Fréttablaðið - 21.08.2015, Side 48
FÓTBOLTI „Hann má vera stoltur af okkur
held ég,“ segir Gunnleifur Gunnleifsson,
markvörður karlaliðs Breiðabliks þegar
hann er spurður út í markmannsþjálf-
ara Blika, Ólaf Pétursson. Ólafur getur
heldur ekki mikið kvartað yfir mark-
vörðunum sínum í sumar. Gunnleifur
hefur þegar haldið átta sinnum hreinu
og fengið fæst mörk á sig af mark-
vörðum Pepsi-deildar karla. Sonný
Lára Þráinsdóttir hefur síðan gert enn
betur, hún hefur haldið hreinu í 11 af 13
leikjum Blikanna í Pepsi-deild kvenna
og fékk síðast á sig mark í 3. umferð í
maí.
„Ólafur Pétursson er frábær mark-
mannsþjálfari. Hann skilur leikinn
svo vel og það er gott að ræða hlutina
við hann. Hann er ekkert að finna upp
hjólið í þessum efnum,“ segir Gunnleif-
ur. Ólafur er ekki aðeins markmanns-
þjálfari Sonnýjar því hann er einnig
aðstoðarþjálfari liðsins.
„Við erum með sama markmanns-
þjálfara og það hlýtur að segja eitthvað,“
segir Sonný. Hún hefur haldið hreinu í
11 leikjum en vill ekki vera að gera of
mikið úr þeirri tölfræði.
„Það er miklu mikilvægara að fá öll
þrjú stigin en hvort þú heldur hreinu
eða ekki. Það hjálpar hins vegar mikið
að fá ekki á sig mark,“ segir Sonný létt.
„Þetta hefur smollið rosalega vel
saman hjá okkur. Ég er að tala mikið við
þær og þær við mig. Öll varnarlínan er
búin að standa sig gríðarlega vel,“ segir
Sonný. Hún eins og Gunnleifur leggur
áherslu á það að þetta snúist nú ekki
bara um markvörðinn.
„Það er ekki bara ég sem er að halda
hreinu því varnarleikurinn er búinn
að vera mjög góður alveg frá fremsta
manni. Það er það sem skilar þessu
því ef ég væri einn í marki þá væri ég
búinn að fá þúsund mörk á mig,“ segir
Gunnleifur. Hann er samt sáttur með
sitt sumar. „Ég er ánægður með mína
frammistöðu og ég held að Óli sé það
líka,“ segir Gunnleifur.
Sonný Lára verður 29 ára seinna á
þessu ári en hún hélt lengi tryggð við
Fjölnisliðið. „Ég kom bara í Breiðablik
í fyrra og þetta er því bara annað tíma-
bilið mitt. Ég hef ekki verið í titilbaráttu
í úrvalsdeild áður. Við vorum að elta
mikið í fyrra og þetta er því nýtt fyrir
mér,“ segir Sonný sem var í baráttunni
á botni deildarinnar þegar hún var í
Fjölni.
„Það er miklu skemmtilegra að vera
í toppbaráttunni,“ segir Sonný en af
hverju Breiðablik? „Ég var búin að vera
í 1. deildinni með Fjölni í þrjú sumur og
langaði að prófa að fara í úrvalsdeildina
áður en ég hætti. Ég vildi ekki bíða of
lengi. Ég tók slaginn í fyrra og sé ekki
eftir því núna,“ segir Sonný.
Gunnleifur Gunnleifsson fagnaði
fertugafmæli sínu á dögunum og hefur
sjaldan leikið betur en í sumar sem er
hans þriðja tímabil með Breiðabliki.
„Ég skil það svo sem vel að fólk sé
að tala um að ég sé orðinn 40 ára. Það
er allt í lagi og truflar mig ekki neitt.
Skrokkurinn á mér er í góðu standi og
ég nýt þess bara að spila með frábæru
liði og frábærum strákum. Það gengur
vel. Þegar fótboltinn gengur vel þá
gengur lífið yfirleitt vel hjá okkur fót-
boltamönnunum,“ segir Gunnleifur í
léttum tón.
Hann hrósar Sonný og kvennaliðinu.
„Það er frábær árangur hjá henni og
kvennaliði Blika að vera bara búnar
að fá á sig tvö mörk. Sonný er líka búin
að standa sig frábærlega. Hún hefur
marga góða kosti sem markmaður
og er ótrúlega flott manneskja,“ segir
Gunnleifur.
Hann yfirgaf FH sem Íslandsmeist-
ari eftir 2012-tímabilið en hvorki
hann né FH hafa unnið titilinn síðan.
Nú er hann ásamt Blikaliðinu í bar-
áttunni um titilinn við FH.
„Auðvitað viljum við verða Íslands-
meistarar og við teljum okkur vera
með nógu gott lið til þess að fara alla
leið,“ segir Gunnleifur.
Blikar eiga möguleika á að vinna
tvöfalt enda bæði liðin búin að safna
mörgum stigum í sumar. „Það er rosa
stemning í félaginu og búið að vera í
allt sumar og í vetur líka. Það er vel
hugsað um kvennaliðið hjá okkur
og allt til alls fyrir bæði liðin,“ segir
Gunnleifur.
Sonný Láru vantar „bara“ 80 mín-
útur upp á að halda marki sínu hreinu
í þúsund mínútur í Pepsi-deildinni
en það mun reyna á hana og Blika-
vörnina í kvöld þegar liðið heimsækir
Íslandsmeistara Stjörnunnar í Garða-
bænum. „Þær eru búnar að styrkja sig
mikið síðan í síðasta leik við okkur og
komnar með fjóra nýja erlenda leik-
menn. Við erum ekkert smeykar. Þær
eru vissulega með hörkulið en við
erum með hörkulið líka,“ segir Sonný.
ooj@frettabladid.is
Sonný Lára Þráinsdóttir og Gunnleifur Gunnleifsson hafa staðið vaktina í marki Breiðabliks í Pepsi-deildunum í sumar og engir markverðir hafa haldið oftar hreinu. Fréttablaðið/Anton Brink
2 1 . Á G Ú S T 2 0 1 5 F Ö S T U D A G U R3 0 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
3
10
17
24
31
4
11
18
25
5
12
19
26
6
13
20
27
7
14
21
28
1
8
15
22
29
2
9
16
23
30
7
14
21
28
1
8
15
22
29
2
9
16
23
30
3
10
17
24
4
11
18
25
5
12
19
26
6
13
20
27
5
12
19
26
6
13
20
27
7
14
21
28
1
8
15
22
29
2
9
16
23
30
3
10
17
24
31
4
11
18
25
2
9
16
23
30
3
10
17
24
31
4
11
18
25
5
12
19
26
6
13
20
27
7
14
21
28
1
8
15
22
29
Maí
Júní
Júlí
Ágúst
S M Þ M F F L
Markverðir Blika
Það er ekki bara ég sem
er að halda hreinu því
varnarleikurinn er búinn
að vera mjög góður alveg frá
fremsta manni. Ef ég væri
einn í marki þá væri ég búinn
að fá þúsund mörk á mig
Gunnleifur Gunnleifsson
karlar
konur
Erfitt að skora
hjá Blikum
í sumar
Markverðir Breiða-
bliksliðanna í Pepsi-
deildunum í fótbolta
hafa haldið marki sínu
hreinu samanlagt í 19
af 29 leikjum í sumar
og eiga mikinn þátt í
að bæði liðin séu með á
fullu í baráttunni um Ís-
landsmeistaratitlana í ár.
hafa haldið
marki sínu
19 sinnum
hreinu í sumar 2
0
-0
8
-2
0
1
5
2
3
:5
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
D
5
-F
1
C
0
1
5
D
5
-F
0
8
4
1
5
D
5
-E
F
4
8
1
5
D
5
-E
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K