Fréttablaðið - 05.08.2015, Side 4
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
SAMFÉLAG „Þjónustan sem yrði
veitt gagnvart gerendum kyn-
ferðisofbeldis yrði í raun eftirmeð-
ferð og þannig yrði haldið utan um
hóp gerenda. Einnig yrði þjónust-
an veitt til þess að koma í veg fyrir
afbrot,“ segir
Björ n Teits -
son, upplýsinga-
fulltrúi Rauða
kross Íslands,
um nýtt verkefni
sem Rauði kross-
inn íhugar nú að
taka upp.
Verkefnið
sækir fyrirmynd
sína í breska
verkefnið Stopit-
now og gengur
út á það að vera
með hjálparsíma
fyrir þolendur,
aðstandendur og
gerendur kyn-
ferðisofbeldis
gegn börnum.
Starfsmenn
hjálparsíma
Rauða krossins fóru á ráðstefnu
síðastliðið vor til Surrey á Eng-
landi til þess að kynna sér verk-
efnið. Stopitnow-hjálparsíminn
hefur verið rekinn frá árinu 2002,
bæði á Bretlandi og Írlandi.
„Markmiðið er að veita sálræn-
an stuðning og ráðgjöf til þolenda
og gerenda kynferðisofbeldis. Auð-
vitað er þetta svolítið flókið vegna
þess að það er tilkynningarskylda
gagnvart barnavernd eða lögreglu
ef einstaklingur segist hafa brotið
gegn barni,“ segir Björn og bætir
við að verkefnið gæti komið til
með að aðstoða þá sem hugsa um
að fremja kynferðisbrot eða hjálp-
að þeim sem hafa framið kynferð-
isbrot en vilja ekki brjóta af sér
aftur.
Björn telur að það sé mikilvægt
að til séu úrræði fyrir einstaklinga
sem gætu brotið gegn barni.
Að sögn Björns er verkefnið á
viðræðustigi og er útfærsla hjálp-
arsímans enn óljós. Enn hafi ekki
verið tekin ákvörðun um hvort
verkefnið verði að veruleika.
„Þetta verkefni hangir nú á því
hvort fjármagn fáist. Það er búið
að sækja um styrk frá velferðar-
ráðuneytinu og er það mál í ferli
núna,“ segir Björn sem ímyndar
sér að ef verkefnið færi af stað á
Íslandi væru það þjálfaðir sjálf-
boðaliðar og fagaðilar sem tækju
á móti símtölunum.
„Þetta hefur haft góð áhrif ann-
ars staðar og við munum ekki
skera okkur úr í því. Þetta fyrsta
skref í átt að þessu verkefni er
gott og ég bind vonir við að þetta
komi til með að hjálpa einhverj-
um,“ segir Anna Kristín Newton,
sálfræðingur hjá Fangelsismála-
stofnun.
„Varðandi tilkynningarskyld-
una, sem er rík ef brotið er gegn
barni, þá þarf að átta sig á því að
það er til fólk sem fær hugsan-
ir um að brjóta kynferðislega á
barni, en hefur ekki gert það. Það
er þá hægt að aðstoða þá einstak-
linga,“ segir Anna.
nadine@frettabladid.is
Íhuga hjálparsíma fyrir
gerendur kynferðisofbeldis
Rauði kross Íslands skoðar nú hvort nýr hjálparsími, ætlaður þolendum, aðstandendum og gerendum
kynferðis brota gegn börnum, verði settur upp. Fyrirmyndin er hjálparsími á Bretlandi og Írlandi.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS Björn telur að það sé mikilvægt að til séu úrræði fyrir einstaklinga sem gætu brotið gegn barni.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINO
ANNA KRISTÍN
NEWTON
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
BJÖRN TEITSSON
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Lofthradi.is Sími 1817
MEIRI HRAÐI Í BÚSTAÐINN
MEIRI HRAÐI
STÖÐUGRA SAMBAND
INNLENT NIÐURHAL INNIFALIÐ
Athugaðu hvort að þú getir fengið Lofthraða í bústaðinn þinn,
kynntu þér málið á lofthradi.is
EFNAHAGSMÁL Matsfyrirtækið
Standard and Poor’s hefur fært
stöðugleikahorfur í Evrópusam-
bandinu úr stöðugum í neikvæð-
ar.
Þetta kemur fram í skýrslu
fyrir tækisins sem kom út á
mánudag.
Þetta þýðir að fyrirtækið geti
einnig lækkað lánshæfismat ESB
úr AA+ á næstu mánuðum.
Í rökstuðningi fyrirtækisins
kemur fram að aukin áhætta hafi
verið tekin í efnahagsmálum
sambandsins eftir samkomulagið
við Grikkland auk þess sem yfir-
vofandi þjóðaratkvæðagreiðsla
um veru Bretlands í sambandinu
teflir horfum í tvísýnu. - srs
Stöðugleikamat lækkað:
Horfur í ESB
óstöðugar
STANDARD & POOR’S Ákvörðun um
Grikkland veldur óvissu innan ESB.
NORDICPHOTOS/GETTY
BANDARÍKIN Century Aluminum
Company, móðurfélag Norðuráls,
mun loka álveri fyrirtækisins í
Vestur-Virginíu. Engin framleiðsla
hefur verið þar frá 2009. Ástæð-
an er sögð sú að ekki hafi tekist
að semja um raforkukaup á sam-
keppnishæfu verði. Þá séu aðstæð-
ur á álmarkaði erfiðar, m.a. vegna
aukins innflutnings á áli frá Kína.
Century Aluminum Company bók-
færir hjá sér 31 milljónar dollara
tap vegna lokunarinnar, jafnvirði
tæplega 4,2 milljarða króna. - ih
Innflutningur frá Kína aukist:
Loka álveri
vestanhafs
UTANRÍKISMÁL „Það er ekki mín
afstaða að hverfa eigi frá þeirri stefnu
sem mörkuð var á síðasta ári í þess-
um efnum,“ segir Birgir Ármanns-
son, formaður utanríkismálanefndar
Alþingis.
„Fyrir það fyrsta er staðan sú að
Ísland tók þá ákvörðun strax vorið
2014 þegar ríki, bæði innan Evrópu
og í Norður-Ameríku, ákváðu að
bregðast við innlimun Krímskaga
og ágangi Rússa í Austur-Úkraínu
með ákveðnum þvingunaraðgerðum.
Þá var tekin sú ákvörðun að Ísland
myndi eiga sam-
leið með þeim
ríkjum sem það
gerðu og ég tel
ekki að það séu
komnar fram
þær forsendur til
að breyta þeirri
ákvörðun,“ segir
hann.
Í gær sagði
Medvedev, forsætisráðherra Rúss-
lands, að til skoðunar væri að fjölga
þeim ríkjum sem Rússland beitir við-
skiptaþvingunum. Ísland hefur hing-
að til stutt viðskiptaþvinganir banda-
manna sinna gagnvart Rússlandi.
Ásmundur Friðriksson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sagði í stöðu-
uppfærslu á Facebook á laugardaginn
að Ísland ætti að hætta að styðja við-
skiptaþvinganir gegn Rússum. Utan-
ríkismálanefnd stefnir á að fjalla um
málið á morgun.
Birgir segir að í sjálfu sér hafi
engin formleg yfirlýsing eða skilaboð
komið frá rússneskum stjórnvöldum
til þeirra íslensku en engu að síður
væru miklir hagsmunir í húfi. „Þarna
er um að ræða mikla hagsmuni sem
við þurfum að fylgjast með og til þess
er einmitt fundur utanríkismála-
nefndar á fimmtudaginn hugsaður,
við munum reyna að fá fram stöðuna
hvað það varðar.“
Ekki náðist í Gunnar Braga Sveins-
son utanríkisráðherra við vinnslu
fréttarinnar en samkvæmt upplýs-
ingum frá aðstoðarmanni hans er enn
verið að leita svara í Moskvu og hjá
rússneska sendiráðinu um hvort við-
skiptaþvingunum verði beitt. - srs
Formaður utanríkismálanefndar er ekki þeirrar skoðunar að Ísland eigi að hætta viðskiptaþvingunum:
Engin formleg yfirlýsing borist frá Rússum
BIRGIR
ÁRMANNSSON
Hulda, sprengir þetta skalann?
„Já. Það hefur að minnsta kosti eng-
inn brugðist við kvörtunum í hvelli.“
Jarðvegsvinna við Klettaskóla í Reykjavík er
hafin þrátt fyrir að kæra íbúa í hverfinu sé
óafgreidd. Hulda Arnljótsdóttir, íbúi í hverf-
inu, segir að reglur um jarðvegssprengingar
séu brotnar.
KJARAMÁL Forgangskrafa stjórnenda álversins í
Straumsvík um aukna heimild til verktöku verður
lögð til hliðar á meðan launakjör starfsmanna verða
rædd. Þetta var ákveðið á fundi hjá Ríkissáttasemj-
ara í gær. Boðað hefur verið til nýs fundar í dag.
Allt kapp er lagt á að afstýra verkfalli sem boðað
er 1. september en stjórnendur álversins hafa skýrt
frá því að verkfall jafngildi lokun álversins.
Á fundinum skýrði samninganefnd starfsmanna
frá sinni framtíðarsýn og ítrekaði andstöðu sína við
að auka við heimildir til verktöku. Niðurstaðan varð
sú að forgangskrafa Rio Tinto Alcan um að auka við
heimildir til verktöku verður lögð til hliðar á meðan
samninganefndir fara yfir launaliði.
Starfsmenn álversins segja yfirvinnubann sem
hófst fyrsta ágúst leiða í ljós hversu mikið hefur
verið skorið niður í rekstri.
Fækkað hefur verið um fimmtíu stöðugildi á
samningstímanum og með auknum heimildum til
verktöku gætu um og yfir áttatíu störf verið í húfi
að mati starfsmanna.
Þá hefur einnig verið gagnrýnt að fyrirtækið hafi
sjálft áður farið fram á þröngar skorður um verk-
töku við gerð kjarasamninga. - kbg
Ræða á launakjör starfsmanna álversins í Straumsvík hjá ríkissáttasemjara:
Fresta kröfu um aukna verktöku
MÁLIN RÆDD Samninganefnd starfsmanna álversins í
Straumsvík fer yfir stöðuna í húsnæði ríkisáttasemjara.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SPURNING DAGSINS
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
2
-5
6
3
C
1
5
A
2
-5
5
0
0
1
5
A
2
-5
3
C
4
1
5
A
2
-5
2
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K