Fréttablaðið - 05.08.2015, Qupperneq 26
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
MENNING
TÓNLIST ★★★★
Olga Vocal Ensemble
Háteigskirkju
MIÐVIKUDAGINN 29. JÚLÍ
Ég heyrði fyrst Sönghópinn Olgu (Olga Vocal
Ensemble) á tónleikum í Langholtskirkju í
fyrra. Tónleikarnir ollu vonbrigðum, þeir
voru ofhlaðnir og söngurinn var hrár. En það
var annað uppi á teningnum í Háteigskirkju á
miðvikudaginn var.
Dagskráin bar nafnið The Good Ol‘ Days
Program og samanstóð eftir því af gömlum
slögurum. Þeir voru bæði íslenskir og útlend-
ir, þar á meðal Hagavagninn, Móðir mín í kví,
kví, Smávinir fagrir, Swing Low og Chatt-
anooga Choo Choo.
Ekki er ljóst af hverju sönghópurinn heitir
Olga. En hann samanstendur af fimm ungum
mönnum og eru tveir þeirra íslenskir. Þetta
eru þeir Bjarni Guðmundsson, Jonathan
Ploeg, Gulian van Nierop, Pétur Oddbergur
Heimisson og Philip Barkhudarov. Þeir eru
allir nemendur Jóns Þorsteinssonar söngv-
ara. Hann starfaði lengi hér á landi en flutti
til Utrecht fyrir allnokkru síðan.
Lögin á dagskránni voru án undirleiks.
Það er ekki sjálfgefið að tónlist sem þannig
er háttað um hljómi vel. Af hverju ekki? Jú,
fimm manna sönghópur er í rauninni ekkert
annað en pínulítill kór. Ólíkt stærri kórum er
ekki hægt að svindla með því að fela sig á bak
við heildina. Í fimm manna sönghóp heyrist
hver rödd skýrt og greinilega. Misfellur verða
augljósar. Sérstaklega þegar enginn píanóleik-
ari er til að styðja við sönginn.
Ánægjulegt er að segja frá því að frú Olga
stóð fyllilega undir kröfunum. Hópurinn
hefur tekið gríðarlegum framförum síðan í
fyrra. Innhverfu lögin voru sungin af næmri
tilfinningu. Samsöngurinn var fágaður, radd-
irnar voru tærar og markvissar og pössuðu
vel saman. Ærslafengnari músík hitti líka í
mark. Hraðar hendingar voru nákvæmar og
fínt jafnvægi var á milli aðal- og undirradda.
Sviðsframkoman var skemmtileg. Mörg
lögin voru krydduð með leikrænum tilburð-
um sem kitluðu hláturtaugar áheyrenda.
Sumar útsetningarnar voru einnig skondnar
í sjálfu sér, eins og til dæmis Hagavagninn
eftir Jónas Jónasson. Þar hermdu söngvar-
arnir eftir vélarhljóði strætisvagnsins. Það
var eins konar gobbedí gobbedí, sem féll full-
komlega að sönglínunni. Þetta var hnitmiðað,
stílhreint og furðulega sannfærandi. Annað
var eftir þessu. Óhætt er að segja að tónlistin
hafi runnið ljúflega niður. Maður gekk glaður
út úr kirkjunni að tónleikunum loknum.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Líflegir tónleikar. Vandaður, kraft-
mikill söngur og notaleg tónlist.
Herrarnir í Olgu kitluðu hláturtaugar tónleikagesta
„Ég er fædd í Eyjum og bjó þar
fram að gosi. Heimilið mitt fór
undir hraun og í mér var söknuður
og sorg yfir örlögum austurbæjar-
ins. Þar sem ég hef einnig mikinn
áhuga á sagnfræði lagðist ég í lest-
ur um líf fólks í Eyjum. Þá komst
ég að því að kvenna er þar sjaldan
getið nema þær hafi gert mönnum
sínum þann óleik að deyja frá börn-
um eða væru mæður mikilmenna.
Mér hljóp kapp í kinn og ég fór að
taka saman efnið sem nú er komið
út á bók.“ Þannig lýsir Gunnhildur
Hrólfsdóttir sagnfræðingur aðdrag-
anda að útgáfu bókarinnar Þær
þráðinn spunnu þar sem hún ein-
beitir sér að konunum í Vestmanna-
eyjum.
Upphafsár bókarinnar er 1835
og hún endar á níunda áratug síð-
ustu aldar. „Ég fjalla ekki bara um
skörunga heldur líka þær sem unnu
verk sín í hljóði en lögðu samt mikið
af mörkum, þannig að útkoman er
þverskurður,“ segir Gunnhildur.
Spurð út í sérstöðu kvenna í Eyjum,
samanborið við konur annars stað-
ar nefnir Gunnhildur vatnsskortinn
sem setti sterkan svip á daglegt líf.
„Það kom ekki vatnsveita í Eyjum
fyrr en 1968 og ég á enn erfitt með
að láta vatn renna að óþörfu. Kon-
urnar í Eyjum lifðu í stöðugum
ótta við að missa feður sína og
eiginmenn í sjóinn. Svo var þessi
einangrun, það liðu mánuðir svo
ekki var fært milli lands og Eyja.
Ég er með mynd af síðasta flösku-
póstinum sem vitað er um, hann er
frá konu sem var að senda pabba
sínum bréf frá Eyjum upp á land
árið 1920.“
Hún hefur þá treyst á að aldan
skolaði flöskunni á land á réttum
stað. „Já, margt fólk sótti til Eyja
á vertíð undan Eyjafjöllunum, og
ílentist þar. Í ákveðinni suðvestan-
átt var viss möguleiki á að góss
frá Eyjum ræki upp á Skúmsfjöru
og það var skylda þess sem fann
flöskuskeyti að koma því í réttar
hendur því það gat flutt mikilvæg
skilaboð. Stundum fylgdi kannski
smá tóbaksögn með í flöskunni. Ég
geri ráð fyrir að skeytið sem ég er
með sýnishorn af sé sent meira til
gamans en alvöru því síminn kom
milli lands og Eyja árið 1911.“
Gunnhildur kveðst birta nokkur
viðtöl í bókinni. „Ég náði í skemmti-
legar konur sem sögðu mér frá
kreppunni, stríðsárunum, hermönn-
unum, skátunum og öllu mögulegu.
Ein fór skiptinemi til Grænlands,
önnur var kokkur á síldarbát og
fyrsta konan sem útskrifaðist raf-
virki segir frá því hvernig það gerð-
ist. Það rann líka upp fyrir mér hvað
Eyjakonur bjuggu við mikla angist
eftir gosið. Meðan karlmennirnir
voru að hamast við að bjarga öllu úti
í Eyjum voru þær hér og þar með
börnin og höfðu ekki hugmynd um
hvernig allt mundi enda.“
Þær þráðinn spunnu er gefin út
af FRUM, það fyrirtæki er í eigu
Gunnhildar og eiginmanns hennar,
Finns Eiríkssonar, og vinnur minni
prentverk og auglýsingar. Margar
myndir prýða bókina og Gunnhildur
lofar mjög söfnin í Eyjum og starfs-
fólkið þar. „Starfsfólk safnanna leit-
aði og gramsaði og fann allt mögu-
legt sem mér kom að gagni. Það var
ómetanlegt.“
Flöskuskeyti send milli Eyja og lands
Þegar Gunnhildur Hrólfsdóttir sagnfræðingur lagðist í grúsk um gengnar kynslóðir í Vestmannaeyjum rak hún sig á að kvenna væri þar
sjaldan getið. Nú hefur hún skrifað bókina Þær þráðinn spunnu sem fj allar um konurnar í Eyjum, líf þeirra, ástir, sorgir og sigra.
RITHÖFUNDURINN „Ég náði í skemmtilegar konur sem sögðu mér frá kreppunni, stríðsárunum, hermönnunum, skátunum og öllu mögulegu,“ segir Gunnhildur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
KONUR ÚR FORUSTULIÐI VERKA-
KVENNA Aftari röð: Ólafía Óladóttir, Helga
Rafns dóttir og Marta Þorleifsdóttir. Sitjandi
Margrét Sigurþórsdóttir og Dagmey Ein-
arsdóttir.
OLGA VOCAL ENSEMBLE Óhætt er að segja að tónlistin hafi runnið ljúflega niður, segir meðal annars í
dómnum. MYND/FELIPE PIPI
Svo var þessi einangrun,
það liðu mánuðir svo ekki
var fært milli lands og Eyja.
ÚR BÓKINNI Starfsstúlkur í Netagerð Vestmannaeyja í ferðalagi til Skotlands árið
1952. Efri röð: Dóra Steindórsdóttir, Erla Hermansen, Ásta Theodórsdóttir, Steina
Scheving, Ingólfur Guðbrandsson fararstjóri, Jónína Einarsdóttir, Svala Sölvadót-
tir, Ósk Guðjónsdóttir, óþekkt (var ekki starfsstúlka í Netagerðinni). Neðri röð frá
vinstri: Þyrí Ágústsdóttir, óþekkt, óþekkt, Ingibjörg Þórðardóttir, Soffía Björnsdóttir.
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
2
-8
7
9
C
1
5
A
2
-8
6
6
0
1
5
A
2
-8
5
2
4
1
5
A
2
-8
3
E
8
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K