Fréttablaðið - 12.08.2015, Page 20
| 4 12. ágúst 2015 | miðvikudagur
Íslensk fyrirtæki mættu gera miklu
meira af því að styðja við bakið á
góðgerðarfélögum, segir Hermann
Ottósson, framkvæmdastjóri Rauða
krossins á Íslandi. „Íslensk fyrir-
tæki hafa möguleika á skattafrá-
drætti í kringum gjafi r til góðgerð-
armála. Og mér fi nnst að þau eigi að
sinna því miklu, miklu meira en þau
hafa verið að gera,“ segir Hermann.
Rauði krossinn er stærsta mann-
úðar- og góðgerðarhreyfi ng í heim-
inum og Rauði kross Íslands á
meðal stærstu slíkra hreyfi nga hér
á Íslandi. Hermann segir að starf-
semi hreyfingarinnar hér heima
megi skipta í þrjá hluta.
„Rauði krossinn hefur ákveðið
hlutverk samkvæmt lögum í neyð-
arvörnum Íslands. Hlutverkið felst
m.a. í að opna fjöldahjálparstöðvar
og veita fólki skjól, fæði og klæði ef
það kemur til náttúruhamfara og
við stöndum okkar plikt varðandi
áfallahjálp. Við erum samræming-
araðili áfallahjálpar á landsvísu. Og
það skiptir mjög miklu máli ef það
verða mannskæð slys, bæði stór og
smá, að þá koma þau inn á borð hjá
okkur. Það líður varla vika án þess
að áfallateymin okkar séu kölluð
út í stærri eða minni viðvik. Alger
umskipti hafa orðið í uppbyggingu
neyðarvarna hjá félaginu síðustu tvö
ár með tilkomu neyðarmiðstöðvar
hjá félaginu. Neyðarvarnir okkar
ná um allt land. Deildirnar okkar 43
eru hlekkirnir í þeirri keðju,“ segir
Hermann.
Í öðru lagi er það hjálpar- og
mannúðarstarf. Hermann segir að
hjálpar- og mannúðarstarfi ð skiptist
líka í tvennt. Í fyrsta lagi langtíma-
verkefni sem unnin eru með lands-
félögum Rauða krossins víða um
heim. Í öðru lagi neyðarstarfsemi
sem unnin er þegar verða hamfarir
– stríð eða náttúruhamfarir. „Dæmi
um þetta eru þeir miklu fjármun-
ir sem við erum búin að setja inn í
ebólufaraldurinn í Afríku. Stærsta
framlag Rauða krossins líklega frá
frá upphafi var sett inn í baráttuna
gegn ebólu í Vestur-Afríku. Næstum
160 milljónir sem við sendum á síð-
asta ári. Síðan er sú mikla áhersla
sem við höfum verið að leggja á
Nepal og viðbrögð við jarðskjálft-
anum þar. Við erum búin að senda
níu hjálparstarfsmenn til Nepals og
mikla fjármuni í samstarfi við ýmsa
aðila,“ segir Hermann.
Hermann segir þriðja stóra part-
inn vera mikið innanlandsstarf sem
deildirnar vinna. Rauði krossinn
sinni lögbundinni fræðslu í skyndi-
hjálp sem sé elsta og þekktasta verk-
efni félagsins. Vaxandi hluti deildar-
starfs er síðan fatasöfnun Rauða
krossins og verkefnið Föt sem fram-
lag. „Við sendum mikið út til Hvíta-
Rússlands og til Afríku,“ segir Her-
mann. Þá rekur Rauði krossinn
heimsóknarvinaþjónustu, þar sem
sjálfboðaliðar á vegum Rauða kross-
ins heimsækja þá sem minna mega
sín. Rauði krossinn rekur einnig
fataverslanir, hjálparsímann 1717 og
fl eira. „Síðan erum við með fjáröfl -
unardeild og samskiptasvið sem sér
um að styðja við Rauðakrossstarfi ð
um allt land, eða hjálpar til við það
og heldur utan um allt þetta mikla
sjálfboðaliðastarf,“ segir Hermann.
Íslenska þjóðin er smá og því er
spurning hvort framlag Íslendinga
til alþjóðasamstarfs skipti máli í
stóra samhenginu. Hermann segir
svo vera, en Íslendingar geti vissu-
lega ekki verið í öllu. „Við þurfum
hins vegar að vera með þröngan
fókus á því sem við getum og gerum
vel. Í fyrsta lagi er hjúkrunar-
fólkið okkar og læknarnir alþjóð-
lega viður kennt sem afar hæft fólk
í gegnum mjög langa sögu hjálpar-
starfs Rauða krossins. Í öðru lagi
erum við að sérhæfa okkur í áfalla-
hjálp og neyðarvörnum. Þar getum
við gert ýmislegt vegna þess að við
búum í harðbýlu landi. Við erum
að fást við jarðskjálfta, við erum
að fást við eldgos, ofviðri, fl óð. Við
erum í raun að fást við allar þessar
náttúruhamfarir nema þurrka og
afl eiðingarnar af slíku. Það gefur
okkur svo breiða þekkingu á þessu
sviði að við getum mjög fl jótt breitt
það út að við kunnum og getum á
þessu sviði. Og við erum þegar að
ná fótfestu þar,“ segir hann. Galdur-
inn sé því að vera einbeittur á vissa
þekkingu og nýta hana.
Aukinn áhuginn á notuðum fötum
Hermann segir að áhugi almenn-
ings á notuðum fötum sé að aukast.
„Það er ákveðið trend. Fólk vill
setja saman gömul föt og ný föt.
Unga fólkið og jafnvel eldra er mjög
frjálslegt með þessa hluti. Síðan er
það þannig að við erum að fá inn í
verslanirnar ofboðslega mikið af
fl ottum fötum. Sem auðvitað eiga
mikið eftir,“ segir Hermann og
tekur fram að bæði karlar og konur
hafi getað fundið spariföt, jafn-
vel fl otta kjóla og smóking, í versl-
unum Rauða krossins. „Þessi fata-
söfnun og rekstur fataverslana og
útfl utningur á fötum skiptir Rauða
krossinn miklu máli í sambandi við
afkomu okkar, fjársöfnun,“ segir
Hermann og bætir því við að mikil-
vægi fatasölunnar fyrir tekjuöfl un
aukist sífellt. Hann segir að allur
fatnaður sem safnast sé nýttur. Ónýt
fl öt séu fl utt út og stór hluti af þeim
endurnýttur í tuskur og annan varn-
ing í kringum iðnað. „Það fer ekkert
til spillis og við tökum við öllu. Vilj-
um fá allan textíl,“ segir Hermann.
Hverjir eru helstu tekjustofnar
hreyfi ngarinnar?
Hermann segir að sala á fötum og
útfl utningur sé raunar einn mikil-
vægasti tekjustofn félagsins. En
aðrir tekjustofnar skipti líka miklu
máli. „Það er svo auðvitað samband
okkar við almenning í tengslum við
Mannvini. Það er mikill fjöldi fólks
sem styrkir Rauða krossinn reglu-
lega með litlum framlögum. Þetta
eru svona 1.500 til 3.000 krónur á
mánuði. En þegar saman kemur
þá skiptir þetta miklu máli fyrir
okkur,“ segir Hermann. Auk þess
láti fjöldi einstaklinga og fyrirtækja
Rauða krossinn hafa bæði fjármuni
og ígildi fjármuna í formi afslátta
og í formi bestu kjara í innkaupum
og öðru slíku. „Við erum með samn-
inga um verkefni bæði fyrir ríki
og sveitar félög,“ segir Hermann
og nefnir þar sem dæmi hælisleit-
endaþjónustu sem Rauði krossinn
veitir fyrir hönd innanríkisráðu-
neytisins, auk verkefna á sviði hjálp-
ar- og mannúðarstarfa erlendis sem
unnin eru í samstarfi við utanríkis-
ráðuneytið. „Og svo eru það auðvi-
tað fjármunir sem við fáum frá fyr-
irtæki sem við eigum með SÁÁ og
Landsbjörg sem eru Íslandsspil. En
þeir fjármunir hafa minnkað stöð-
ugt og skipta okkur alltaf minna og
minna máli,“ segir Hermann.
Hversu margir eru í launuðu starfi
hjá Rauða krossinum?
„Það er misjafnt eftir því hvernig
stendur á með fjölda sendifulltrúa
hverju sinni. En við miðum oft við
töluna 76, sem eru í launuðu starfi
hjá Rauða krossinum á Íslandi,“
segir Hermann. Þar af séu í kring-
um 40 hjá landsskrifstofu en aðrir
starfi hjá deildunum. Svo eru laus-
ráðnir starfsmenn sem koma inn í
sérstök verkefni ef þannig ber undir.
Hermann segir að það sé alltaf
nokkur fjöldi starfandi erlendis við
hjálpar- og mannúðarstörf.
Útskýrðu fyrir mér muninn á
starfsemi landsskrifstofu og deild-
anna.
„Deildirnar eru útverðir Rauða
krossins,“ segir Hermann og
bendir á að deildir Rauða kross-
ins vinni að verkefnum í sínu nær-
samfélagi. Dæmi um þetta sé starf-
semi Reykjavíkurdeildar sem reki
Konukot í Reykjavík (athvarf fyrir
útigangs konur) og Vin í Reykjavík
(athvarf fyrir geðfatlaða), sem hvort
tveggja er rekið samkvæmt samn-
ingi við hið opinbera. Reykjavíkur-
deildin sjái um neyðarvarnastarf í
Reykjavík. „Ef kemur til einhverra
hamfara í Reykjavík eða einhverra
þeirra atvika að þarf að grípa til
krafta sjálfboðaliða Rauða kross-
ins þá er það Reykjavíkurdeildin
sem hefur forystu um þær aðgerð-
ir, með aðstoð annarra deilda og
landsskrifstofu Rauða krossins,“
segir Hermann. Eftirminnilegt
neyðarvarnastarf sem unnið hefur
verið á vegum Rauða krossins er
til dæmis fjöldahjálparstöðvarn-
ar sem opnaðar voru eftir að gaus
á Fimmvörðuhálsi og síðar í Eyja-
fjallajökli. Undir búningur að slík-
um aðgerðum fór líka í gang fyrir
gosið í Bárðarbungu síðastliðið
haust. Hermann segir að deildirnar
séu margar mjög sterkar og mikil-
vægt að þær taki allar þátt í neyðar-
vörnum sem sé sterkasta vígi Rauða
krossins um þessar mundir. Her-
mann segir að hlutverk landsskrif-
stofunnar sé síðan samræmingar-
hlutverk um land allt. Umsjón með
og framkvæmd á öllu starfi erlendis.
Landsskrifstofan sjái líka um sam-
skipti og allt samband við ráðuneyti
og sveitar- og bæjarfélög, en einnig
við alþjóðaráð og alþjóðasamband
Rauða krossins.
Sjálfboðaliðarnir skipta mestu
Hermann segir að kjarninn í starfi
Rauða krossins séu sjálfboðaliðarn-
ir. „Það eru þeir sem bera uppi starf-
ið í deildunum og koma saman og
sjá um það að þessi störf séu unnin.
Við sáum hins vegar um þjálfun
þeirra í neyðarvörnum, kringum
heimsóknar þjónustu, 1717 og fl eiri
Vill að íslenskt atvinnulíf leggi meir
Tekjur Rauða kross Íslands námu á annan milljarð króna í fyrra. Framkvæmdastjóri hreyfingarinnar segir að rekstu
fjáröflunina, en tekjur af fatasöfnun skipti meira máli. Áhugi Íslendinga á notuðum fötum sé að aukast. Hann segir n
VÍÐTÆK STARFSEMI
Hermann Ottósson
segir að sala á
fötum sé að verða einn
mikilvægasti tekjustofn
Rauða krossins.
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
B
6
-F
9
5
C
1
5
B
6
-F
8
2
0
1
5
B
6
-F
6
E
4
1
5
B
6
-F
5
A
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K