Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 6
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
SAMGÖNGUR „Þetta er alveg skelfi-
legt. Að fara í reiðhjólaverslun
og geta ekki treyst því að þú fáir
löglegt reiðhjól, það finnst mér
óhugnan legt,“ segir Einar Guð-
mundsson, formaður Brautarinnar,
bindindisfélags ökumanna. Braut-
in birti í gær úttekt á skyldubúnaði
hjóla þar sem fram kemur að fjór-
tán prósent reiðhjóla í verslunum
landsins eru seld með skyldubún-
aði áföstum.
Einar spyr sig hvort reiðhjóla-
sölumenn séu að reyna að græða á
aukabúnaði. „Árið 2011 var ágætis
staða. 71 prósent hjóla var selt með
nauðsynlegum öryggisbúnaði áföst-
um. Nú er staðan hins vegar verri
og menn pilla meira og meira af
hjólunum þegar þau koma í búðir.
Á sama tíma hefur reiðhjólasala
aukist,“ segir Einar. „Kannski eru
reiðhjólasalar að reyna að græða á
aukabúnaði og segja fólki að kaupa
hitt og þetta svo hjólið sé löglegt?
Ég veit ekki hvort það er rétt, en
maður spyr sig.“
Búnaðurinn sem um ræðir er
bjalla, glitmerki að framan, aftan,
á teinum og fótstigum, fram- og aft-
urbremsur og keðjuhlíf. Einar segir
áberandi hve mörg hjól eru seld án
bjöllu.
Í reglugerðinni er einnig gert ráð
fyrir lás en þar sem ný reglugerð
um hjól er í smíðum tók Brautin lása
ekki með í úttektinni. Reglugerðin
sem nú er í gildi er frá árinu 1994.
„Í nýju reglugerðinni mun koma
skýrt fram að ef þú ætlar að nota
reiðhjól í umferð þarftu að hafa
þennan búnað, eins og drögin eru
núna,“ segir Einar.
„Geturðu ímyndað þér að kaupa
þér nýjan bíl, en þurfa að kaupa
bremsurnar sér? Það væri svolítið
sérstakt,“ bætir hann við.
Árni Davíðsson, formaður
umsagnarnefndar Landssamtaka
hjólreiðamanna, segir óþarft að
setja verslunum reglur um hvern-
ig eigi að selja hjólin.
„Hjól í Evrópu eru ekki seld
með öllum öryggisbúnaði, það er
ekkert sem segir að þess þurfi.
Þó er reglugerð sem segir hvern-
ig hjólin eiga að vera útbúin,“
segir Árni. Hann bætir því við að
honum finnist að Samgöngustofa
ætti að vinna í því að vekja þess
í stað athygli hjólreiðamanna á
öryggisbúnaðinum. „Ég held það
ætti frekar að vinna þetta með
fræðslu en að skylda að selja öll
hjól með búnaði. Þá myndu þau
sem kaupa dýrustu hjólin taka
staðalbúnaðinn af og setja eitt-
hvað annað og betra.“
„Við skiljum ekki hvernig þessar
niðurstöður fengust,“ segir David
C. Vokes, vörustjóri Húsasmiðj-
unnar. „Í fyrra kíkti ég á þessar
leiðbeiningar og flutti inn hjól, þá
var skylda frá framleiðendum að
setja bjöllu á öll hjól. Við erum líka
með glitmerki á réttum stöðum og
keðjuhlífar, þó eru ekki öll hjól
með hlíf alla leið aftur með keðj-
unni, enda er það óþarfi“ segir
hann. thorgnyr@frettabladid.is
Einungis fjórtán prósent
reiðhjóla eru seld lögleg
Brautin kannaði skyldubúnað á reiðhjólum í verslunum. Formaður umsagnarnefndar Landssamtaka hjólreiða-
manna segir óþarft að selja hjól með búnaðinum. Vörustjóri Húsasmiðjunnar er ósammála úttekt Brautarinnar.
ÖRUGG Vonandi er þetta hjólreiðafólk með réttan búnað á hjólum sínum FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Brautin gerði úttekt á hjálmanotkun samhliða úttekt á nauðsynlegum
búnaði. Í úttektinni kom fram að hjálmanotkun var almennt um áttatíu
prósent. Þá vakti það athygli Brautarinnar að hjálmanotkun í miðbæ og
vesturbæ Reykjavíkur var minni en annars staðar. Hjálmanotkun á þeim
svæðum náði einungis 31 prósenti.
Samhliða könnuninni kannaði Brautin sýnileikafatnað en um þrjátíu
prósent hjólreiðamanna voru í þess lags fatnaði. Auk þess voru mörg hjól
án bjöllu.
„Það er slæmt að vera án bjöllu, hún er mjög mikilvæg. Sérstaklega
þegar maður hjólar á sameiginlegum stígum með gangandi fólki. Það er
alveg nauðsynlegt að láta gangandi vegfarendur vita ef þú kemur aftan að
þeim. Þessi búnaður er vanmetinn,“ segir Einar Guðmundsson.
Hjálmanotkun minni í Vesturbænum
Ég held
það ætti
frekar að
vinna þetta
með fræðslu
en að skylda
að selja öll hjól
með búnaði.
Árni Davíðsson, formaður umsagnar-
nefndar Landssamtaka hjólreiðamanna.
Haustsigling um Eystrasaltið 24.-28.
október með Princess Anastasia
STOKKHÓLMUR-TALLINN-ST. PÉTURSBORG-HELSINKI
Innifalið í verði er flug, flugvallaskattar, gisting í 4 nætur um borð í
Princess Anastasia, morgunverður, kvöldverður,
allar skoðunarferðir og íslenzk fararstjórn.
Flogið til Stokkhólms og siglt þaðan til Tallinn,
St. Pétursborgar og Helsinki.
Flogið heim frá Stokkhólmi.
Gist í tveggja manna klefum með glugga
Innifalinn morgunverður og kvöldverður um borð
Skoðunarferð í hverri höfn
Skemmtistaðir, barir, kaffihús, fríhöfn og spilavíti um borð
Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson.
Verð frá 159.500,-
Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar
Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511 1515 • outgoing@gjtravel.is • www.ferdir.is
Þetta er
alveg skelfilegt.
Að fara í
reiðhjólaversl-
un og geta ekki
treyst því að þú
fáir löglegt
reiðhjól.
Einar Guðmundsson,
formaður Brautarinnar.
VEISTU SVARIÐ?
LEIKSKÓLAMÁL „Eitt af því sem
þarf að vinna í er að efla og auka
framboð á leikskólakennurum,“
segir Svandís Svavarsdóttir
alþingismaður Vinsti hreyfingar-
innar græns framboðs.
Fyrir nokkrum dögum kom
út skýrsla starfshóps á vegum
menntamálaráðuneytisins vegna
þingsályktunar Svandísar um
leikskóla að loknu fæðingarorlofi.
Fréttablaðið greindi frá skýrsl-
unni.
„Það þarf að draga fram allt
það sem þarf að gera en ég held
við getum öll verið sammála um
að aðstaðan eins og hún er núna er
ekki ásættanleg fyrir velferðar-
samfélag, þannig að það er eitt-
hvað sem við þurfum að horfast í
augu við.“
Svandís segir að dagforeldrar
geti gengið í störf á ungbarnaleik-
skólum en þó þurfi að efla sam-
starfið við háskólana til að hægt
verði að auka framboð leikskóla-
kennara.
„Ég bara skil ekki hvers vegna
konan talar með þessum hætti,
né hvað veldur því,“ segir Sigrún
Edda Lövdal, formaður Félags
dagforeldra.
Sigrún Edda segir að með þessu
sé verið að leggja niður dagfor-
eldrastéttina.
„Dagforeldrar hafa starfað í
tugi ára og verið starfi sínu til
mikils sóma. Og ég leyfi mér að
stórefast um að dagforeldrar færi
sig yfir á leikskóla þó það standi
þeim til boða. Eins og hún talar,
vill hún greinilega leggja þessa
stétt niður og þetta er starf stétt
sem samanstendur í miklum
meirihluta af konum og það er mér
óskiljanlegt af hverju konunni er
svona mikið í mun að leggja niður
þessa kvennastétt,“ segir Sigrún
Edda.
Í þingsályktuninni sem Svan-
dís flutti segir að algengt sé að
leikskólar sveitarfélaganna veiti
börnum ekki viðtöku fyrr en þau
eru orðin 18–24 mánaða gömul.
Foreldrar og forráðamenn ung-
barna hafi því þurft að leita ann-
arra leiða, sem oftast felast í því
að vista börnin hjá dagmæðrum
eða á einkareknum ungbarnaleik-
skólum. - sks, srs
Formaður Félags dagforeldra efast um að stéttin vilji vinna á leikskólum:
Segir vegið að dagforeldrunum
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
SIGRÚN EDDA
LÖVDAL
ÁSTRALÍA Lögreglan í Ástralíu
rannsakar nú fund á hátt í sjö-
tíu afskornum krókódílahöfðum
í frystikistu í borginni Darwin
nú um helgina. Um var að ræða
krókódíla sem þrífast í saltvatni,
en þeir eru friðaðir þar í landi.
Hópur ungmenna fann frysti-
kistuna nálægt fjölfarinni
verslunar götu og gerði lögreglu
viðvart.
Líklegt þykir að dýrin hafi verið
fláð og skinn þeirra nýtt í hand-
töskur og skó.
Sá sem fundinn verður sekur um
verknaðinn á yfir höfði sér allt að
fimm ára fangelsi. - ngy
Ungmenni fundu höfuðin:
Fundu sjötíu
krókódílahöfuð
KRÓKÓDÍLAHÖFUÐ Líklegt þykir að
dýrin hafi verið fláð og skinn þeirra nýtt
í handtöskur og skó. NORDICPHOTOS/AFP
1. Hverjum er óheimilt að skilja hér
á landi, þótt hjónavígslan hafi farið
fram hér?
2. Hvað féll í Grikklandi á mánudag?
3. Hvaða mannréttindasamtök hyggj-
ast kjósa um lögleiðingu vændis á
aðalþingi sínu í næstu viku?
SVÖR:
1. Samkynhneigðum erlendum hjónum, bú-
settum í útlöndum. 2. Hlutabréfavísitalan.
3. Amnesty International.
VANTAR ÚRRÆÐI Algengt er að leikskólar sveitarfélaga veiti börnum ekki viðtöku
fyrr en 18-24 mánaða gömlum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
_
n
y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
2
-7
D
B
C
1
5
A
2
-7
C
8
0
1
5
A
2
-7
B
4
4
1
5
A
2
-7
A
0
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K