Fréttablaðið - 21.08.2015, Síða 18

Fréttablaðið - 21.08.2015, Síða 18
Í startholunum með stóru málin Síðari hálfleikur kjörtímabilsins er hafinn og þingflokkar búa sig nú undir þingsetningu. Fjöldi mála náði ekki í gegn á síðasta þingi. Ljóst er að enginn hörgull verður á ágreiningsefnum í vetur. Stutt er í hasarinn þar sem fjárlög næsta árs verða lögð fram í september. Uppboðsleið Við viljum að veiðiheimildir á nýjum tegundum fari beint á uppboð. Við viljum að makríll fari yfir í uppboðskerfi á sex árum og svo viljum við að næsta skref á eftir því sé að uppsjávarafli fari yfir í uppboðskerfi á aðeins lengra tímabili. Svo verði unnið að því að koma restinni inn í uppboðskerfi líka og allt verði þar á endanum. Gjaldmiðilsmál Við viljum að Ísland móti sér stefnu í gjaldmiðilsmálum. Við höfum flutt þetta áður og í rauninni að það sé mótuð stefna, tekin ákvörðun. Vernd uppljóstrara Ég hef nokkrum sinnum flutt heildar- lög um réttarstöðu uppljóstrara. Málið snýst um réttarstöðu þeirra sem hafa upplýst um misgjörðir innan stofnana og fyrirtækja, að þeir geti fengið réttar- stöðu sem uppljóstrarar, njóti verndar. Róbert Marshall Fjárlögin Fjárlögin eru það mikilvægasta. Við leggjum áherslu á að ná fram stefnu ríkisstjórnarinnar um að skila ríkissjóði með ríflegum afgangi. Lög um opinber fjármál Ég legg áherslu á að þingið beri gæfu til að setja lög um opinber fjármál fyrir áramót. Það er afar brýnt að það verði að lögum fyrir áramót til að hægt sé að ná enn frekari tökum á rekstri ríkisins. Gjaldtaka á ferðamenn Ég vil að það verði tekin ákvörðun fyrir áramót um það hvernig við högum gjaldtöku á erlenda ferðamenn til uppbyggingar ferðamannastaða. Ég er opin fyrir öllum hugmyndum og er í raun sama hvaða hugmynd verður efst á blaði, það þarf bara að vera þannig löggjöf að hún nái takmarki sínu og það verði lagt á einhvers konar gjald til að við getum farið að byggja upp ferða- mannastaði af krafti og verndað íslenska náttúru. Vigdís Hauksdóttir Leikskólar Það sem við munum í fyrsta lagi fylgja eftir eru mál sem koma til af skýrslu um leikskóla að loknu fæðingarorlofi. Það er lenging fæðingarorlofsins og sam- eiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga til þess að brúa bilið milli leikskóla og fæðingarorlofs. Auðlegðarskattur og Landspítali Þetta er mál frá síðasta þingi sem þrír þingmenn Vg voru á. Með þeim hætti að viðhalda auðlegðarskattinum höfum við sýnt fram á að það er unnt að fjármagna byggingu nýs Landspítala, sem verður ekki beðið lengur með. Það snýst ekki bara um heilbrigðiskerfið, heldur hvort Ísland er vænlegur kostur fyrir ungt fólk og menntað fólk næstu áratugina. Friðlýsing miðhálendisins Mér finnst líkur á að við verðum með mál sem snýst um friðlýsingu miðhá- lendisins. Við vorum með tillögu á síðasta þingi um Hofsjökulsþjóðgarð og við erum að tala um einn stóran þjóð- garð á miðhálendinu. Við sjáum að það er að aukast verulega stuðningur við það í samfélaginu öllu og teljum eðlilegt að það fái umræðu á þinginu, þar sem við væntum að það sé meiri stuðningur við það en var fyrir fárum árum. Svandís Svavarsdóttir Leikskólamál og auðlindaskattur Stjórnarskrá Við munum í fyrsta lagi leggja áherslu á stjórnarskrármálið, það mun reyna á í haust hvort saman næst um rétt til þjóðaratkvæðagreiðslu, þjóðareign á auðlindum og fleira. Velferðarmál Í öðru lagi velferðarmálin, einkum húsnæðismálin og möguleikar ungs fólks til að koma sér upp þaki yfir höfuðið og heilbrigðisþjónustan, að- búnaður hennar, kostnaðarþátttaka sjúklinga og fleira. Kjaramál Í þriðja lagi kjaramálin, einkum kjör aldraðra og öryrkja, leigjenda og starfsstétta sem setið hafa eftir við aðgerðir og kjarabætur á undan- förnum misserum. Helgi Hjörvar Stjórnarskrá og velferð Fjárlögin Það hvernig þau skiptast og eru áherslur þá væntanlega og vonandi í velferðar- málum og menntamálum. […] Fyrst og síðast vil ég sjá okkur veita aukið fé til þessara tveggja máttarstoða, því það skiptir máli fyrir framtíðina. Það þarf að horfa til framtíðar samhliða því sem við veitum aukið fjármagn, ekki bara að viðhalda einhverju sem er, heldur horfa til lengri tíma um hvert við viljum stefna og hvar við viljum sjá okkur eftir fimm eða tíu ár. Náttúruverndarlög Þeim var frestað enn einn ganginn. Þingið verður bara að hafa kjark til að ljúka þeim með einhverjum hætti. Þetta er það sem ég held að verði stærstu málin í vetur. Rammaáætlun Um hana var samið  þegar Hvamms- virkjun var ein og sér tekin út í vor. Það er eitt af stóru málunum sem verða til umræðu á þingi. Ragnheiður Ríkharðsdóttir Aukið fé í heilbrigðismál Fjármál og ferðamenn Allan afla á markað Lýðræðismál og efling borgararéttinda Það sem mér þykir augljósast að þurfi meiri umræðu eru lýðræðisumbætur og efling borgararéttinda. Ég segi alla- vega fyrir sjálfan mig að í ljósi þess sem gerðist á Extreme Chill, til dæmis, sé ljóst að mál eins og sjálfstætt eftirlit með lögreglu fái ekki að liggja óhreyfð. Við komum til með að leggja það aftur fram. Höfundarréttarmál Það verður væntanlega aftur lagt fram af menntamálaráðherra. Flokkurinn byggir að mörgu leyti á þessum tveimur málum; endurskoðun fíkniefnalög- gjafarinnar og ný hugsun í höfundar- réttarmálum. Svo legg ég náttúrulega líka fram þings- ályktunartillögu um að þjóðaratkvæða- greiðslan frá 20. október 2012 verði virt, sem varðar um stjórnarskrána. Fíkniefnastefna Það mál mun aftur koma til umræðu, það má búast við því. Við höfðum því miður ekki nægilegan tíma til að leggja fram almennilegt nefndarálit með því. Prinsippmál flokks og þjóðar Helgi Hrafn Gunnarsson Alþingi verður sett 9. september og þá má segja að síðari hálfleikur kjörtímabilsins sé formlega hafinn. Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar tók við árið 2013 og hefur því setið í tvö þing og á nú tvö eftir. Fréttablaðið ákvað að slá á þráðinn til formanna þingflokkanna og bað þá að nefna þau þrjú mál sem þeir legðu helst áherslu á í vetur. Hvorki náðist í formann né varaformann Framsóknarflokksins og því varð Vigdís Hauksdóttir, formaður fjár- laganefndar, fyrir svörum. Ólíkar áherslur? Vigdís leggur mikla áherslu á fjár- málin og að ná að reka ríkissjóð með afgangi. Þá hugar hún líka að tekju- hliðinni, en hún segir að setja þurfi lög um gjaldtöku á erlenda ferða- menn fyrir áramót. Samstarfskona hennar úr stjórnarliðinu, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, leggur hins vegar áherslu á að setja verði meiri fjár- muni í heilbrigðis- og menntakerfið. Ljóst er að þar er enginn hörgull á tækifærum til að bæta við fjármunum og því er spurning hvernig þessar ólíku áherslur þingmanna stjórnar- liðsins fara saman, nema það finnist leið til að auka tekjurnar töluvert. Báðar eru þær Ragnheiður og Vigdís þó sammála um að fjárlögin séu stóra málið. Ragnheiður nefnir líka umhverfis- málin, líkt og Svandís Svavarsdóttir hjá Vinstri grænum. Það er þó ekki á vísan að róa með það að þær séu sam- mála um hvaða áherslur eigi að leggja í þeim efnum. Tækifærið nýtt? Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa mælst illa í skoðanakönnunum, fyrir utan Pírata sem fara með himinskaut- um. Þeir verða því að spýta í lófana, ætli þeir að höfða til kjósenda, það eru tæplega tvö ár í næstu kosningar. Vinstri græn leggja áherslu á leik- skólamál og friðlýsingu hálendisins, auk þess sem flokkurinn vill að auð- legðarskattur verði nýttur til að reisa Landspítala. Björt framtíð vill að allur fiskur fari á markað, Ísland móti sér stefnu í gjaldmiðilsmálum og að réttar staða uppljóstrara verði tryggð. Samfylkingin mun leggja áherslu á stjórnarskrána, velferðar- og kjara- mál og Píratar vilja breytta fíkniefna- löggjöf og höfundaréttarlöggjöf, auk þess sem réttindi borgaranna verði betur tryggð. Af þessari samantekt má sjá að nóg verður um að deila á þingi í vetur og ekki endilega víst að samstaðan verði þar meiri en á síðasta þingi. Um helmings árangur Eitt er að leggja fram frumvörp og annað að þau verði að lögum. Á síð- asta þingi voru lögð fram 207 frum- vörp og alls urðu 105 að lögum, rétt rúmlega helmingur. Staðan var enn verri þegar kom að þingsályktunartil- lögum, af 115 voru 22 samþykktar en 93 óútræddar. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að ekki náist að afgreiða öll mál, en það setur vissulega strik í reikning ríkisstjórnarinnar ef hún nær málum sínum ekki í gegn. Af 123 stjórnar- frumvörpum á síðasta þingi voru 90 samþykkt, 33 biðu umræðu eða sátu í nefnd. Þá voru 365 skriflegar fyrir- spurnir lagðar fram og 319 þeirra svar- að, 37 biðu svars er þingi var frestað en níu voru felldar niður vegna ráð- herraskipta. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, lagði á það ríka áherslu á síð- asta þingi að mál kæmu fyrr inn í þing- ið. Þar brýndi hann ekki síst ráðherra, en nokkuð bar á því að mál kæmu seint inn. Hver raunin verður á þessu þingi verður tíminn að leiða í ljós, en forseti mun áfram leggja áherslu á að starfsáætlun þingsins haldi. Ekki er ólíklegt að titringur sé kominn í þingmenn af til- hlökkun fyrir þing- setningu níunda næsta mánaðar. Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Áherslumál stjórnmálaflokkanna Fréttablaðið/Vilhelm F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R1 6 2 0 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :5 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 D 5 -C 0 6 0 1 5 D 5 -B F 2 4 1 5 D 5 -B D E 8 1 5 D 5 -B C A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.