Fréttablaðið - 05.08.2015, Blaðsíða 38
5. ágúst 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 34
BESTI BITINN
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Kryddlegin hjörtu er nýjasta uppá-
haldið. Hlaðborð þar sem maður
getur borðað á sig gat af hollum og
góðum mat!
Anna Jia, nemi og fyrirsæta
HÁSKÓLABÍÓ 15. ÁGÚST 2015
ROKKABILLÝBANDIÐ
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á MIÐI.IS
HEIÐURSTÓNLEIKAR
„Ég er ekkert að fara að kveikja
í mér í Húsdýragarðinum en mér
finnst þetta ákaflega lélegt. Þarna
er hugrökk skepna búin að leggja
mikið á sig fyrir frelsið og henni
launað með því að senda hana í gin
refa,“ segir Haukur Viðar Alfreðs-
son, textasmiður hjá auglýsingastof-
unni Brandenburg og selavinur með
meiru. Hann stofnaði í gær Face-
book-síðuna Þyrmið lífi sprettharða
selkópsins.
Kópnum, sem slapp úr Húsdýra-
garðinum aðfaranótt mánudags var
slátrað í gær, þrátt fyrir að starfs-
menn Fjölskyldu-
og húsdýragarðs-
ins hefðu sagt að
hann fengi að lifa
fram á haust og
yrði þá notaður í
fóður fyrir refi.
Facebook-síð-
an sem Hauk-
ur Viðar stofn-
aði varð strax
mjög vinsæl og hafði tæplega þús-
und manns líkað við síðuna á fyrstu
fimm klukkustundunum. „Þetta
sýnir það og sannar að fólki er ekki
sama og maður spyr sig hvort það
megi ekki opna á þá umræðu að
dýragarðar séu tímaskekkja,“ segir
Haukur Viðar. „Ég fer ekki í Hús-
dýragarðinn, enda er ég með ofnæmi
fyrir flestum dýrum, ég fór síðast í
dýragarð í Þýskalandi árið 1992,
mér fannst það gaman en dýrunum
fannst það ekki, þó ég efist ekki um
að það sé ágætlega hugsað um þau.“
Hilmar Össurarson, settur yfir-
dýrahirðir, segir að kópnum hafi
verið lógað. „Á haustin og seinni part
sumars er öllum kópum lógað vegna
plássleysis,“ segir Hilmar.
Haukur Viðar segist hingað til
ekki hafa átt erindi í garðinn og að
lógun kópsins breyti svo sem engu
um það. - glp
Ætlar ekki að kveikja í sér en er ekki sáttur
Haukur Viðar Alfreðsson stofnaði Facebook-síðuna Þyrmið lífi sprettharða selkópsins. Kópnum var þó lógað.
Bandarískir miðlar hafa lofsamað
nýjustu plötu íslenska kammerhóps-
ins Nordic Affect en hún ber nafnið
Clockworking. Hún var til að mynda
plata vikunnar á útvarpsstöðinni
Q2 Music í Bandaríkjunum fyrir
skömmu. Platan kom út á heimsvísu
fyrir helgi en fer í dreifingu hér á
landi í dag.
„Við erum ótrúlega ánægðar með
þessi ofurjákvæðu viðbrögð. Það
er greinilega mikill áhugi fyrir
Clockworking og í raun bárust
ótrúlega sterk viðbrögð úr hinum
ýmsu áttum löngu áður en hún fór
í almenna dreifingu,“ segir Halla
Steinunn Stefánsdóttir, listrænn
stjórnandi kammerhópsins Nordic
Affect.
Frábær gagnrýni
„Þetta er þriðja platan okkar þó að
við höfum í raun spilað inn á sex
plötur alls. Sú síðasta var gefin út
í Hollandi og um var að ræða plötu
með barokktónlist sem heyrist
sjaldan eða nánast aldrei í heim-
inum. Clockworking er hins vegar
stútfull af magnaðri tónlist eftir
kventónskáld sem samin hefur
verið sérstaklega fyrir okkur og því
í okkar huga afurð frjós samstarfs.
Öll verkin má segja að eigi það sam-
eiginlegt að vera skrifuð á ótrúlega
næmum skala og í nokkrum verkum
fléttast inn í hana rafhljóð á borð
við náttúruupptökur og eitt falleg-
asta hljóð í heimi, barnahjal.“
Bandaríska tónlistarsíðan NPR
Music valdi titillag plötunnar inn
í seríuna „Songs We Love“. Önnur
bandarísk tónlistarvefsíða, Second
Inversion, gagnrýndi plötuna á
dögunum og endaði gagnrýnin á
því að segja að hver einasta mínúta
af þessari 45 mínútna löngu plötu
ætti skilið óskipta athygli hlustand-
ans. „Það er auðvitað mikill heið-
ur að komast á þennan spilalista
hjá NPR, við vitum að það er ekk-
ert grín að komast þangað inn og í
raun magnað að sjá tónlist, sem er
samkvæmt einhverjum mælistik-
um merkt sem nútímatónlist, vera
stefnt á lista með indí og poppi. Í
raun undirstrikar þetta að tónlist
er að breytast og landamæri að fær-
ast til og jafnvel mást út; á endanum
verður þetta bara kannski þannig að
við hlustum hreinlega á lög sem við
elskum svona til að vísa í NPR-hug-
myndina. Þar fyrir utan er auðvitað
ólýsanleg tilfinning að sjá að tón-
list sem maður ann og hefur þróast
með allt frá frumflutningi til upp-
töku er að hreyfa við fólki og virðist
um leið vera innlegg sem þeir, sem
hafa spáð í íslenska tónlist, eru mjög
spenntir fyrir.“
Björk og Sigur Rós mikil hjálp
Halla Steinunn segir að velgengni
annarra íslenskra tónlistarmanna
erlendis hafi auðvitað haft sitt að
segja hvað varðar hin jákvæðu við-
brögð sem nýja platan fær. „Auð-
vitað er maður þakklátur aðilum
á borð við Björk og Sigur Rós sem
hafa stimplað íslenska tónlist held-
ur betur inn á alheimskortið. Um
leið held ég að ekki margir viti
hér heima hvað tónskáld á borð
við Önnu Þorvaldsdóttur og Daní-
el Bjarnason eru að gera frábæra
hluti fyrir íslenska tónlist utan
landsteinanna og opna þar með
ýmsar dyr og kveikja áhuga fólks.“
Meðlimir hópsins eru, auk Höllu
Steinunnar, Georgia Browne, Guð-
rún Hrund Harðardóttir, Hanna
Loftsdóttir og Guðrún Óskarsdótt-
ir og einkennist starf hópsins af
nýstárlegri nálgun og frumleika í
verkefnavali. Hann var valinn flytj-
andi ársins á Íslensku tónlistarverð-
laununum í fyrra og tilnefndur til
Tónlistarverðlauna Norðurlanda-
ráðs 2013.
Bandaríska fyrirtækið Sono Lum-
inus gefur plötuna út en á henni er
að finna verk eftir fimm íslensk
tónskáld, þær Önnu Þorvalds-
dóttur, Hildi Guðnadóttur, Maríu
Huld Markan Sigfúsdóttur, Hafdísi
Bjarnadóttur og Þuríði Jónsdótt-
ur. Platan var tekin upp af Georg
Magnússyni og um hljóðblöndun og
eftirvinnslu sá Valgeir Sigurðsson
í Gróðurhúsinu. Halla segir hópinn
þegar vera í samningaviðræðum við
Bandaríkin um upptökur á næstu
plötu haustið 2016.
gunnarleo@frettabladid.is
Allt frá barnahjali yfi r
í náttúruupptökur
Kammerhópurinn Nordic Aff ect sendir frá sér nýja plötu sem hefur nú þegar
fengið frábæra dóma í erlendum miðlum. Björk og Sigur Rós hafa hjálpað mikið.
DÝR FLÓTTI Selkópnum var refsað fyrir
að reyna finna frelsið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HAUKUR VIÐAR
ALFREÐSSON
GÓÐIR DÓMAR Kammerhópurinn Nordic Affect sendi frá sér plötu sem hefur strax vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Platan
fer í dreifingu hér á landi í dag. MYND/DAVID OLDFIELD
Auðvit-
að er maður
þakklátur
aðilum á borð
við Björk og
Sigur Rós
sem hafa
stimplað íslenska tónlist
heldur betur inn á
alheimskortið.
Halla Steinunn Stefánsdóttir
0
4
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:4
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
A
2
-4
C
5
C
1
5
A
2
-4
B
2
0
1
5
A
2
-4
9
E
4
1
5
A
2
-4
8
A
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K