Fréttablaðið - 21.08.2015, Page 42

Fréttablaðið - 21.08.2015, Page 42
Lífið HEIMASÍÐAN AÐ LEYFA SÉR MUNAÐ ÞARF EKKI AÐ KOSTA ALEIGUNA  /healthyholisticliving Heilsan í fyrirrúmi Vissir þú að þú getur oftast nær skipt út mjólkurvörum fyrir lárperu (avókadó)? Hér er fullt af sniðugum heilsuráðum og uppskriftum fyrir þá sem vilja breyta um lífsstíl eða prófa að gera sína uppáhaldsrétti hollari. Það má því bæði læra ein- hverjar nýjar uppskriftir og kynnast nýju hráefni en einnig læra hvern- ig má hámarka næringarinnihald málsverðarins og bæta lífsgæðin. /kidsaretheworst Uppgefnir foreldrar Kids are the worst er bráðfynd- in Instagram-síða þar sem búið er að safna saman myndum frá upp- gefnum foreldrum eða prakkara- strikum barna. Sem foreldri ættirðu að kannast við einhvern verknað- inn sem myndirnar eru af. Þetta er ein af þessum síðum sem fær mann til þess að skella upp úr og reynd- ar stundum krossa sig yfir því að börnin manns hafi ekki tekið upp á þessu, að minnsta kosti ekki enn.  /itsmomtastic Mömmur mæla með Mömmur deyja ekki ráðalausar. Hvort sem þig vantar ráðgjöf um tísku, heilsu, útlit eða tillögur að skemmtilegum skreytingum í matar- boðum og afmælum þá má finna allt og meira til hér. Það eru yfir fjögur þúsund pinnar í þessi borði og flest málefni undir sólinni eru tekin fyrir. Síðan hefur hlotið tvenn vefverðlaun svo það er vissara að fylgjast með henni þessari. www.thebudgetbabe.com Skynsöm skvísa sparar Oftar en ekki er hægt að finna ódýrari útgáfu af dýrum vörum án þess að fórna gæðunum. Þetta tískublogg bendir á skó, fatnað og snyrtivörur og ber saman dýrari vör- una og sambærilegar ódýrari vörur. Þær standast oftast samanburðinn og er hægt að næla í ótal ráð um hvenær sé þess virði að splæsa og hvenær að spara. ADV_MORPH_pagina_INGLESE_MORPHOSIOS 2014 27/02/14 11:48 Pagina 1 Þétt og mikið hár ber ekki einungis vott um heilbrigði og fegurð heldur líka öryggi og sjálfsálit. Bláberjaþykkni, prótein, vítamín og stofnfrumur úr eplum eru grunnurinn til að stöðva niðurbrot og stuðla að þéttleika með því að örva hársekkinn. Fyrir sterkari og heilbrigðari hárrót. Kraftar Miðjarahafsins framesi.is Eingöngu selt á hárgreiðslustofum Morphosis hárlínan frá Framesi: Þykkara og sterkara hár - Gæðahárvörur með mjög öflugri virkni Morphosis Densifying-línan frá Framesi er fyrir viðkvæmt og fínt hár. Hún örvar hárvöxt, virkjar blóðrásina, stuðlar að þykkara hári og styrkir hársekkina og hárstráin. Hún innheldur stofnfrumur úr eplum sem hefur verið sýnt fram að stuðla að endurnýjun og frest erkjum öldrunar í húð og hári. Eingöngu selt á hárgreiðslustofnum Virknin kemur úr náttúrunni 2 0 -0 8 -2 0 1 5 2 3 :5 7 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 D 5 -F 6 B 0 1 5 D 5 -F 5 7 4 1 5 D 5 -F 4 3 8 1 5 D 5 -F 2 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.