
.
29
. a
pr
.
6
. m
aí
13
. m
aí
20
. m
aí
27
. m
aí
3.
jú
n.
10
. j
ún
.
17
. j
ún
.
24
. j
ún
.
1.
jú
l.
8.
jú
l.
15
. j
úl
.
22
. j
úl
.
28
. j
úl
5.
á
gú
.
5
4,5
4
3,5
3
2,5
2
1,5
1
0,5
0
Nettókaup SÍ á gjaldeyri
Aðrir á gjaldeyrismarkaði
UTANRÍKISMÁLANEFND Alþingis er ein-
róma í afstöðu sinni um að Ísland skuli
taka þátt í þvingunaraðgerðum Banda-
ríkjanna og ESB gagnvart Rússlandi
vegna framgöngu Rússa gegn Úkra-
ínumönnum og innlimunar Krímskaga
í Rússland á síðasta ári þrátt fyrir að
líkur séu verulegar á að Rússar setji
Ísland á lista ríkja sem beitt verða við-
skiptabanni vegna þessa. Þessi afstaða
er réttlætt með því að vísa til siðferði-
legrar skyldu okkar Íslendinga til að
standa með nágrannaþjóðum okkar
gegn svívirðilegum yfi rgangi Rússa við
nágrannaþjóð.
ALLIR hagsmunaaðilar í íslenskum
sjávarútvegi hafa mótmælt þátt-
töku okkar í þvingunaraðgerð-
um stórveldanna gegn Rússum.
Hagsmunir stórútgerðarinnar,
fi skvinnslunnar, smábátasjó-
manna og annarra í greininni eru sam-
eiginlegir í þessum efnum.
SETJI Rússar viðskiptabann á Ísland
geta útfl utningstekjur okkar lækkað um
þrjátíu milljarða eða meira í einu vet-
fangi. Slíkt tekjutap skaðar ekki ein-
ungis fyrirtæki í sjávarútvegi heldur
hagkerfi ð allt. Vangaveltur utanríkis-
ráðherra um að utanríkisþjónustan geti
aðstoðað sjávarútvegsfyrirtæki við að
fi nna nýja markaði í stað Rússlands-
markaðar eru hjáróma. Utanríkisráðu-
neytið er ekki í stakk búið til að veita
slíka aðstoð og þess utan tekur langan
tíma að vinna nýja markaði þó að auð-
velt sé að glata mörkuðum á einni nóttu.
TUGMILLJARÐA SAMDRÁTTUR á útfl utn-
ingstekjum veldur lækkun krónunnar,
sem aftur leiðir til aukinnar verðbólgu,
sem kemur illa við heimili og fyrir-
tæki. Verðtryggðar skuldir heimilanna
hækka.
SPYRJA má hvort íslensk stjórnvöld
beri meiri siðferðilega skyldu gagnvart
Bandaríkjunum og forystuþjóðum ESB
en gagnvart íslenskum fyrirtækjum
og heimilum? Voru það ekki einmitt
Bandaríkin, Bretland, Holland og fl eiri
ríki, sem nú eru í broddi fylkingar
þeirra sem beita Rússa þvingunarað-
gerðum, sem gengu hvað harðast fram
í að knýja íslenska ríkið til að hengja
Icesave-skuldir Landsbankans á herðar
íslensks almennings?
ÞEGAR bandamenn okkar í NATO í
Evrópu með Breta í broddi fylkingar
settu löndunarbann á íslenskan fi sk
á tímum þorskastríða, örfáum árum
eftir að íslenskir sjómenn höfðu hætt
lífi og limum til að sjá Bretum fyrir
mat í síðari heimsstyrjöldinni, opnuðu
Rússar markaði sína fyrir íslenskan
fi sk. Bretar hafa ítrekað sýnt okkur
Íslendingum yfi rgang og fjandskap, svo
sem með beitingu hryðjuverkalaga í
október 2008.
ÍSLENSK stjórnvöld og utanríkismála-
nefnd Alþingis þurfa líka að hugsa það
til enda ef ætlunin er að láta milliríkja-
viðskipti okkar ráðast af siðferðilegri
afstöðu okkar til meðferðar stjórnvalda
í viðskiptalöndum okkar á eigin þegnum
eða annarra ríkja.
ÆTTUM við þá ekki að setja viðskipta-
bann á Kína, Króatíu, Serbíu, Bandarík-
in og fl eiri lönd? Lýstum við stuðningi
við stjórnarstefnu Sovétríkjanna er við
áttum farsæl viðskipti við þau í áratugi?
Siðferðileg skylda?
Erlendir aðilar hafa aukið eignar-
hlut sinn í ríkisskuldabréfum um
8,2 milljarða króna í júní og júlí.
Hrafn Steinarsson, hagfræðing-
ur og sérfræðingur hjá greining-
ardeild Arion banka, segir fjár-
festa vera að nýta sér hærri vexti
sem bjóðist hér á landi miðað við í
nágrannalöndum.
Fjárfestarnir hafi fjármagnað
kaupin með því að koma með nýtt
fé til landsins á álandsgengi. Þann-
ig komist fjárfestarnir út með féð
á ný óháð því hvort liðkað verði
frekar fyrir gjaldeyrishöftum eða
ekki.
Hrafn bendir á að efnahagsum-
hverfi ð á Íslandi sé fremur hagfellt
sem skýri áhuga erlendra fjárfesta.
„Ef þú horfi r á hagvöxt, atvinnu-
leysi, viðskiptaafgang og ríkisfjár-
mál – það er sama hvert þú lítur –
þetta eru allt frekar jákvæðar tölur
samanborið við önnur lönd,“ segir
hann.
Þá hafi Seðlabankinn brugð-
ist við auknu flæði gjaldeyris
inn í landið vegna vaxtamunar-
viðskipta og auknum tekjum af
ferðamönnum með miklum gjald-
eyrisinngripum í júlí.
„Seðlabankinn er að leggj-
ast gegn of hraðri og of mik-
illi styrkingu krónunnar,“ segir
Hrafn.
Hrafn telur aukin viðskipti
erlendra aðila ekki vera áhyggju-
efni eins og er enda séu þau langt
frá því að vera í sama mæli og
fyrir bankahrun.
Miklu fremur séu það góðar
fréttir að erlendir aðilar hafi
áhuga á Íslandi. „Ég myndi telja
það frekar jákvætt að það sé
áhugi fjárfesta á Íslandi. Það er
gott hvað varðar afl éttingu hafta
ef erlend fjárfesting eykst,“
segir Hrafn.
„En ef þessi viðskipti fara að
verða allsráðandi á markaðnum
þá er það óheppilegt. Íslenski
skuldabréfamarkaðurinn er ekki
það stór eða djúpur. En það er
ekkert sem bendir til þess eins
og er,“ segir Hrafn.
Þórarinn G. Pétursson, aðal-
hagfræðingur Seðlabankans,
vildi ekki tjá sig um málið þegar
eftir því var leitað þar sem
Seðlabankinn hygðist kynna
vaxtaákvörðun í næstu viku.
ingvar@frettabladid.is
Nýta sér vaxtamun í
milljarða viðskiptum
Eignarhlutur erlendra aðila í ríkisskuldabréfum hefur aukist um átta
milljarða í sumar. Hagfræðingur segir fjárfesta nýta sér háa vexti á
Íslandi. Seðlabankinn hafi þegar brugðist við á gjaldeyrismarkaði.
AUKIÐ GJALDEYRISINNFLÆÐI Gjaldeyrisinnflæði jókst talsvert í júlí. Hrafn segir það helst skýrast af auknum tekjum af erlendum ferða-
mönnum og vaxtamunarviðskiptum. Myndin sýnir tíu daga hlaupandi meðaltal. FRÉTTABLAÐIÐ
Ég myndi telja
það frekar
jákvætt að það sé
áhugi fjárfesta á
Íslandi. Það er gott
hvað varðar aflétt-
ingu hafta
ef erlend
fjárfesting
eykst.
Hrafn Steinarsson,
sérfræðingur hjá
greiningar-
deild Arion
banka.
8,2 milljarðar er upp-
hæðin sem erlendir fjárfestar
hafa aukið eignarhlut sinn
um í ríkisskuldabréfum í
júní og júlí.
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
MESTA HÆKKUN
NÝHERJI
128,8% frá áramótum
BANKNORDIK
11,7% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
TM
-19,8% frá áramótum
SJÓVÁ
-0,8% í síðustu viku
10
5
1
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Bank Nordic (DKK) 124,00 19,2% 11,7%
Eik fasteignafélag* 6,90 1,5% -0,6%
Eimskipafélag Íslands 233,00 -1,7% 2,2%
Fjarskipti (Vodafone) 40,10 14,6% 0,1%
Hagar 37,10 -8,3% 1,4%
HB Grandi 39,70 17,5% -0,5%
Icelandair Group 26,25 22,7% 0,0%
Marel 196,00 -1,0% 5,4%
N1 41,95 80,8% 0,6%
Nýherji 11,85 128,8% -0,5%
Reginn 15,75 16,2% 0,1%
Reitir* 69,60 9,0% 0,9%
Sjóvá 11,76 -1,6% -0,8%
Tryggingamiðstöðin 21,10 -19,8% -0,2%
Vátryggingafélag Íslands 8,59 -5,1% 0,9%
Össur 504,00 39,6% 0,8%
Úrvalsvísitalan OMXI8 1.536,30 17,2% -0,1%
First North Iceland
Century Aluminum 3.300,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 28,70 19,5% 0,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,40 -24,3% 0,0%
*Skráð á árinu (þróun frá útboðsgengi).
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Mótaplötur og bitar
Austurrísk gæði!
Leitið tilboða!
Sk
jó
ða
n
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
6
-F
E
4
C
1
5
B
6
-F
D
1
0
1
5
B
6
-F
B
D
4
1
5
B
6
-F
A
9
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K