Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 32
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 28
SPÁ FRÉTTABLAÐSINS
SÆTI 8 TIL 20Aðeins 3 DAGAR Í FYRSTA LEIK Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI 2015-2016
8. SÆTI SWANSEA CITY
9. SÆTI SOUTHAMPTON
10. SÆTI STOKE CITY
11. SÆTI CRYSTAL PALACE
12. SÆTI NEWCASTLE
13. SÆTI WEST HAM
14. SÆTI WEST BROMWICH
15. SÆTI SUNDERLAND
16. SÆTI BOURNEMOUTH
17. SÆTI ASTON VILLA
18. SÆTI OG FALL LEICESTER
19. SÆTI OG FALL NORWICH
20. SÆTI OG FALL WATFORD
Á morgun kemur í ljós hvaða lið
enda í 5. til 7. sæti í spánni.
ENDURKOMUSIGUR
4. maí á KR-velli
1. umferð Pepsi-deildar
3-1 sigur á KR
● KR-ingar voru yfir í 23 mín-
útur
● FH skoraði þrjú mörk á
síðustu 17 mínútum leiks-
ins
STEINLÁGU
17. maí á Vodafone-velli
3. umferð Pepsi-deildar
2-0 tap fyrir Val
● Sigurður Egill Lárusson
skoraði bæði mörk Vals
● Fyrsti marka- og stigalausi
leikur FH í 3 ár
BJÖRGUÐU STIGI Í
SEINNI HÁLFLEIK
26. maí á Samsung-velli
5. umferð Pepsi-deildar
1-1 jafntefli við Stjörnuna
● Stjarnan komst í 1-0 á 6. mínútu
● Stjörnumenn voru yfir í 54
mínútur
BJÖRGUÐU STIGI Í
BLÁLOKIN
21. júní í Kaplakrika
9. umferð Pepsi-deildar
1-1 jafntefli við Breiðablik
● Blikar voru yfir í 21 mínútu
● Kassim Doumbia jafnaði
fyrir FH í uppbótartíma
ÚR LEIK Í BIKAR
5. júlí á Alvogen-vellinum
8 liða úrslit Borgunarbikarsins
2-1 tap fyrir KR
● KR hefur unnið alla 3 bikar-
leiki liðanna frá 2011
● FH jafnaði tveimur mín-
útum eftir að KR komst í 1-0
● G. Martin skoraði sigurmark KR
HRUN Í
SEINNI HÁLFLEIK
19. júlí í Kaplakrika
12. umferð Pepsi-deildar
3-1 tap fyrir KR
● FH komst í 1-0 á 11. mínútu
● KR skoraði þrjú mörk á 12
mínútum
● FH var yfir í 45 mínútur
STÓRU PRÓFIN HJÁ FH-LIÐINU Í ÍSLENSKA FÓTBOLTANUM Í SUMAR
PIRRAÐIR BRÆÐUR Davíð Þór Viðarsson og Bjarni Þór Viðarsson eiga eitt hvað
óuppgert við KR-inginn Stefán Loga Magnússon. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
FÓTBOLTI FH og Heimir Guðjónsson fá
annað tækifæri á móti gamla læriföð-
urnum í kvöld þegar Ólafur Jóhannes-
son og hans menn í Val koma í heimsókn
í Kaplakrikann. Þarna mætast liðin í 1.
og 3. sæti Pepsi-deildarinnar – lið sem
gætu haft sætaskipti vinni Valsmenn
stóran sigur í leik kvöldsins.
Valsmenn unnu sannfærandi 2-0 sigur
í fyrri leik liðanna á Hlíðarenda, sem
var fyrsta af mörgum stórum prófum
sem FH-ingar hafa lent í vandræðum
með í deild og bikar í sumar.
FH-ingar hafa síðan spilað fjóra stór-
leiki í röð án þess að ná að fagna sigri
og hafa þar af tapað tvisvar fyrir KR-
ingum, í bæði deild og bikar. Það má sjá
yfirlit yfir leikina hér fyrir neðan.
Í báðum jafnteflisleikjum FH-liðsins,
á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar og
spútnikliði Breiðabliks lentu FH-ingar
undir en náðu að tryggja sér jafntefli
í seinni hálfleik. Jöfnunarmarkið gegn
Blikum kom í uppbótartíma.
Valsmenn hjálpa bæði sjálfum sér og
KR-ingum með sigri í kvöld en sigur
kæmi Hlíðarendaliðinu upp að hlið FH á
sama tíma og KR-ingar gætu náð þriggja
stiga forskoti með sigri á Fjölni í Grafar-
vogi.
FH-ingar þurfa hins vegar að fara að
sýna að þeir geti klárað stóru leikina
ætli þeir að endurheimta Íslandsbikar-
inn í Kaplakrika. Ólíkt KR og Val, sem
mætast í bikarúrslitaleiknum í ár, þá er
Íslandsmótið eini möguleiki FH-liðsins
á titli í ár. Það hefur lítið gengið á stóra
sviðinu og nú er að sjá hvort það verður
saga sumarsins eða hvort FH-ingar ætla
loksins að sýna klærnar í stórleik.
Það fer annars heil umferð fram í
kvöld og eftir hana eiga liðin aðeins sjö
leiki eftir af tímabilinu. Spennan er því
farin að aukast verulega í baráttunni á
toppi og botni Pepsi-deildarinnar.
Leikur ÍBV og Fylkis hefst klukkan
18.00 en klukkan 19.15 fara síðan fram
eftirtaldir leikir: Víkingur-ÍA, Breiða-
blik-Keflavík, Fjölnir-KR, Leiknir-
Stjarnan og loks leikur FH og Vals sem
verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Klukkan 22.00 gerir Hörður Magnússon
síðan upp umferðina í Pepsi-mörkunum.
ooj@frettabladid.is
FH-ingar strögla í stóru prófunum
FH tekur á móti Val í kvöld í stórleik fj órtándu umferðar Pepsi-deildar karla. FH-ingar eru á toppnum í deildinni en þeir geta þó ekki
þakkað það árangri liðsins í síðustu leikjum þess gegn hinum toppliðunum. Stórleikirnir hafa reynst Hafnfi rðingum þrautin þyngri.
100%
Valsmenn hafa unnið báða leiki
sína á móti efstu tveimur lið-
unum og markatala Vals er 5-0.
Íslenskir áhugamenn um enska boltann
eiga það flestir sameiginlegt að fylgjast
vel með gangi mála hjá eina Íslendingaliði
ensku úrvalsdeildarinnar burtséð frá því
með hvaða liði þeir halda í sjálfri deildinni.
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór
Sigurðsson stimplaði sig með frábærum
hætti inn í velska liðið Swansea City á
síðustu leiktíð og átti mikinn þátt í að
Swansea náði sínum besta árangri í ensku
úrvalsdeildinni frá upphafi, bæði hvað
varðar sæti og stig.
Áttunda sæti var þó ekki nóg til að skila
Swansea-liðinu í Evrópukeppnina, því þar
vantaði bara eitt sæti og fjögur stig upp
á. Southampton tók sjöunda og síðasta
Evrópusætið en nú er að sjá hvort Gylfi og
félagar geti tekið eitt skref upp og komið
liðinu í Evrópu.
Byrjun Gylfa á síðustu leiktíð var draumi
líkust, hann lagði upp fyrsta mark ensku
úrvalsdeildarinnar og skoraði síðan sigur-
markið sjálfur í 2-1 sigri á Manchester
United á Old Trafford. Swansea fær aftur
verðugt verkefni í fyrsta umferð þegar liðið
sækir Englandsmeistara Chelsea heim á
Stamford Bridge í kvöldleik laugardagsins.
Það er erfitt að ætlast til sömu draumabyrj-
unar og í fyrra, ekki síst þegar litið er til
þess að Swansea-liðið fékk á sig níu mörk
í tveimur leikjum við Chelsea á síðustu
leiktíð.
Fyrsti leikurinn ræður ekki úrslitum um
tímabilið hjá Swansea en getur vissulega
gefið tóninn fyrir leiktíðina.
Fréttablaðið býst við að Swansea
haldi áttunda sætinu og verði aftur að
sætta sig við það að rétt missa af sæti í
Evrópukeppninni. Hér til hliðar má sjá
fyrsta hlutann í spá Fréttablaðsins
fyrir tímabilið en við höldum síðan
áfram að spá næstu daga.
➜ Tekst Gylfa Þór Sigurðssyni og félögum í Swansea að tryggja sér Evrópusæti?
KL. 18:45
KÖRFUBOLTI Böðvar Guðjóns-
son, varaformaður körfuknatt-
leiksdeildar KR, sagði að sú nið-
urstaða að KR tæki ekki þátt í
Evrópukeppninni að þessu sinni
væri óvænt og svekkjandi. KR
stefndi að því að taka þátt í Evr-
ópukeppninni í haust en það
hefði verið í fyrsta sinn frá árinu
2007 sem íslenskt lið tæki þátt í
keppninni.
„Þegar þessi keppni var kynnt
fyrir okkur áttu 64 lið að taka þátt
en á síðustu stundu var ákveð-
ið að skera niður í 56 lið. Við
úthlutun sæta var síðan farið
eftir styrkleikalista og þar kom í
bakið á okkur að íslensk lið hafa
ekki tekið þátt undanfarin ár. Við
fengum einfaldlega ekki sæti að
þessu sinni vegna þátttökuleys-
is íslenskra liða undanfarin ár,“
sagði Böðvar, sem sagðist hafa
rætt við formann Körfuknattleiks-
sambands Íslands, Hannes S. Jóns-
son, um möguleika íslenskra liða á
erlendri grundu..
„Ég er búinn að vera í góðu sam-
bandi við Hannes sem er búinn að
vera að aðstoða okkur. Þetta mál
verður rætt á næsta stjórnarfundi
og vonandi gefst íslenskum liðum
tækifæri til að taka þátt á næstu
árum,“ sagði Böðvar.
Dregur ekki úr aðdráttarafli KR
Böðvar bjóst ekki við að þetta
myndi hafa áhrif á leikmanna-
mál en enn er eftir að ganga frá
samningi við Michael Craion.
„Þetta dregur að mínu mati
ekkert úr því aðdráttarafli sem
KR hefur. Árangurinn undanfar-
in ár hefur verið til fyrirmynd-
ar og hefur þetta verið góður
gluggi fyrir erlenda leikmenn
að sýna sig ásamt því að vinna
titla. Hann bað um samnings-
tilboð sem bíður í höndum hans
og ef svo ólíklega vill til að við
þurfum að leita að nýjum Kana
þá vitum við allavega hvernig
leikmann við þurfum.“ - kpt
Fáum vonandi tækifæri seinna
Þátttökuleysi íslenskra liða undanfarin ár kom í bakið á Íslandsmeisturunum.
FASTIR KR-ingar leika ekki í Evrópu eins
og til stóð á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPORT
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
2
-5
6
3
C
1
5
A
2
-5
5
0
0
1
5
A
2
-5
3
C
4
1
5
A
2
-5
2
8
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K