Fréttablaðið - 21.08.2015, Síða 28

Fréttablaðið - 21.08.2015, Síða 28
✿ Munur á orkukostnaði sambærilegra bifreiða Flestum er orðið það ljóst að ekki verður lengur beðið með afgerandi aðgerðir í loftslags- málum en einhverra hluta vegna er lítið um stórtækar aðgerðir hjá ráðamönnum. Einu leiðirnar til að draga verulega úr jarðefnaelds- neytisnotkun felast í betri nýtni og notkun umhverfisvænni orkugjafa. Á Íslandi notar almenningur aðeins jarðefnaeldsneyti í samgöngum og á því sviði liggur meginverkefnið næstu árin. Það eru ekki lengur nein tæknileg vandkvæði í orkuskiptum í samgöngum; lausnirnar eru komnar og hér eftir snýst þetta eingöngu um innleiðingarhraða. Það er hægt að hafa áhrif á neytendur þegar kemur að samgöngum og mörg dæmi um að breytingar á opinberum gjöldum hafi breytt markaðshlutdeild bifreiða. Pallbílar, sem áður sáust eingöngu til sveita, urðu alltof algengir í þéttbýli þegar óheppileg ívilnun var innleidd á sínum tíma. Mun jákvæðari gjald- breyting var innleidd þegar innflutn- ingsgjöld á bíla voru tröpputengd við útblástursgildi í stað tveggja þrepa kerfis. Markaðurinn brást hratt við og meðalútblástursgildi nýskráðra bifreiða hefur hrunið úr yfir 200 g/ km árið 2005 niður undir 130 g/km nú 10 árum síðar. Margir fleiri ættu auðvitað að hoppa á ívilnana- og innleiðingar- vagninn. Sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki geta með ýmsum hætti lagt sitt af mörkum. Til dæmis með bættu aðgengi að umhverfisvænni orku, fjöl- breyttara úrvali af farartækjum, betri bílastæðum, lægri tryggingum, afslætti í skoðun, samgöngustyrkjum til starfs- manna o.s.frv. Núorðið dylst það fæstum að ekki verður hjá því komist að skipta yfir í aðra orkugjafa hvort sem það er vegna aðgerða í loftslagsmálum eða út frá þeirri einföldu staðreynd að olían er endanleg auðlind. Tveir góðir kostir eru tilbúnir að taka við keflinu, í mis- miklum mæli. Hér er um að ræða raf- orku og metan sem eru bæði innlendir og umhverfisvænir orkugjafar. Sem betur fer hafa stjórnvöld innleitt íviln- anir til að auka hlutdeild þessara kosta. Metan og rafmagn eru ekki skattfrjálsir orkugjafar eins og stundum er haldið fram enda með fullan virðisaukaskatt en hins vegar eru þessir orkugjafar undanþegnir olíugjöldum sem eiga að standa undir vegakerfinu. Bent hefur verið á að þessir bílar keyri frítt á vegum landsins. Vissulega er það rétt og slíkar undanþágur ekki mögulegar til langs tíma en á meðan hlutdeild nýorkubíla er enn undir 1% af heildar- flotanum þá eru þetta ótímabærar áhyggjur að mínu mati. Hvernig koma þessar ívilnanir út gagnvart neytendum sem eru að huga að umhverfisvænni bílakaupum? Það er mjög erfitt að bera saman bíla þar sem útlit, tegund, litur og glasahaldarar trufla oft tæknilegan samanburð. Það er hins vegar til bifreið á markaði sem er til í bensín-, dísil-, metan- og raf- magnsútgáfu og hentar því vel til sam- anburðar. Bifreiðin er Volkswagen Golf en hún hefur selst vel í gegnum tíðina hér sem erlendis. Samanburðurinn sem settur er fram hér til hliðar er ein- faldur og ekki teknir inn þættir eins og t.d. afskriftir, fjármagnskostnaður og þjóðhagsleg áhrif heldur einungis inn- kaupsverð og þriggja ára orkukostn- aður. Miðað er við núverandi verðlag á bíl og orku og 20.000 km akstur á ári. Eins og sjá má duga núverandi íviln- anir að miklu leyti til að gera orku- skiptin álitleg gagnvart neytendum. Metanbifreiðin er bæði ódýrari í innkaupum og rekstri og í raun án vandkvæða enda eru metanbifreiðar tvíorkubílar og geta ekið á bensíni ef langt er í næstu metanstöð. Reyndar er komin metanstöð á Akureyri og nokkrar á höfuðborgarsvæðinu. Það er því í raun hálfgalið að velja bensín- bílinn umfram metanbílinn. Rafbíllinn er nokkuð dýrari í innkaupum þrátt fyrir ívilnanir en afar lágur rekstrar- kostnaður étur upp muninn með tals- verðum hraða. Það er ekkert leyndarmál að ríkis- sjóður verður af skatttekjum á meðan ívilnanir gilda en ef stjórnmálamenn meina eitthvað með yfirlýsingum sínum um nauðsynlegar aðgerðir í loftslagsmálum þá er þetta réttlætan- legur stríðskostnaður í baráttunni við jarðefnaeldsneytið og loftslagsbreyt- ingar. Ef ráðamenn eru að tapa sér yfir töpuðum tekjum ríkissjóðs er lítið mál að hækka kolefnisgjald á olíulítrann um 2-3 krónur til að bæta upp tekju- tapið og rúmlega það. Það eina sem vantar er stefna um ívilnanir til lengri tíma, t.d. 10 ár eða þangað til 10% flot- ans ganga fyrir umhverfisvænni orku. Eftir það verður samkeppnisstaða nýorkubíla líklega og vonandi betri og þörf fyrir ívilnanir minni eða engar. Flóknara er þetta nú ekki. Innleiðingarhraðinn Tegund Verð [kr.] Orka [kr./ár] Samtals [kr./3 ár] CO2 áhrif [kg/ár] VW Golf Comfortline bensín 3.750.000 215.000 4.395.000 2.300 VW Golf Comfortline dísill 4.190.000 152.100 4.646.300 2.000 VW Golf Comfortline metan 3.590.000 104.300 3.905.000 0 VW e-Golf rafmagn 4.590.000 33.020 4.689.060 0 Ég hef lengi barist fyrir því að þjóðin fái fullt gjald fyrir afnot af fiskveiðiauðlindum sínum. Einföld og góð markaðslausn sem myndi tryggja það væri uppboð á veiðiheimildum. Rökin sem ég hef lagt áherslu á eru aðallega af tvennum toga. Annars vegar er skýrt kveðið á um það í lögum að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar. Í því ljósi er í hæsta máta óeðlilegt að þeim sé ráðstafað til fámenns hóps útvalinna án þess að fullt gjald sé tekið fyrir. Hins vegar eru leigutekjur af veiðiheimildum langhagkvæmasta tekjulindin sem ríkissjóður á völ á. Ef ríkissjóður fengi 40 milljarða króna árlega í leigutekjur af veiðiheimildum væri unnt að lækka skatta til muna eða bæta velferðarkerfið til muna. Pólitísk áhrif útgerðarmanna En það eru önnur rök fyrir uppboði á veiðiheimildum sem ég tel að séu ekki síður mikilvæg. Núverandi gjafa- kvótafyrirkomulag hefur orðið til þess að fámennur hópur útgerðarmanna hefur orðið ævintýralega auðugur á íslenskan mælikvarða. Þessi ævin- týralegi auður hefur gert útgerðar- mönnum kleift að kaupa sér gríðarleg áhrif þegar kemur að stjórnmálum og þjóðfélagsumræðu í landinu. Útgerðarmenn kosta að stórum hluta núverandi stjórnarflokka. Þeir eiga enn fremur einn af stærstu fjöl- miðlum landsins og nota hann meðal annars til þess að halda uppi stans- lausum árásum á aðra fjölmiðla. Kosn- ingabarátta fjölmargra þingmanna og sveitar stjórnar manna í próf kjörum er að stórum hluta kostuð af útgerðar- mönnum. Sumir þingmenn hafa meira að segja lýst því yfir að þeir séu fulltrúar útgerðarmanna á þingi. Þessir tilteknu auðmenn hafa vita- skuld sérstaklega mikla hagsmuni af því að kaupa sér pólitísk áhrif. Það er vegna þess að stór hluti auðsins sem þeir eiga er til kominn vegna þeirra forréttinda að fá kvóta úthlutaðan langt undir markaðsverði. Þessi for- réttindi þarf að verja. Þau eru um 40 milljarða króna virði árlega. Nokkrir tugir milljóna í pólitísk framlög eru því smámunir í samanburði. Bjöguð þjóðfélagsumræða Ævintýralegur auður útgerðarmanna er farinn að eitra verulega alla póli- tíska umræðu í landinu. Áróður sem hentar útgerðarmönnum í alls kyns málum bylur á landsmönnum dag- inn út og daginn inn. Alls kyns hálf- sannleikur og smjörklípur eru endur- teknar svo oft að þær síast inn í vitund þjóðarinnar og brengla þjóðfélagsum- ræðuna útgerðarmönnum í hag. Þeir sem reyna að tala fyrir hagsmunum almennings þurfa sífellt að eiga í höggi við risavaxna áróðursmaskínu sem hefur aðra hagsmuni að leiðar- ljósi. Kostnaður almennings af þessu ástandi er án efa langtum meiri en auðlindaarðurinn sjálfur þar sem alls kyns önnur framfaramál þjóðarinnar verða fyrir barðinu á sérhagsmunum útgerðarmanna. Pólitísk atburðarás síðustu daga sýnir skýrar en áður hversu mikil og slæm áhrif hinn ævintýralegi auður útgerðarmanna er farinn að hafa á stjórnmál á Íslandi. Þegar formaður Sjálfstæðisflokksins er farinn að setja spurningamerki við það að Ísland taki þátt í samvinnu vestrænna lýðræðis- ríkja í öryggis- og varnarmálum, sem snúa að því að refsa ríki sem ráðist hefur með hervaldi á nágrannaþjóð sína, er fátt orðið heilagt fyrir sér- hagsmunum útgerðarmanna. Höfum í huga að markmiðið með þessari grundvallarstefnubreytingu í utan- ríkismálum væri að verja innan við 5% af útflutningi þjóðarinnar (sem nýir markaðir munu án efa finnast fyrir með tímanum). Nóg komið? Sýnir þessi atburðarás ekki að áhrif útgerðarmanna á stjórnmálin á Íslandi eru orðin miklu meira en ótæpileg? Sýnir hún ekki að þau hafa ekki einungis veruleg neikvæð áhrif á lífskjör almennings heldur eru bein- línis farin að stofna öryggi landsins til lengri tíma litið í hættu? Er ekki tími til kominn að gjafakvótinn (rót vand- ans) sé afnuminn í eitt skipti fyrir öll áður en útgerðarmenn valda þjóðinni varanlegum skaða með skammsýnni sérhagsmunagæslu sinni? Það er einfalt að ráða bót á þessu. Til þess þarf einungis að bjóða upp veiði- heimildir. Eitraður útgerðarauður Sá sem ritar þessa grein hefur lengi starfað við stjórnun á margvíslegan hátt. Stjórnun er heillandi viðfangsefni. Með réttum stjórnunaraðferðum er hægt að vinna glæsta sigra. Á sama hátt getur vanstjórnun leitt til mikils tjóns. Su m a r a f h e l s t u s t j ó r n - unarkenningum síðustu áratuga eru kenndar við „vísindalega stjórnun“ (e. Scientific management). Með vís- indalegri stjórnun er átt við aðferðir til að auka framleiðni fyrirtækja með því að greina verkferla og auka hag- kvæmni þeirra. Vísindaleg stjórnun var bylting sem leiddi til mikilla framfara en vera má að stjórnendur og leiðtogar samtímans þurfi að til- einka sér öðruvísi nálgun. Fyrir nokkrum árum las ég áhugaverða grein eftir danskan prófessor. Prófess orinn hafði tekið saman tölfræðilegar upplýsingar um kostnaðarframúr keyrslu í 111 stórum samgöngu verkefnum á tíma- bilinu 1920-2000. Í ljós kom að 9 af 10 verkefnum stríddu við kostnaðar- framúrkeyrslu sem er merkilegt í sjálfu sér. En áhugaverðustu tíðindin voru samt þau að á þessum 80 árum höfðu engar merkjan legar framfarir orðið við gerð kostn aðaráætlana nema síður væri. M.ö.o. að árið 2000 var jafnvel líklegra að framlögð kostnaðaráætlun væri röng en árið 1920! Þessi niðurstaða fannst mér svo áhugaverð að ég ákvað að gera svipaða rannsókn á íslenskum verk- efnum. Ég aflaði mér eftir föngum upp lýsinga um stærri opinber verk- efni síðustu áratugi. Niðurstaðan reyndist sú sama og hjá danska prófess ornum, þ.e. um 90% þeirra fóru framúr kostnaði og framfarir við áætlanagerð ekki greinanlegar. Væntanlega eru allir sammála um að óvæntur kostnaður er óæski- legur. Höfum í huga að einhver þarf að borga vanáætlaðan kostnað hvort sem honum líkar betur eða verr. Kannski hluthafinn, eða viðskipta- vinurinn eða skattgreiðandinn. Ein- hver þarf alltaf að borga að lokum. Mikilvægasta spurningin er vitan- lega þessi; af hverju vanáætlum við kostnað í jafn ríkum mæli? Einfalda skýringin er að kenna um ófull- komnun aðferðum og þekkingar- skorti. En þessi skýring stenst alls ekki þegar nánar er að gáð því þá væru kostnaðarfrávikin dreifð, þ.e. að stundum er vanáætlað og stund- um ofáætlað. En það er alls ekki raunin því bæði mínar rannsóknir og danska rannsóknin benda til að vanáætlun kostnaðar sé nánast nátt- úrulögmál. Orsökin er þekkt í dag. Hún liggur m.a. í því hvernig hugur okkar vinn- ur úr upplýsingum og bregst við umhverfinu. Ekki gefst færi á að fara nánar út í þá sálma hér en látið nægja að segja að eitt mest spennandi nýja svið verkfræðinnar er að nýta hug- rænar aðferðir til að bæta stjórnun og ákvörðunartöku. Hið virta tíma- rit Times kallar hug rænu aðferðina Mindfulness „byltingu“ í forsíðufrétt fyrir skemmstu. Mörg af merkustu fyrirtækjum okkar samtíma s.s. Google, Apple, Harvard Business School, Facebook o.fl. kepp ast við að lofa hina svonefndu Mindful leið- togabyltingu (e. The Mindful Leader- ship Revol ution). Ekkert svið hug- og félagsvísinda er rannsakað meira um þessar mundir en Mindfulness sem segir sína sögu um þær væntingar sem bundnar eru við aðferðina. Verkfræðingurinn sem varð „Mindful“ Jón Steinsson hagfræðingur Guðmundur Haukur Sigurðarson framkvæmdastjóri VistorkuÞórður Víkingur Friðgeirsson verkfræðingur og lektor við HR 2 1 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R2 6 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð Þessir tilteknu auðmenn hafa vitaskuld sérstaklega mikla hagsmuni af því að kaupa sér pólitísk áhrif. Það er vegna þess að stór hluti auðsins sem þeir eiga er til kominn vegna þeirra forrétt- inda að fá kvóta úthlutaðan langt undir markaðsverði. Pallbílar, sem áður sáust ein- göngu til sveita, urðu alltof algengir í þéttbýli þegar óheppileg ívilnun var inn- leidd á sínum tíma.Mikilvægasta spurningin er vitanlega þessi; af hverju vanáætlum við kostnað í jafn ríkum mæli? Einfalda skýringin er að kenna um ófullkomnun aðferðum og þekkingarskorti. En þessi skýring stenst alls ekki þegar nánar er að gáð því þá væru kostnaðarfrávikin dreifð, þ.e. að stundum er vanáætlað og stundum ofáætlað. 2 0 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :5 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 D 6 -0 A 7 0 1 5 D 6 -0 9 3 4 1 5 D 6 -0 7 F 8 1 5 D 6 -0 6 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.