Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
ERTU AÐ FARA Á FRAMANDI SLÓÐIR?
Á gov.uk er farið yfir allt það helsta sem þarf að hafa í huga
áður en lagt er í hann. Upplýsingarnar snúa að öryggi, laga-
setningu, heilsufarsmálum og líkum á hryðjuverkum í hverju landi fyrir sig.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill
þurrkari >
Þvottavél Þurrkari12 kg
Amerískgæðavara
Amerískgæðavara
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Miðvikudagur
14
SÉRBLAÐ Fólk
Sími: 512 5000
5. ágúst 2015
181. tölublað 15. árgangur
Sundlaugin nauðsyn
Borgarstjóra þykir miður að íbúar í
grennd við Klettaskóla séu ekki sáttir
við uppbyggingu við skólann. Segir
að reynt hafi verið að taka mið af
þeim athugasemdum sem komu upp
við breytt deiliskipulag. 2
Lindex vinsælust Sænska fata-
keðjan Lindex er orðin sú fataverslun
sem Íslendingar versla mest við og
skýtur þannig H&M ref fyrir rass. 2
MENNING Gunnhildur
Hrólfsdóttir skrifar bók um
konurnar í Eyjum. 22
SPORT FH hefur ekki sigr-
að eitt af stóru liðunum
síðan í fyrstu umferð. 32
Byltingarbátur Össur Kristinsson,
forstjóri Rafnars ehf. og stofnandi
Össurar, hefur afhent Landhelgisgæsl-
unni nýjan strandgæslubát. Báturinn
er sagður byltingarkennd smíði,
mjúkur í sjó og kemst á mikinn
hraða. 8
LÍFIÐ Götutískan á Þjóð-
hátíð eins og hún leggur sig
á Instagram. 28
SAMFÉLAG „Þjónustan sem yrði veitt
gagnvart gerendum kynferðis-
ofbeldis yrði í raun eftirmeðferð
og þannig yrði haldið utan um
hóp gerenda. Einnig yrði þjón-
ustan veitt til þess að koma í veg
fyrir afbrot,“ segir Björn Teits-
son, upplýsingafulltrúi Rauða
kross Íslands, um nýtt verkefni
sem Rauði krossinn íhugar nú að
taka upp.
Verkefnið sækir fyrirmynd sína
í breska verkefnið Stopitnow og
gengur út á það að vera með hjálp-
arsíma fyrir þolendur, aðstandend-
ur og gerendur kynferðisofbeldis
gegn börnum.
Starfsmenn hjálparsíma Rauða
krossins fóru á ráðstefnu síðast-
liðið vor til Surrey á Englandi til
þess að kynna sér verkefnið. Sto-
pitnow-hjálparsíminn hefur verið
rekinn frá árinu 2002, bæði á Bret-
landi og Írlandi.
Að sögn Björns er verkefnið
á viðræðustigi og er útfærsla
hjálpar símans enn óljós. Enn hafi
ekki verið tekin ákvörðun um
hvort verkefnið verði að veruleika.
„Þetta verkefni hangir nú á því
hvort fjármagn fáist. Það er búið
að sækja um styrk frá velferðar-
ráðuneytinu og er það mál í ferli
núna,“ segir Björn.
Björn telur að verkefnið gæti
komið til með að aðstoða þá sem
hugsa um að fremja kynferðis brot
eða hjálpað þeim sem hafa framið
kynferðisbrot, en vilja ekki brjóta
af sér aftur.
Anna Kristín Newton, sálfræð-
ingur hjá Fangelsismálastofnun, er
bjartsýn á að verkefnið muni koma
til með að hjálpa einhverjum.
- ngy / sjá síðu 4
Hjálparsími fyrir barnaníðinga
Rauði krossinn skoðar nú hvort hjálparsími, ætlaður þolendum, aðstandendum og gerendum kynferðisbrota
gegn börnum, verði settur upp. Fyrirmyndin sótt til Bretlands. Sækja um styrk frá velferðarráðuneytinu.
MÁLUÐU REGNBOGA Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, stjórnarmaður Hinsegin daga, Gunnlaugur Bragi Björnsson gjaldkeri, Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður
Hinsegin daga, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Jón Kjartan Ágústsson varaformaður og Ásta Kristín Benediktsdóttir, ritari og formaður göngustjórnar, máluðu regnboga á
Skólavörðustíg þegar Hinsegin dagar voru settir í gær. Sjá síðu 26 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FLUGFÉLAG FÓLKSINS
HÁSKÓLABÍÓ 26. SEPTEMBER
MIÐASALA HAFIN!
Vertu eins
og heima hjá þér
Full búð af nýjum vörum.
Mark-
miðið er að
veita sálræn-
an stuðning
og ráðgjöf til
þolenda og
gerenda kyn-
ferðisofbeldis.
Björn Teitsson,
upplýsingafulltrúi Rauða kross Íslands.
SKOÐUN Gréta Gunnars-
dóttir skrifar um ný
þróunar markmið SÞ. 15
SAMGÖNGUR Einungis fjórtán prósent reiðhjóla sem
seld eru hér á landi eru með skyldubúnað áfastan
samkvæmt úttekt Brautarinnar, bindindisfélags öku-
manna.
„Þetta er alveg skelfilegt. Að fara í reiðhjólaversl-
un og geta ekki treyst því að þú fáir löglegt reið-
hjól, það finnst mér óhugnanlegt,“ segir Einar Guð-
mundsson, formaður Brautarinnar.
„Kannski eru reiðhjólasalar að reyna að græða á
aukabúnaði og segja fólki að kaupa hitt og þetta svo
hjólið sé löglegt? Ég veit ekki hvort það er rétt, en
maður spyr sig,“ segir Einar.
Árni Davíðsson, formaður umsagnarnefndar
Landssamtaka hjólreiðamanna, segir að Samöngu-
stofa ætti frekar að vinna að vinna í því að vekja
athygli hjólreiðamanna á öryggisbúnaðinum í stað
þess að segja hvernig ný hjól eigi að vera útbúin. „Ég
held það ætti frekar að vinna þetta með fræðslu en
að skylda að selja öll hjól með búnaði,“ segir Árni.
David C. Vokes, vörustjóri Húsasmiðjunnar segist
ekki skilja hvernig niðurstöður úttektarinnar hafi
fengist þar sem öll hjól sem Húsasmiðjan hafi flutt
inn hafi verið samkvæmt reglugerðum. - þea / sjá síðu 6
Gagnrýnir að skyldubúnaður sé ekki seldur með nýjum reiðhjólum:
Fjórtán prósent reiðhjóla lögleg
ÓLÖGLEG HJÓL Einar Guðmundsson, formaður Brautarinnar,
hefur áhyggjur af ólöglegum hjólum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
2
-2
9
C
C
1
5
A
2
-2
8
9
0
1
5
A
2
-2
7
5
4
1
5
A
2
-2
6
1
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K