Fréttablaðið - 05.08.2015, Page 16
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 16
Eitt af því sem
gerir Ísland svo
áhugavert fyrir
ferðamenn er að
flestir vegir eru
upphækkaðir og
skóglaust með-
fram þeim – öfugt
við það sem er í
flestum nálægum
löndum. Hægt er
að njóta frábærs
útsýnis um leið
og ekið er milli
staða. Svo hefur Vegagerðin gert
góða áningarstaði hér og þar við
þjóðvegina. Þetta víðsýni af þjóð-
vegum er eitt af því sem heillar
erlenda gesti og laðar æ fleiri hing-
að. Einstök náttúra landsins blasir
við hvarvetna, ekki síst af fjölförn-
um vegum.
Fordyri landsins
Reykjanesbrautin er fordyri
Íslands. Flestir sem koma til lands-
ins njóta útsýnis þaðan. Hraunið
með mosa, fléttum, lyngi, kjarri og
margs konar blómum og grösum er
undurfagurt og sérstakt á heims-
vísu. Síbreytilegt eftir árstíðum
og hvort það er bleyta eða þurrkur.
Við sem keyrum Reykjanesbrautina
nær daglega verðum seint leið á að
horfa út um bílrúðurnar.
Eftir tvo áratugi gefur þarna fátt
annað að líta en eina jurt – að vísu
fallega – en hún mun afmá þessa
sérstöku ásýnd að mestu, skyggja á
þann gróður sem fyrir er og fela að
mestu mishæðir í hrauninu.
Eftir 20 ár verður leitun að veg-
spotta á Suðvesturlandi þar sem
alaskalúpína blasir ekki við. Reyn-
ið að ímynda ykkur það! Lúpínan er
öflug uppgræðslujurt og gullfalleg
– en allt er best í hófi. Einhæfni er
leiðigjörn og niðurdrepandi. Viljum
við gefa börnum okkar og barna-
börnum þetta í arf?
Báðar myndirnar eru teknar af
Reykjanesbraut um miðjan júlí sl.
Önnur er tekin skammt utan við
Vatnsleysustrandarvegamót þar
sem enn gefur að líta form og liti
hraunsins og Keili í baksýn. Hin
myndin er tekin nokkrum kíló-
metrum utar þar sem lúpínan er
að þétta sig að vegkantinum og úr
þessu er lítil áhrif hægt að hafa
þar á. Fyrir um áratug síðan voru
þarna nokkrir stakir lúpínutoppar
sem fáir tóku eftir. Slíka toppa er
nú að finna víða við brautina – m.a.
í grófinni milli akreinanna – sem
munu mynda álíka breiðu meðfram
mestallri brautinni á svo sem einum
áratug nema eitthvað verði gert
til að stemma þar stigu við. Sama
þróun er í gangi við flesta þjóðvegi
á Reykjanesskaga og í nágrenni
Reykjavíkur og víðar um landið.
Lúpína er t.d. að þéttast ár hvert
með þjóðvegi 1 frá Rauðavatni og
upp í Svínahraun. Hún breiðist örast
út meðfram vegum – á því landi sem
ber fyrir augu af þjóðvegunum.
Framtíðarhorfur
Hægt er að hægja á útbreiðslu lúp-
ínunnar með því að taka alla staka
toppa árlega. Til þess þarf margar
viljugar hendur. Ekki dugar annað
en árleg vöktun í áratug eða meira
því alltaf koma upp nýjar plöntur,
bæði af rótum sem verða eftir og
af fræi sem liggur í dvala í jörðinni
árum saman.
Lítil þörf er á uppgræðslu þarna
því hraunið meðfram Reykjanes-
braut er að mestu gróið og vilji
menn græða upp moldarflög sem
þar finnast er til nóg af hrossa-,
hænsna- og svínaskít í nánd en
slík uppgræðsla rústar ekki ásýnd
landsins.
Lúpína er falleg og mjög áber-
andi jurt, hvort heldur græn, blá
eða brún. Það eykur á fjölbreytni
landsins að sjá hana hér og þar. En
þegar óvíða er hægt að horfa út um
bílrúðu án þess að sjá lúpínu er of
langt gengið. Þegar það er orðið
staðreynd er allt of seint að hafa þar
nokkur áhrif á. Það þarf að gerast
ekki seinna en núna!
Sumum finnst þessi þróun í lagi
og benda á að lúpínan muni á endan-
um hörfa. Jú, ekkert varir að eilífu,
en þótt hún hörfi á stöku stað (verði
gisnari) er útbreiðslan margfalt
örari og svo verður næstu áratugi
og líklega í meira en öld. Mig grun-
ar að fáum okkar endist aldur til að
sjá lúpínu fara að dragast saman á
landinu í heild og þegar loks kemur
að því verður gróðurinn sem tekur
við allt annar en það sem nú gefur
að líta. Það verður meiri gróska og
meiri skógar en þetta fínlega sem
nú heillar svo marga glatast.
Breytingar á ásýnd landsins
vegna virkjana, raflína og ýmissa
stórkarlalegra mannvirkja eru smá-
munir miðað við þá breytingu sem
í vændum er af völdum lúpínu og
stjórnlausrar útbreiðslu hennar.
Séð út um bílrúðu
– og fram í tímann
UMHVERFISMÁL
Þorvaldur Örn
Árnason
líff ræðingur og
íbúi í Vogum
Ég er móðir og á eina 20
mánaða gamla stúlku. Þegar
ég varð ólétt á sínum tíma
varð ég himinsæl enda barn-
ið mjög velkomið í heiminn.
Það var þó eitt sem skyggði
á þessa gleði og það var sú
staðreynd að við foreldr-
arnir áttum einungis rétt á
að vera heima með barninu
okkar í níu mánuði. Sú
spurning ásótti mig lengi vel
– hver á að passa barnið okkar þessa
níu mánuði sem við þurfum svo að
bíða eftir leikskólaplássi?
Ég bý í Hveragerði og þar búum við
svo vel að öll börn komast inn á leik-
skóla við 18 mánaða aldur, nokkuð sem
ekki öll sveitarfélög geta státað sig af
og til dæmis er ástandið ekki svo gott
í höfuðborginni okkar. Þó ástandið sé
betra í Hveragerði en víða annars stað-
ar þá er það engan veginn nógu gott.
Eftir þó nokkrar tilfæringar end-
aði dóttir okkar hjá yndislegri dag-
mömmu sem hún tók miklu ástfóstri
við strax frá byrjun.
Það sem ergir mig þó óendanlega
við þetta kerfi okkar hér á Íslandi,
burtséð frá því hversu yndislegir
flestir dagforeldrar eru, eru eftir-
farandi atriði:
1. Þú þarft að fara með barnið
þitt, litla augasteininn þinn, og skilja
hann eftir hjá bláókunnugu fólk sem
þú treystir í blindni og getur ekki
annað en vonað að innsæi þitt sé rétt.
Oftast er viðkomandi einn heima
hjá sér og eftirlit er lítið sem ekk-
ert, þrjár heimsóknir á ári kalla ég
ekki almennilegt eftirlit. Á leikskól-
um eru nokkrir starfsmenn á hverri
deild, stjórnendur o.fl. svo eftirlitið
er óumflýjanlegt og stöðugt.
2. Dagforeldrar, mjög oft
ófaglærðir, mega vera einir
heima hjá sér með fimm börn
(mega þó vera með sjö í hádeg-
inu skv. reglugerð!?) en á ung-
barnadeildum leikskóla er
yfirleitt miðað við að hver leik-
skólakennari sé ekki með fleiri
en fjögur börn á sinni könnu.
Rökin fyrir þessu eru mér
ókunn ef þau eru til staðar.
3. Dagforeldrar þurfa
einir að sjá um allt sem viðkem-
ur barninu, að skipta um bleyjur á
öllum, koma öllum í svefn og elda
mat ofan í alla – á meðan þeir passa
fimm ungabörn. Það býður til dæmis
hættunni heim að sjá um fimm unga-
börn og elda matinn á meðan.
4. Dagforeldrar eiga rétt á veik-
indadögum eins og venjulegir laun-
þegar, sem er mér óskiljanlegt þar
sem þeir eru sjálfstætt starfandi. Ég,
sem launþegi, á rétt á veikindadög-
um vegna eigin veikinda og vegna
veikinda barnsins míns en þegar
dagforeldrið mitt verður veikt eða
börn dagforeldris þá neyðist ég til
að taka mér launalaust frí og fæ
engan afslátt af dagvistunargjöldum
á móti. Ég hef starfað sem sjálfstætt
starfandi talmeinafræðingur og einn
af ókostunum við það er einmitt sá að
þegar ég, eða barnið mitt, veikist get
ég ekki rukkað fyrir tímann. Þetta á
við um flestar aðrar sjálfstætt starf-
andi stéttir, mér þætti til dæmis ansi
hart að borga fyrir bókaðan tíma í
klippingu ef hárgreiðslumaðurinn
væri veikur heima hjá sér. Dagfor-
eldrar fá því kostina af því að vera
sjálfstætt starfandi (hærri tekjur) en
þurfa ekki að taka ókostunum (ólaun-
aðir veikindadagar).
5. Það er mjög dýrt fyrir foreldra
að vera með barn hjá dagforeldrum,
algengt verð á Suðurlandi er í kring-
um 50 þúsund krónur fyrir 8 tíma
vistun á meðan leikskólagjöld eru í
kringum 30.000 krónur.
6. Dagforeldrar geta neitað að
passa tiltekin börn, t.d. ef þau eru
mjög krefjandi. Ég þekki dæmi
þess að börnum sé sagt upp, þau
eru sumsé „rekin“ og það innan við
tveggja ára gömul. Þau dæmi eru
vafalaust mjög fá sem betur fer – en
þau eru þó til. Ég veit ekki til þess að
leikskólar geti sagt börnum upp enda
væri það galið.
Ég sá mjög gott viðtal í Kastljósinu
um daginn við móður sem talaði um
það að þrýstihópurinn, foreldrarnir,
á þennan málaflokk væri svo veik-
ur því þeir sem nýta þjónustu dag-
foreldra þurfa þess í takmarkaðan
tíma og eru svo guðs lifandi fegnir
þegar tímabilinu lýkur að þeir reyna
að hugsa ekki um það meir. Ég vil
ekki vera ein af þeim og ákvað því
að koma skoðun minni á framfæri.
Það er ekki við dagforeldra að sak-
ast sem sinna langflestir sinni mikil-
vægu og erfiðu vinnu mjög vel, það
er við stjórnvöld að sakast sem sýna
lítinn vilja til að breyta þessu stór-
gallaða kerfi okkar.
Ég skora á stjórnvöld að skapa
samfellu í dagvistunarmálum ungra
barna, það þarf að lengja fæðingar-
orlofið og taka börnin fyrr inn á leik-
skóla.
Úrelt dagforeldrakerfi
FJÖLSKYLDAN
Álfhildur
Þorsteinsdóttir
➜ Hver á að passa barnið
okkar þessa níu mánuði sem
við þurfum svo að bíða eftir
leikskólaplássi?
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR | REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
25-35%
AFSLÁTTUR
STILLANLEG
RÚM
Verðdæmi
C&J stillanlegt heilsurúm með
infinity dýnu 2x80x200 cm.
Fullt verð kr. 558.000
ÚTSÖLUVERÐ KR. 390.600
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
20-50%
AFSLÁTTUR
SÆNGUR-
FATASETT
MARGAR GERÐIR
Gafl ekki
innifalinn í verði
40%
AFSLÁTTUR AF
160X200 CM
HEILSURÚM
REYNIR heilsurúm
Með Classic botni 160x200 cm.
Fullt verð: 169.900
ÚTSÖLUVERÐ AÐEINS
kr. 99.900
Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi .
Sendu greinina þína á greinar@visir.is
og við komum henni á framfæri hið snarasta.
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
A
2
-9
1
7
C
1
5
A
2
-9
0
4
0
1
5
A
2
-8
F
0
4
1
5
A
2
-8
D
C
8
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K