Fréttablaðið - 12.08.2015, Side 36
12. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 20
MENNING
Í dag er komið að því að telja í
Jazzhátíð Reykjavíkur í 26. sinn
og mun djassinn duna í Hörpu
allt fram á sunnudagskvöld. Ari
Daníelsson er í forsvari fyrir
hátíðina og tekur hann við kefl-
inu af Pétri Grétarssyni sem var
framkvæmdastjóri hátíðarinnar
síðastliðin átta ár. Ari segir að á
aldarfjórðungsafmæli hátíðarinn-
ar á síðasta ári hafi hátíðin flutt
í Hörpu og við að hafi hún svo
sannarlega sprungið út. „Í fram-
haldinu var Jazzhátíð í Reykja-
vík valin besti tónlistarviðburður
ársins á Íslensku tónlistarverð-
laununum fyrr á þessu ári. Það er
mikil hvatning og hátíðin er enn að
stækka og dafna svo djassunnend-
ur mega svo sannarlega eiga von
á góðu.“
Eins og síð-
ustu ár mun
djassganga
niður Lauga-
veg marka upp-
haf hátíðar-
innar. Gleðin
verður við völd
í göngunni og
mun göngu-
stjóri st i l la
saman lúðra
og trommur við verslunina Lucky
Records við Hlemm kl. 17.00 í dag
og eru allir sem hljóðfæri geta
valdið hvattir til að mæta og spila
með.
Komin á kortið
„Jazzhátíðin virðist vera að ná til
afskaplega breiðs hóps djassgeggj-
ara enda er dagskráin afskaplega
fjölbreytt. Við finnum líka fyrir
mikilli fjölgun erlendra áhorfenda,
bæði með öllum þeim ferðamönn-
um sem hér eru staddir fyrir og
svo kemur hingað til dæmis þrjá-
tíu manna hópur frá Kanada. Það
er þekkt fyrirbæri frá stórum
djasshátíðum á borð við þá sem er í
Kaupmannahöfn og fleiri að áhorf-
endur komi langan veg í svokölluð
djass-safari og það gleður okkur
mikið að vera komin með Jazzhá-
tíð Reykjavíkur á kortið fyrir slík-
ar ferðir.
Við erum líka með gríðarlega
stóra, fjölbreytta og metnaðarfulla
dagskrá svo þetta þarf í sjálfu sér
ekki að koma á óvart. Ef við telj-
um listamennina á öllum tuttugu
tónleikum hátíðarinnar þá eru
það um hundrað manns og þar af
eru um þrjátíu útlendingar. Allt er
þetta fólk í hæsta gæðaflokki sem
nýtur mikillar virðingar í alþjóð-
legum djassi enda eru íslenskir
tónlistarmenn líka margir hverj-
ir að vinna með tónlistarmönnum
víða um veröld.“
Alþjóðleg breidd
Ari segir að það sé ekki erfitt
að setja saman flotta dagskrá
fyrir hátíðina einmitt vegna þess
hversu víða íslenskir djassarar
séu að vinna og gróskan í djassin-
um mikil. „Margir íslenskir djass-
tónlistarmenn vinna einnig utan
Íslands og það myndar tengsla-
net. Þetta er líka oft fjölbreytt
og ólíkt tónlistarfólk þannig að
breiddin er mikil. Það ríkir í raun
mikil breidd í djassi á Íslandi í dag
og við leitumst við að sýna áhorf-
endum þessa breidd. Við erum til
að mynda með heiðurstónleika til
þess að minnast þess að nú eru
fimmtíu ár liðin frá því að Louis
Armstrong kom hingað til lands
og það er svona gamaldags djass-
tónlist alveg frá þriðja áratug síð-
ustu aldar og svo erum við með
mjög nútímalegan djass í boði
Hilmars Jenssonar og þýska saxó-
fónleikarans Angeliku Niescier
svo dæmi sé tekið.
Jazzhátíð í ár endurspeglar líka
þann sköpunar- og drifkraft sem
ræður ríkjum í íslensku djasslífi,
en í ár fá tónleikagestir að njóta
átta útgáfutónleika þar sem nýtt
efni verður frumflutt og oftar en
ekki er þar um að ræða eftirtekt-
arverð samstarfsverkefni inn-
lendra og erlendra listamanna.“
Uppskeruhátíð
Jazzhátíð minnist þess einnig að
í ár eru liðin 100 ár frá kosninga-
rétti kvenna á Íslandi og verður
lögð sérstök áhersla á hlut kvenna
í djasstónlist. „Við erum með fjölda
frábærra kvenna sem ætla að spila
fyrir okkur í ár, bæði innlendar
og erlendar, og væri einfaldlega
of langt mál að telja þær allar upp
hér og nú. Málið með þessa hátíð er
að hún er líka uppskeruhátíð okkar
í djassinum og það er mikilvægt
fyrir okkur öll að koma saman og
spila. Deila reynslu okkar og þekk-
ingu og halda áfram að efla djassinn
á Íslandi. Vonandi munu áhorfendur
halda áfram að koma og deila þessu
með okkur.“
Tónleikar verða alls 20 og Ari
bendir á að það sé tilvalið að tryggja
sér aðgöngupassa á öll kvöldin
enda sé verðið afskaplega hagstætt
fyrir alla þessa tónlist. „Það kostar
aðeins 16.200 kr. að kaupa passa á
öll kvöldin sem miðar við að þannig
fái kaupandinn í raun fjórða kvöld-
ið frítt. En svo erum við líka með
fasta liði sem er frítt inn á og þar
má nefna daglegar gleðistundir
klukkan fimm á Budvarsviðinu á
efstu hæðum Hörpu, þar sem kynn-
ingar á dagskrárliðum fara fram og
svo spunastundir á hverju kvöldi
í lok dagskrár klukkan ellefu þar
sem flytjendur láta gamminn geisa
óundir búið fram eftir kvöldi. Við
erum að fá heilmikla aðsókn bæði á
tónleikana sem og opnu viðburðina
– svo mikla að við eigum í raun erf-
itt með að átta okkur á því hversu
margir gestir eru að rúlla í gegn hjá
okkur. Slíkur er einmitt krafturinn
í djassinum í dag.“
Ört vaxandi og alþjóðleg djasshátíð
Jazzhátíðin í Reykjavík hefst í dag með djassgöngunni og lýkur ekki fyrr en á sunnudagskvöld einum tuttugu tónleikum síðar.
JAZZGANGAN MIKLA Það er gríðarlegt fjör í göngunni sem markar upphaf Jazzhátíðar Reykjavíkur en gangan fer af stað frá Lucky Records kl. 17 í dag og eru allir hvattir
til þess að mæta og taka þátt í fjörinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
ARI DANÍELSSON
„Ef ég hefði verið að fylgjast með þessum
hátíðum úr fjarlægð hefði ég sagt: „Vá,
hvað dagskráin er metnaðarfull og fjöl-
breytt í ár,“ segir Ragnheiður Skúladóttir
um leiklistarhátíðina LÓKAL og Reykja-
vík Dance Festival. Sjálf er hún listrænn
stjórnandi LÓKALS ásamt Bjarna Jónssyni
og segir um ákaflega frjótt og spennandi
samstarf að ræða milli þeirra og aðstand-
enda danshátíðarinnar þetta árið með inn-
flutningi samtals sjö erlendra sýninga.
Hátíðirnar standa frá 25. til 30. ágúst
og þar eru 24 sýningar samanlagt. „Það er
ótrúlegt en satt að okkur hefur tekist að
setja dagskrána upp þannig að sé einhver
mjög áhugasamur leikhús- og dansaðdá-
andi þá getur hann séð allar sýningarnar,“
segir Ragnheiður stolt og segir íslensku
verkin verða frumsýnd á hátíðunum og
öðlast svo framhaldslíf, annaðhvort í fram-
haldi af hátíðinni eða síðar á leikárinu.
„Það sem er líka markvert við hátíð-
irnar í ár og mun marka þær næstu árin
er að við sækjumst eftir þátttöku almenn-
ings. Erum í stóru evrópsku tengslaneti
sem sótti um fjögurra ára verkefni sem er
kallað Urban Heat. Fókus þess er á sam-
félög innan samfélaga sem eru kannski
ekki augljós, geta verið trúarhópar, ungt
fólk eða hvaða hópar sem er. Við munum
kanna á ýmsan hátt hverfi Reykjavíkur-
borgar á næstu árum og listamenn á okkar
vegum fara inn í hverfin að ná í yrkisefni
og virkja íbúana í listsköpun,“ lýsir Ragn-
heiður.
Dæmi um hina nýju stefnu er sýningin
Atlas á stóra sviði Borgarleikhússins þar
sem hundrað einstaklingum er boðið að
taka þátt. „Ég hef líkt þessari sýningu við
þjóðfund. Fólk sem er áhugasamt má endi-
lega hafa samband við okkur,“ segir Ragn-
heiður og segir dansverk Ásrúnar Magnús-
dóttur GGGGRRRLLLSS af sama toga, þar
komi á fjórða tug unglingsstúlkna fram.
Sem dæmi um nýtt leikverk á LÓKAL
nefnir Ragnheiður Nazanin sem Marta
Nordal hefur gert um ævi írönsku flótta-
konunnar Nazanin sem kom hingað til
lands 2009 og verður með á sviðinu.
Sýningar verða í Tjarnarbíói en líka í
Borgarleikhúsinu, Gamla bíói, Hafnarhúsi
og Listaháskólanum. „Þessi tími hentar
ágætlega leikhúsunum,“ segir Ragnheiður.
„Hátíðirnar eru upptaktur að leikárinu en
auðvitað líka vettvangur sjálfstæðu sen-
unnar.“ gun@frettabladid.is
Landsmenn eiga von á leikhús- og dansveislu bráðlega
Heljarinnar sviðslistahátíð verður í höfuðborginni frá 25. til 30. ágúst, bæði leiklistarhátíðin LÓKAL og Reykjavík Dance Festival.
LISTRÆNIR STJÓRNENDUR Alexander Róbertsson, Ásgerður G. Gunnarsdóttir, Bjarni Jónsson og
Ragnheiður Skúladóttir halda utan um hátíðirnar tvær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1
1
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
B
6
-D
1
D
C
1
5
B
6
-D
0
A
0
1
5
B
6
-C
F
6
4
1
5
B
6
-C
E
2
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K